Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Fólk

Eitt eft­ir­minn­an­leg­asta hús lands­ins sett á sölu

Menning

Ris og fall Krumma

Innlent

Móðir á Íslandi í laga­legri sjálf­heldu vegna föður sem eng­inn finnur

Pólitík

Inga Sæland hjólar í borg­ar­stjórn

Innlent

Kóka­ín­farm­ur­inn komst ekki lengra en til Kefla­víkur

Heimur

„Ég var ekki full­klæddur og fólk úti gat horft beint inn um svefn­her­berg­is­glugg­ann minn!“

Fólk

Fjórar ástæður fyrir því að þú færð auð­veld­lega mar­bletti

Heimur

Einka­dóttir leikkon­unnar Lisu Maxwell látin, 27 ára að aldri

Heimur

Dán­ar­or­sök leik­ar­ans Anthony Clark komin fram

Innlent

Fluttur ælandi með sjúkra­bíl

Hundaskít sturtað fyrir framan kosningaskrifstofu Baldurs: „Við þorum, við viljum og við getum“

Baldur Þórhallsson forsetaframbjóðandi
Baldur Þór­halls­son for­seta­fram­bjóð­andi

Poki, troð­fullur af hunda­skít var sturtað fyrir framan kosn­inga­skrif­stofu Baldurs Þór­halls­sonar for­seta­fram­bjóð­anda í gær­morgun. Frá þessu segir Jón Kristinn Snæhólm, stjórn­mála­fræð­ingur.

Einn helsti stuðn­ings­maður Baldurs Þór­halls­sonar for­seta­fram­bjóð­anda, Jón Kristinn Snæhólm, stjórn­mála­fræð­ingur, skrif­aði Facebook-færslu í gær­kvöldi þar sem hann segir frá því að poki, fullur af hunda­skít hafi legið fyrir framan kosn­inga­skrif­stofu Baldurs í gær­morgun. Fer hann fyrst yfir hug­myndir sínar um for­seta­kosn­ingar á Íslandi:

„Fullur poki af skít!

Í dag ákváðum við Erla og Teddý að fara í kaffi á kosn­inga­skrif­stofu stuðn­ings­fólks þeirra Baldurs og Felix. Í mínum huga eru for­seta­kosn­ingar á Íslandi, kosn­ingar þar sem fólkið í land­inu, velur sér þjóð­ar­leið­toga í sam­ræmi við þá þjóðarí­mynd sem það vill að beri hróður lands­ins sem víð­ast. Ísland hefur rutt braut­ina í mörgum mál­efnum. Þannig var kjör Vigdísar Finn­boga­dóttur til for­seta Íslands gríð­ar­legt fram­lag í jafn­rétt­is­bar­áttu kvenna um all­ann heim­inn og olli bylt­ingu gegn ríkj­andi hug­ar­fari þar sem konur voru ekki taldar hæfar til að veita þjóð­ríkjum for­ystu. Vigdís Finn­boga­dóttir, ein­stæð móðir, kom sá og sigr­aði, ruddi braut­ina og hróður Íslands barst um heims­byggð alla. Nú höfum við þetta tæki­færi aftur sem þjóð.“

Því næst mærir Jón Kristinn sinn mann og hvetur fólk til að kjósa Baldur.

„Okkur gefst þetta tæki­færi NÚNA og við sem þjóð skulum nýta það með því að kjósa Baldur Þór­halls­son sem for­seta okkar. Baldur er ekki bara hámennt­aður fræði­maður með djúpan skiln­ing á stöðu Íslands í sam­fé­lagi þjóð­anna heldur ötull tals­maður mann­rétt­inda, sér­stak­lega þeirra sem sæta ofsóknum víða um heim vegna kyn­hneigðar sinnar.

