Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Hákon hjá Lyfjaveri: „Lágvöruverðsapótekin eru komin til að vera, og Lyfja er ekki eitt af þeim“

Hákon Steinsson framkvæmdastjóri Lyfjavers.
Hákon Steins­son fram­kvæmda­stjóri Lyfja­vers.

„Lækkun lyfja­verðs er samkeppni lágvöruverðs­apóteka að þakka“ er yfir­skrift greinar sem Hákon Steinsson framkvæmda­stjóri Lyfjavers ritar og kallar um verð­samkeppni á milli apóteka.

Hákon segir að „á laugar­daginn var birtist frétt í Frétta­blaðinu með fyrir­sögninni: „Mikil lækkun lyfja­verðs á milli ára,“ en í fréttinni kom fram í könnun Veritabus að lyfjaverð hefði lækkað mikið á milli ára hjá þeim fjórum lyfsölum sem bjóði netverslun og var vitnað í sambærilega könnun ASÍ frá því í nóvember 2021.

Sérstak­lega var tekið fram að verð í Lyfju hefði lækkað um 15% að raunvirði og dugði það sem tilefni fyrir framkvæmda­stjóra Lyfju til að hampa árangrinum.“

Hann segir einnig að „ekki viljum við hjá Lyfjaveri hins vegar leyfa stóra aðilanum á markaðnum, Lyfju, að beina athyglinni frá þeirri staðreynd að Lyfjaver er með lægsta verðið samkvæmt könnuninni. Frá sjónar­hóli litla aðilans á markaðnum skýtur það skökku við að stóri aðilinn, sem að auki er með markaðs­ráðandi stöðu, og er eins konar klukkubúð lyfja­verslananna, skuli hreykja sér af stöðu sem stafar helst af þeirri samkeppni sem lágvöruverðs­apótek og Netapótek Lyfjavers hefur veitt þeim. Neytendur þurfa að spyrja sig að því af hverju Lyfja, sem ráðandi aðili á markaðnum, hafi verið svona dýr þangað til samkeppnin jókst með netverslunum.“

Bætir við:

„Álagningin hjá Lyfju er enn í dag mun hærri en hjá Lyfjaveri eins og sjá má af verð­samanburði. Lækkunin hjá Lyfju núna stafar aðeins af því að þar var mikið svigrúm til lækkunar vegna þess að álagningin var mjög há fyrir. Lyfjaver hefur með netapóteki sínu stuðlað að verð­lækkun um land allt. Mjög lítið er um að viðskipta­vinir greiði heimsendingar­gjald þar sem sendingin er frí ef pantaðir eru tveir lyfseðlar.“

Hákon bendir á að „á höfuð­borgar­svæðinu aka bílstjórar Lyfjavers sendingum heim til viðskipta­vina og dreifum við allt frá Völlunum í Hafnar­firði til Kjalarness. Pósturinn sér svo um sendingar um land allt, auk þess að hægt er að nálgast pantanir sem ekki innihalda lyf á afhendingar­stöðum Dropp um land allt.

Ég hvet neytendur til að fylgjast einfald­lega vel með hver býður lægsta verðið. Það er gott fyrir neytendur að aukin samkeppni okkar hafi loks orðið til þess að Lyfja lækki álagningu sína. En að það sé sérstakt tilefni til fagnaðar hjá Lyfju hljómar vægast sagt undarlega.“

Hákon segir að lokum að „ég held að neytendur átti sig á því að klukku­búðir eru almennt dýrari en lágvöruverðs­verslanir, enda er lengri afgreiðslu­tími hjá þeim. Það á auðvitað við um Lyfju líka. Við hin sem komum almennt vel út úr verð­könnunum á milli ára hljótum því að vilja rétta okkar hlut og benda á að lágvöruverðs­apótekin eru komin til að vera, og Lyfja er ekki eitt af þeim.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Tveir voru handteknir vegna gruns um rán og þrír grunaðir um þjófnað úr verslunum.
Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Í einu tilvikanna mældist vínandamagn í blóði hans 2,19 prómill eftir umferðaróhapp á Breiðholtsbraut.

Biskup biður um styrk og huggun fyrir þau sem syrgja skip­verjana

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“