Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Fiskikóngurinn sakaður um fáránlegt okur: „Getur ekki ætlast til að verslunareigandinn sé að tapa“

Fiskikóngurinn, Kristján Berg Ásgeirsson, stendur í ólgusjó.
Fiski­kóng­ur­inn, Kristján Berg Ásgeirs­son, stendur í ólgu­sjó.

Kristján Berg Ásgeirsson, betur þekktur sem Fiskikóngurinn, fær á baukinn í fjölmennu samfélagi á Facebook, Vertu á verði – eftirlit með verðlagi, þar sem reglulega eru birtar sögur af meintu okri á Íslandi.

Ein af nýjustu frásögnunum í hópnum hefur að gera með hreinsi­vöru sem Kristján selur hjá dóttur­fyrirtæki sínu, Heitir pottar. Árni nokkur fór á stúfana og gerði verð­könnun og komst þá að því að Fiskikóngurinn býður upp á klórduft á 129 prósentum dýrara verði en samkeppnis­aðili. Um málið segir Árni:

Þessa mynd birti Árni á Facebook.

„Sama efnið í sama magni hjá sitt hvorri vefversluninni í gær. Efri myndin er hjá Hreinsi­efnum og sú neðri frá Heitum pottum. Álagning er frjáls en okkar að gera verð­samanburð.“

Varan sem um ræðir er Delphin klórduft sem er verðlagt á 6.900 krónur hjá Heitum pottum, verslun Kristjáns. Sama vara hjá versluninni Hreinsi­efni kostar hins vegar 2.990 krónur og er um sama magn að ræða að því er virðist. Verð­munurinn er 129 prósent.

Þeir sem blanda sér í umræðuna í hópnum þakka flestir Árna fyrir ábendinguna. Sævar bendir á meira okur í verslunum fyrir heita potta: „Talandi um potta­drasl, þessi önd sem mælir hitastig kostar 4500 í potta­verslun í Reykjavik. Fyrir sömu upphæð að viðbættum tolli og vsk mætti kaupa amk. 48 samskonar endur á Ali,“ segir Sævar.

Og Einar svarar Sævari. „Sko, þú verður að taka tillit til launa­kostnaðar, flutnings­kostnaðar, kostnað við lager, græðgi eiganda og síðan náttúru­lega skattinn sem ætti eftir bókhalds­brellur ætti að vera um 5 krónur fyrir árið, getur ekki ætlast til að verslunar­eigandinn sé að tapa á þessu,“ segir Einar.

Sævar valdi frekar að kaupa sér hita­mæli á Ali­Ex­press.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Tveir voru handteknir vegna gruns um rán og þrír grunaðir um þjófnað úr verslunum.
Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Í einu tilvikanna mældist vínandamagn í blóði hans 2,19 prómill eftir umferðaróhapp á Breiðholtsbraut.

Biskup biður um styrk og huggun fyrir þau sem syrgja skip­verjana

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“