Stjórn­kerfi Íslands kann Baldur utanað. Kosn­ing­arnar 1. júní eru því ekki einka­mál okkar Íslend­inga, heldur gríð­ar­legt stökk fyrir mann­rétt­indum heims­ins.“

Síðan kemur Jón Kristinn loks­ins að hunda­skítnum:

„Í morgun var fullum poka af hunda­skít sturtað fyrir framan hurð­ina á kosn­inga­skrif­stofu okkar. Ann­ar­staðar í heim­inum er bar­áttu­fólki fyrir mann­rétt­indum stungið í stein­inn, smánað og pyntað. Rísum undir nafni sem braut­ryðj­endur frelsis, mann­rétt­inda og mann­helgi. Horfum framan í heim­inn og segjum stolt: Við þorum, við viljum og við getum.Þess­vegna sendum við Baldur á Bessa­staði 1. júní.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Forsetakosningar 2024

InnlentForsetakosningar 2024

Arnar Þór skuldar starfs­mönnum for­seta­fram­boðs­ins laun: „Ég vil fá skýr­ingar á því hvað þetta var“

Arnar Þór Jónsson, hæsta­rétt­ar­lög­maður og stofn­andi Lýð­ræð­is­flokks­ins hefur enn ekki greitt laun nokk­urra aðila sem störf­uðu við for­seta­fram­boð hans á þessu ári. Samkvæmt heim­ildum Mannlífs skuldar Arnar Þór Jónsson laun nokk­urra ein­stak­linga sem unnu við for­seta­fram­boð hans fyrr á árinu. Um er að ræða umtals­verðar upp­hæðir sam­kvæmt heim­ild­unum en Arnar Þór segir í sam­tali við Mannlíf eiga aðeins eftir að...
InnlentForsetakosningar 2024

Ástþór þög­ull um fjár­mögnun á fram­boði Ásdísar: „Ég er lang­flott­asti for­set­inn“

Ástþór Magn­ús­son, sexfaldur fram­bjóð­andi til for­seta Íslands, vill ekki upp­lýsa strax hvort hann muni fjár­magna vænt­an­leg for­seta­fram­boð Ásdísar Ránar Gunn­ars­dóttur en hún lýsti því yfir kosn­inga­vöku sinni fyrr á þessu ári. „Ég er offisjalí búin að taka að mér frið­ar­málin, þannig að þið megið búast við mér á 4-8 ára fresti næstu 30 árin,“ sagði for­seta­fram­bjóð­and­inn og fyr­ir­sætan einnig. „Ég...

Mest lesið í vikunni

1
Minning

Lárus Heið­ars­son lát­inn

Lárus Heið­ars­son, skóg­ar­bóndi og fyrr­ver­andi odd­viti Fljóts­dals­hrepps, var bor­inn til grafar á föstu­dag. Hann lést 28. októ­ber síð­ast­lið­inn eftir skamma en erf­iða bar­áttu við bráða­hvít­blæði. Aust­ur­frétt greindi frá and­lát­inu. Lárus gegndi fjöl­mörgum trún­að­ar­störfum fyrir Fljóts­dals­hrepp og sat í sveit­ar­stjórn frá árinu 2010, fyrst sem vara­odd­viti og síðar odd­viti. Hann kom einnig að mótun Svæð­is­skipu­lags Aust­ur­lands og var í stjórn Sambands...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hundruð reyndu að færa fræga lista­verkið til að bjarga manni

Auglýsingar um borgina og á samfélagsmiðlum hvöttu fólk til að taka þátt
Minning

Guðjón Þórð­ar­son er fall­inn frá

Innlent

Hljóð­upp­tökur komu verk­stæði í Garðabæ í koll

Innlent

„Mig bara langar ekki í saur­gerla­bað“

Innlent

Kom með ólög­legan grænan varn­ing í far­angrinum

Innlent

Innlent

Morg­un­blaðið aftur gagn­rýnt fyrir mynda­notkun við frétt

Gauti B. Eggertsson gagnrýnir að fánar Palestínu og hinsegin fólks hafi fylgt frétt um ofbeldi gegn stúlkum í Reykjanesbæ.
Innlent

Ung­lingur stakk mann í síð­una og réðst á annan með járn­röri

Innlent

Trufl­anir hjá Microsoft hafa áhrif á starf­semi MAST

Innlent

Nýtt trú­fé­lag skráð á Íslandi

Innlent

Reykja­vík breytt­ist í risa­stórt bíla­stæði

Innlent

Gunnar Smári segir frá sárs­auka­fullum dögum og svefn­lausum nóttum