Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

„Smám saman eru netverjar að ná tökum á samfélaginu og dómskerfinu“

Óttar Guðmundsson á túni. Myndin er samsett.
Óttar Guð­munds­son á túni. Myndin er sam­sett.

Óttar Guðmundsson geðlæknir segir að nettröll verði smátt og smátt valda­meiri í samfélaginu. Hann gerir grín að netverjum í pistli sem hann birtir á vefnum Lifðu núna, en undir niðri virðist hann uggandi yfir stöðunni. Hann segir stjórn­sýslu Íslands beygja sig og bukta fyrir kommenta­kerfinu.

„Í frægri og umdeildri bók sinni Ástir samlyndra hjóna segir Guðbergur Bergsson frá fólki sem sitji með rassinn í prump­stöðu tilbúið að tjá sig um stór og smá tíðindi. Bókin kom út fyrir rúmlega hálfri öld og mikið hefur breyst síðan í samfélaginu. Netið hefur opnað þessu málþola fólki áður óþekkta möguleika. Það situr þolinmótt og álútt við tölvuna og bíður færis til að láta ljós sitt skína,“ skrifar Óttar.

Hann segir það hálfgerða ráðgátu að átta sig á því hvað muni fara öfugt ofan í fólkið á internetinu. „Ólíklegustu atvik leiða til heiftarlegra viðbragða á netinu. Á dögunum kvartaði þjóðin undan illa búnum ferða­löngum á eldstöðvunum með ung börn í fanginu. Löggan takmarkaði þá aðgengi barna að gosinu. Viðbrögðin með miklum látum létu ekki á sér standa. Þessar takmarkanir voru á auga­bragði orðnar stór­hættulegar fyrir þroska barna og samheldni í fjöl­skyldum. Lögregla og björgunar­sveitir fóru í vörn og hröktust undan vindgangi háværra álits­gjafa. Málið leystist sem betur fer af sjálfu sér þegar gosið hætti öllum á óvörum. Enginn þurfti lengur að hafa áhyggjur af grátandi og svöngum börnum við hraun­jaðarinn,“ segir Óttar.

Hann rifjar svo upp mál Helga Magnúsar Gunnars­sonar vara­ríkis­saksóknara sem sagði nóg af hommum á Íslandi. „Stóra aðstoðar­saksóknara­málið hleypti miklu lífi í þrásetu­menn við tölvuna. Margir gengu framaf sjálfum sér í kröfu­gerðinni um afsögn og refsingar þessa óheppna embættis­manns. Stjórn­kerfið skalf og nötraði vegna hávaðans.  Aðstoðar­saksókn­arinn hefur ekki tjáð sig síðan og embættið veitti honum áminningu fyrir stór­karlalegar athuga­semdir,“ segir Óttar.

Annað dæmi sé svo glænýtt. „Elísabet Englands­drottning dó fyrir skemmstu. Viðbrögð og sorgar­fretur netsins voru svo ofsa­fengin að ókunnugum hefði ekki komið annað í hug en Ísland tilheyrði Breska Heims­veldinu. Ólíklegasta fólk lýsti yfir djúpum harmi vegna fráfalls þessarar aldur­hnignu konu. Myndir voru dregnar fram af Betu úr Íslands­heim­sókninni með þekktum netverjum. Frétta­þulir Ríkis­sjón­varpsins klæddust svörtu í tilefni dagsins yfir­komnir af sorg. Sjálfur reyndi ég að brosa gegnum tárin og gladdist fyrir  hönd jafnaldra míns, Karls prins sem loksins er kominn í vinnu. Ég vil votta öllum þessum syrgjendum samúð mína vegna fráfalls Breta­drottningar,“ segir Óttar.

Hann lýkur pistlinum svo á alvarlegri nótum: „Mig langar til að lýsa yfir djúpu þakklæti og aðdáun á þessu nafnlausa og fórnfúsa fólki sem situr mánuðum saman á öðrum þjóhnappinum við tölvuna. Konur og karlar sem  standa vaktina í blíðu og stríðu tilbúin að leysa vind. Ekkert er þeim óviðkomandi og þau vita alltaf best!

Smám saman eru netverjar að ná tökum á samfélaginu og dóms­kerfinu. Þeim hefur tekist að gera netið að opinberum gapastokk sem áhrifa­mönnum stendur stuggur af. Dómstóll götunnar birtir niður­stöður sínar á netinu og úrskurði hans verður ekki áfrýjað. Stjórn­kerfið er smám saman að lamast gagnvart áhrifa­mætti netsins og einstakir embættis­menn þora sig ekki að hreyfa af ótta við viðbrögð áhrifa­mikilla netprumpara.

Enginn vill nefnilega sitja uppi með svarta-pétur eins og aðstoðar­saksóknari gerði á dögunum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Tveir voru handteknir vegna gruns um rán og þrír grunaðir um þjófnað úr verslunum.
Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Í einu tilvikanna mældist vínandamagn í blóði hans 2,19 prómill eftir umferðaróhapp á Breiðholtsbraut.

Biskup biður um styrk og huggun fyrir þau sem syrgja skip­verjana

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“