Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Sláandi verðmunur á íslenskum náttúrulaugum: Bláa lónið er langdýrast og Fontana ódýrast

Sjóböðin Hvammsvík
Sjóböðin Hvamms­vík

Eitt af því sem við Íslendingar erum rík af er vatnið, heitt og kalt. Það heillar jafnt landsmenn sem erlenda ferðamenn sem hingað koma.  Á síðustu árum hefur aukist mjög framboð á ýmsum, mann­gerðum, náttúru­laugum. Umfjöllun um þessi mál eru í nýjasta hefti Mannlífs.

En það er ekki ókeypis að heimsækja þessa staði og verðmunur er sláandi. Ódýrast er að heimsækja Laugar­vatn Fontana eða 4500 krónur á mann. Dýrast er að heimsækja Bláa lónið eða 11990* krónur á mann.

En það er ekki á allra færi að njóta þessara náttúru­lauga.  Mannlíf tók sem dæmi fimm manna fjöl­skyldu sem saman stóð af tveimur full­orðnum, þremur börnum fimm, tíu og fjórtán ára.  Ef fjöl­skyldan heimsækir Gilja­böðin þá kostar það 24090 krónur. En ef þau heimsækja Kraumu kostar það 14300 krónur. En ef fjöl­skyldan vill gera vel við sig og fara í Bláa lónið þá kostar það fjöl­skylduna 35970 krónur.

Nokkrir staðir bjóða sérverð fyrir aldraða og öryrkja, til dæmis Sjóböðin GeoSea, Jarðböðin Mývatni og Laugar­vatn Fontana. Einnig er í boði á sumum stöðum vetrar­kort og 10 skipti. Vert er að skoða þann möguleika ef þú býrð nálægt og vilt njóta hagstæðustu kjara. Einnig er misjafnt verð fyrir börn og aldursbil á skilgreiningu barna.

Þess ber þó að geta að erfitt er að bera saman verð þar sem munur er á því hvað innifalið er í verði. Til dæmis er gönguferð með leiðsögn innifalið í heimsókn í Gilja­böðin. Virka daga er ódýrara að heimsækja Sjóböðin í Hvammsvík en þá kostar það 6900 krónur en 7900 krónur um helgar.

Nýjasti baðstaðurinn eru Sjóböðin í Hvammsvík. Þar fær náttúran að njóta sín í öllu sínu veldi og Hval­fjörðurinn rammar staðinn fullkomnlega inn. Sjóböðin í Hvammsvík saman­standa af átta misstórum og heitum laugum í fjöru­borðinu, gufu og útisvæðum til slökunar. Neðstu laugarnar birtast og hverfa til skiptis á flóði og fjöru og er upplifunin því síbreytileg eftir tíma dags. Rekaviður er áberandi í hönnun staðarins.

Á höfuð­borgar­svæðinu er Sky lagoon í Kópavogi sem opnaði 2021 er annað upp á teningnum. Þar er tilbúinn drauma­heimur og heillandi heilsulón sem sem er smekklega hannað inn í náttúrulegt umhverfi á Kársnesinu. Þar fer saman slökun og endur­næring þar sem himinn og haf renna saman.

Úr Kópa­voginum höldum við á Laugar­vatn. Þar er að finna Fontana við Laugar­vatn og þú upplifir einstaka fjallasýn á meðan þú endur­nærist. Einnig er í boði einstök gufa sem er beint yfir náttúru­legum gufu­hverum.

Frá Laugar­vatni er tilvalið að skreppa upp í Borgar­fjörð. Þar er að finna Kraumu og Gilja­böðin. Skammt norðan við Deildar­tunguhver stendur Krauma náttúru­laug. Náttúru­laugarnar innihalda hreint og tært vatn beint úr Deildar­tunguhver sem kælt er með vatni undan öxlum Oks. Laugarnar eru sjö talsins, sex heitar og ein köld.

Gilja­böðin við Húsafell bjóða upp á einstaka upplifun í mann­gerðum laugum með náttúru­steinum úr nágrenninu. Þar eru í boði tvær heitar laugar auk kaldrar uppsprettu. Húsafell Giljaböð bjóða upp á ferðir með leiðsögn í fullkomna hálendis­slökun í einstökum gilja­böðum.

Næst höldum við norður yfir heiðar og er stefnan tekin á Skógar­böðin sem eru staðsett í Vaðla­heiði gegnt Akureyri.  Skógar­böðin eru náttúru­laugar  sem njóta sín einstak­lega vel inn í þétt­vöxnum skóginum með útsýni yfir Eyja­fjörðinn. Auk heitu lauganna er hægt að baða sig í kaldri laug og fara í þurrsána.  Einstök upplifun sem hægt er að mæla með.

Áfram höldum við og nú tökum við krók að Mývatni en þar eru Jarðböðin staðsett. Böðin er staðsett í Jarðbaðs­hólum en þar hafa verið stundið heit jarðböð til heilsu­bótar allt frá landnámsöld. Jarðböðin eru fyrir alla sem vilja njóta þess að vera í beinni snertingu við náttúruna, slaka á og endurnæra líkama og sál. Boðið er upp á náttúruleg gufuböð, baðlón með heitu hvera­vatni og heitan pott.

Næst er það Húsavík. Þar er að finna Sjóböðin GeoSea. Í sjóböðunum nýtur þú nátt­úrunnar á einstakan hátt. Hitinn í iðrum jarðar sér um að sjórinn í böðunum sé hlýr og góður og steinefna­ríkt vatnið gælir við hörundið. Á meðan hlýr sjórinn vinnur sín krafta­verk nýtur þú útsýnis yfir fjall­garðinn í vestri, Skjálfanda­flóann fyrir neðan klettana og sjálfan Norður-heimskauts­bauginn handan við sjóndeildar­hring.

Frá Húsavík höldum við til Egils­staða. Við Urriða­vatn sem er fimm kílómetra frá Egils­stöðum er að finna Vök Baths sem eru heitar náttúru­laugar. Laugarnar eru full­kominn áninga­staður fyrir þá sem vilja upplifa beina snertingu við náttúruna og næra um leið líkama og sál.  Fyrir þá sem það vilja og treysta sér til er einnig hægt að taka nokkur sundtök í ísköldu Urriða­vatni.

Nú förum við þvert yfir landið og endum þessa umfjöllun okkar við Grindavík. Bláa lónið þarf varla að kynna fyrir nokkrum manni en þar hefur verið rekið baðlón frá 1987. Bláa lónið er nú einhver fjöl­sóttasti ferðamanna­staður á Íslandi bæði af innlendum og erlendum ferða­mönnum og er talið eitt af 25 undrum veraldar. Fyrir utan einstaka upplifun af því að baða sig í lóninu þá hefur böðun jákvæð áhrif á húðsjúkdóminn psorisasis. Einnig er boðið upp á hreins­andi og nærandi kísil­maska í lóninu sem er innfalið í verði.

*Ódýrasti aðgangur í Bláa lónið er svokallaður Comfort aðgangur en þar er innifalið kísil­maski, handklæði og drykkur að eigin vali. Einnig getur verð verið mismun­andi eftir því hvað þú pantar með löngum fyrirvara en þetta er það verð sem oftast kom upp ef þú ætlaði að panta á næstu vikum. Aldraðir og öryrkjar greiða það verð sem er ódýrast hverju sinni en þar er ekki hægt að gefa upp neina ákveðna krónutölu. Börn fjórtán ára og eldri greiða sama gjald og full­orðnir en börn tveggja til þrettán ára greiða ekkert gjald.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning