Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Svara stjóra Sælukots og segja borgina ábyrga: „Innan leikskólans er lítil sem engin fagmenntun“

„Á­byrgðin á Sælu­koti liggur hjá Reykja­víkur­borg“ skrifa þær stöllur Margrét Eymundar­dóttir, kennari og fyrr­verandi leik­skólastjóri, María Lea Ævars­dóttir, kvikmynda­gerðarkona og móðir, Eva Drífu­dóttir, innan­húss­arkitekt og fyrr­verandi starfs­maður, og svara þar fyrir sig eftir að leik­skólastjóri Sælukots, Elín Halldórs­dóttir, ritaði grein um málefni leik­skólans og fór síðan í viðtal á útvarps­stöðinni Bylgjunni.

Elín Hall­dórs­dóttir .

Gefum þeim orðið:

„Í viðtali á Bylgjunni við Elínu Halldórs­dóttur leik­skólastjóra á Sælukoti, þann 9. september síðastliðinn, kemur fram að rekstrar­stjóri Sælukots sé nunna í Ananda Marga samtökunum sem vinnur mikla sjálfboða­vinnu og óeigingjarnt starf. Hún hafi með áralöngu striti náð að kaupa raðhús í Skerja­firði sem sé hluti af fjár­festingu Ananda Marga samtak­anna sem ætli sér að stækka leik­skólann.“

Óhætt er að segja að þær telji svör Elínar ekki vera krónunnar virði og segja:

„Þetta er reyndar hlægilega einfalt svar en í framhaldi af því vakna hjá okkur spurningar um arðinn. Hver þiggur arð upp á 41,8 mkr? Og, hverjir standa á bak við leik­skólann? Hverjir eru í Sælutröð og hafa þeir einhver tengsl við Reykja­víkurborg? Sömuleiðis kemur fram í viðtalinu að lítill reglu­rammi og skrif­finnska sé í kringum leik­skóla­starfið. Það byggi á kærleika og nýhúmanisma sem sé einfald­lega þannig að fólk sé gott og ástúðlegt, sérstak­lega við börn.

Þetta er allt gott og blessað, og enginn ætti að fetta fingur út í svo fallegt fyrir­komulag; börnin syngja um Baba og vinna við leik­skólann hefur gegnum tíðina oft verið byggð á sjálfboða­starfi. Þetta vissum við sem unnum allar á ólíkum tíma við leik­skólann.“

Þær færa einnig í tal að „við þekkjum líka allar hina hliðina á góðvild og ástúð rekstrar­stjórans. Lýsingar á henni koma fram í bréfi sem við sendum á Reykja­víkurborg og fleiri í nóvember í fyrra og lesa má hér. Við vitum það fyrir víst að um árabil hafa leik­skóla­stjórar einungis starfað í lítilli prósentu í Sælukoti. Vinna þeirra hefur einkum falist í því að rita skýrslur og uppfylla þær skildur sem Reykja­víkurborg þó gerir um leik­skóla­starfið.“

Einnig benda þær á að „starfs­fólk leik­skólans hefur ekki þekkt leik­skóla­stjórana í sjón enda stjórnar rekstrar­stjórinn, nunnan, með mýkt eða harðneskju, eftir því hvernig liggur á henni.

Á Sælukoti er ekki unnið eftir Aðal­námskrá og innan leik­skólans er lítil sem engin fagmenntun. En eins áður hefur komið fram hjá okkur þá sækja leik­skóla­kennarar sjaldan um starf á leik­skólanum og ef þeir villast þangað inn staldra þeir stutt við.

Sérkennsla er sjaldnast til staðar og lítið er sóst eftir þátttöku utan­aðkomandi aðila. Þetta allt veit starfs­fólk, embættis­menn og stjórn­endur hjá Reykja­víkurborg. Þroska­þjálfar, sálfræðingar, Félag stjórn­enda í leik­skólum o.s.frv. Og þetta vita líka kjörnir borgar­fulltrúarar sem fara með vald og eiga að sýna ábyrgð.“

Og skrifa lika að það sé „auðvelt að stinga höfðinu í sandinn og vona að hlutirnir reddist, sérstak­lega þegar leikskóla­pláss vantar í borginni. Elínu sendum við ást og frið til baka og óskum henni alls góðs. Hún sem hefur unnið á leik­skólanum í tvo mánuði, ber ekki ábyrgð á því ástandi sem þar hefur skapast. Við ætlum hins vegar ekki að standa í frekari bréfaskiftum við hana sem getur ekki svarað fyrir a.m.k. sex ára vanrækslu á Sælukoti.“

Skúli Helgason.

Að mati þremenninganna liggur „ábyrgðin hjá Reykja­víkurborg. Hún liggur hjá Skúla Helgasyni, fyrr­verandi yfirmanns skóla- og frístunda­sviðs, Helga Grímssyni, svið­stjóra skóla-og frístunda­sviðs, Ólafi Brynjari Bjarka­syni, skrif­stofustjóra fagskrifstofu leik­skólamála, Árelíu Eydísi Guðmunds­dóttur, núverandi formanni skóla- og frístunda­sviðs og öðrum kjörnum fulltrúum.

Við biðjum og vonum að ekki þurfi stórslys til að loka þessum leikskóla eða umbreyta starfsemi hans.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Tveir voru handteknir vegna gruns um rán og þrír grunaðir um þjófnað úr verslunum.
Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Í einu tilvikanna mældist vínandamagn í blóði hans 2,19 prómill eftir umferðaróhapp á Breiðholtsbraut.

Biskup biður um styrk og huggun fyrir þau sem syrgja skip­verjana

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“