InnlentSvara stjóra Sælukots og segja borgina ábyrga: „Innan leikskólans er lítil sem engin fagmenntun“ „Ábyrgðin á Sælukoti liggur hjá Reykjavíkurborg“ skrifa þær stöllur Margrét Eymundardóttir, kennari og fyrrverandi leikskólastjóri, María Lea Ævarsdóttir, kvikmyndagerðarkona og móðir, Eva Drífudóttir, innanhússarkitekt og fyrrverandi starfsmaður, og svara þar fyrir sig eftir að leikskólastjóri Sælukots, Elín Halldórsdóttir, ritaði grein um málefni leikskólans og fór síðan í viðtal á útvarpsstöðinni Bylgjunni. Elín Halldórsdóttir . Gefum þeim orðið: „Í viðtali á...
InnlentDorrit er hæstánægð með Karl III: „Megi valdatíð hans vera löng“ Dorrit Moussaieff, fyrrverandi forsetafrú Íslands, er ánægð með hinn nýja konung Bretlands. Dorrit birti ljósmynd af sér með Karli III Bretlandskonungi á Instagram og skrifaði undir myndina eftirfarandi texta (sem hefur verið íslenskaður): „Hans hátign, Karl III konungur hefur alltaf verið hugsjónamaður og varpað ljósi á mikilvægustu málefni heimsins, svo langt á undan sinni samtíð. #scotland Megi valdatíð hans vera...
InnlentRikki G spyr hvað sé í gangi hjá Óla Jó eftir rysjótta reið: „Er honum bara orðið alveg sama?“ Valsmenn hafa ekki riðið feitum hesti í fótboltanum hér heima að undanförnu; liðið hefur ekki uppskorið sigur í síðustu fjórum leikjum í efstu deild karla; tapað síðustu tveimur. Óhætt er að segja að tap liðsins gegn Leikni í gær, 1-0 gegn Leikni Reykjavík, sem er í harðri fallbaráttu og var manni færri stærstan hluta leiksins, hafi komið verulega á óvart;...
InnlentFiskikóngurinn sakaður um fáránlegt okur: „Getur ekki ætlast til að verslunareigandinn sé að tapa“ Kristján Berg Ásgeirsson, betur þekktur sem Fiskikóngurinn, fær á baukinn í fjölmennu samfélagi á Facebook, Vertu á verði – eftirlit með verðlagi, þar sem reglulega eru birtar sögur af meintu okri á Íslandi. Ein af nýjustu frásögnunum í hópnum hefur að gera með hreinsivöru sem Kristján selur hjá dótturfyrirtæki sínu, Heitir pottar. Árni nokkur fór á stúfana og gerði verðkönnun...
InnlentBílvelta við Álfhólsskóla – Reyndi framúrakstur Bílslys varð nú um klukkan 13:00 á Álfhólsvegi í Kópavogi. Lögreglan og sjúkrabílar eru á staðnum. Vitni sem hafði samband við Mannlíf sagði að rétt fyrir 13 í dag hafi bílslys orðið á Álfhólsvegi í Kópavogi. Svo virðist sem bifreið hafi oltið þegar ökumaðurinn reyndi að taka fram úr annarri bifreið en þess ber að geta að hámarkshraðinn á veginum...
Innlent„Smám saman eru netverjar að ná tökum á samfélaginu og dómskerfinu“ Óttar Guðmundsson geðlæknir segir að nettröll verði smátt og smátt valdameiri í samfélaginu. Hann gerir grín að netverjum í pistli sem hann birtir á vefnum Lifðu núna, en undir niðri virðist hann uggandi yfir stöðunni. Hann segir stjórnsýslu Íslands beygja sig og bukta fyrir kommentakerfinu. „Í frægri og umdeildri bók sinni Ástir samlyndra hjóna segir Guðbergur Bergsson frá fólki sem...
InnlentBjörn hefur fengið nóg af klinkinu: „Útilokað ég nenni að eltast við slíkt drasl“ Samfélagsrýnirinn Björn Birgisson úr Grindavík spáir því að fljótlega þurfi Íslendingar að fara hugsa í 500 krónum sem lágmarki þegar kemur að verðlagi hér á landi. Hann telur smámyntina algjört drasl og er löngu hættur að reikna með smápeningunum.Björn segir skoðuna sína í færslu á Facebook þar sem hann segir virðinguna fyrir krónunni vera litla sem enga. Rýrnun hennar sé...
InnlentHákon hjá Lyfjaveri: „Lágvöruverðsapótekin eru komin til að vera, og Lyfja er ekki eitt af þeim“ „Lækkun lyfjaverðs er samkeppni lágvöruverðsapóteka að þakka“ er yfirskrift greinar sem Hákon Steinsson framkvæmdastjóri Lyfjavers ritar og kallar um verðsamkeppni á milli apóteka. Hákon segir að „á laugardaginn var birtist frétt í Fréttablaðinu með fyrirsögninni: „Mikil lækkun lyfjaverðs á milli ára,“ en í fréttinni kom fram í könnun Veritabus að lyfjaverð hefði lækkað mikið á milli ára hjá þeim fjórum...
InnlentSteinunn Ólína segir snúið út úr orðum Sólveigar Önnu: „Megum búast við að hingað flytji milljónir“ Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir leikkona tekur upp hanskann fyrir Sólveigu Önnu Jónsdóttur í nýrri færslu á Facebook. Leikkonan ástsæla, Steinunn Ólína Jónsdóttir skrifaði færslu á Facebook í dag og hlekkjar við hana frétt af Rúv. Í fréttinni stendur að Samtök kvenna af erlendum uppruna séu ósátt við ummæli Sólveigar Önnu Jónsdóttur, verkalýðsforingja en hún hefur sagt að það yrði ekki ofarlega...
InnlentSannfærður um að Kristrún fari í samstarf við Sjálfstæðisflokkinn: „Sorglegt en líklega satt“ Jón Þór Ólafsson, fyrrverandi þingmaður Pírata, segist tilbúinn að veðja stórum upphæðum á að Samfylkingin muni fara í samstarf við Sjálfstæðisflokkinn undir stjórn Kristrúnar Frostadóttur. Næsta víst er að Kristrún verði næsti formaður Samfylkingarinnar, enda ein í framboði. Jón Þór telur svo gott sem öruggt að fyrr en seinna muni Kristrún mynda ríkisstjórn ásamt Sjálfstæðisflokknum. Hann segir þetta ósköp einfalt...
InnlentAnna Guðný er látin Anna Guðný Guðmundsdóttir píanóleikari er látin 64 ára að aldri eftir erfiða baráttu við veikindi. Fjöldi fólks hefur minnst Önnu á samfélagsmiðlum þar á meðal margir af fremsta tónlistarfólki landsins en hefur hún lengi verið einn fremsti píanóleikari landsins. Anna fæddist þann 6. September 1958 og lagði stund á píanónám í Barnamúsíkskólanum hjá Stefáni Edelstein. Hún lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum...
InnlentFundu óvenjulegt dýr í húsleit – Dólgur neitaði að segja gefa upp nafn sitt Lögregla mætti á heimili á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi þar sem grunur lék á að fíkniefnasala færi þar fram. Þegar lögregla kom á vettvang rakst hún á skriðdýr sem óheimilt er að eiga á Íslandi. Ekki kemur fram hvers konar dýr var á staðnum en var það handsamað og fjarlægt af starfsmanni frá sveitafélagi. Þá var lögregla kölluð út vegna karlmanns...