LandiðList í ljósi í sjöunda sinn á Seyðisfirði – Yfir 20 listamenn varpa birtu á bæjarlífið Á Seyðisfirði fer fram um næstu helgi ljósahátíðin List í ljósi. Er það í sjöunda skiptið sem hátíðin fer fram. Yfir 20 listamenn munu þá taka höndum saman um að lýsa upp febrúarmyrkrið í verkjum sínum. Samkvæmt Austurfrétt er hugmyndin með ljósahátíðinni akkurat sú að lýsa upp myrkrið í hugum heimafólks og gesta um stutta stund en hátíðin hefur hlotið...
LandiðAllar konurnar í bæjarstjórn Vesturbyggðar hætta í vor Allar fjórar konurnar í bæjarstjórn Vesturbyggðar hafa ákveðið að bjóða sig ekki fram aftur í vor. Tveir listar mynda bæjarstjórnina, Ný sýn sem fékk greinan meirihluta, fjóra fulltrúa og Sjálfstæðisflokkur og óháðir sem fengu þrjá fulltrúa. Oddvitar listanna, þær Iða Marsibil Jónsdóttir hjá Nýrri sýn og Friðbjörg Matthíasdóttir, hjá Sjálfstæðisflokknum og óháðum hafa báðar tilkynnt að þær muni hætta í...
LandiðHeimastjórn Borgarfjarðar eystri mótmælir harðlega ákvörðun Svandísar Svavarsdóttur Heimastjórn Borgarfjarðar eystri er afar ósátt og mótmælir harðlega þá skerðingu aflaheimilda til strandveiða sem Svandís Svavarsdóttir, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur ákveðið. Það var í desember síðastliðnum að Svandís Svavarsdóttir ákvað að skerða heimildir strandveiðibáta um 1500 tonn frá því sem áður hafði verið ákveðið. Í heild verða því heimildir strandveiðibáta alls 8500 tonn næsta sumar en inni í þeim...
LandiðSysturskip Barkar bætti glænýtt heimsmet: „Við hugsum á svipuðum nótum og landsliðið í handbolta“ Ekki stóð heimsmet Barkar NK, sem hann setti fyrir helgi en í gær bætti Vilhelm Þorsteinsson EA metið. Landaði skip Samherja 3.448 tonnum af loðnu í Fuglafirði í Færeyjum. „Þessi systurskip eru þau burðarmestu í flotanum, metin falla með öðrum orðum hratt á þessari stærstu loðnuvertíð um langt árabil,“ segir á vef Samherja. Samkvæmt Akureyri.net tók rúmlega tuttugu klukkustundir að...
LandiðAusturglugginn 20 ára Vikublaðið Austurglugginn fagnar tuttugu ára afmæli sínu þessi dægrin. Blaðið er gefið út af Útgáfufélagi Austurlands, rétt eins og Austurfrétt. Þann 31. janúar árið 2002 kom fyrsta tölublað Austurgluggans út en það varð til eftir að Austri, málgagn Framsóknarlokksins á Fljótsdalshéraði og Austurland, málgagn Alþýðubandalagsins í Neskaupsstað, slökktu á prentvélum sínum. Var markmiðið að búa til óháð og kröftugu landshlutablaði....
LandiðBörkur NK með mesta loðnufarm sögunnar: „Það er ekki hægt að kvarta yfir slíkum aflabrögðum“ Börkur NK setti heimsmet fyrir helgi þegar skipið landaði rúmum 3.400 tonnum af loðnu á Seyðisfirði. Bætti skipið þannig met Beitis frá því um miðjan janúar þegar hann landaði 3.200 tonnum í Noregi. Austurfrétt segir frá þessu í dag. „Þessi afli fékkst í átta holum á fjórum dögum. Það er ekki hægt að kvarta yfir slíkum aflabrögðum,“ segir Hjörvar Hjálmarsson...
LandiðEngar breytingar á sjoppum Olís á Austurlandi: „Meira og minna slitið mjög illa úr samhengi“ Ekki stendur til að loka sölustöðvum Olís á Austurlandi, þrátt fyrir frétt Vísis þess efnis. Málið slitið úr samhengi segir framkvæmdarstjórinn. Frosti Ólafsson, framkvæmdarstjóri Olís segir í viðtali við Austurfrétt í dag að engar breytingar séu fyrirhugaðar á sölustöðvum Olís á Austurlandi. Segir hann Vísi ekki hafa farið með rétt mál í frétt sinni. „Þetta var meira og minna slitið...
LandiðAkraneskaupsstaður á stórafmæli í dag – Bæjarstjórinn Sævar brast í söng Í dag á Akraneskaupsstaður 80 ára afmæli. Af því tilefni söng bæjarstjórinn afmælissönginn ásamt þremur öðrum mönnum. Skessuhorn sagði frá þessu í dag. Vegna samkomutakmarkana er lítið um viðburði í dag í tilefni stórafmælisins en stefnt er á að halda veislu síðar á árinu. Starfsfólk á stofnunum sveitarfélagsins fengu þó afmælisköku í til efni dagsins og þá brast bæjarstjóri Akranes,... Myndband
LandiðMikið stuð í Strandabyggð: „Ég vil fara varlega“ Jón Jónsson sveitarstjórnarmaður í Strandabyggð og þjóðfræðingur er sáttur enda ekkert smit af völdum Covid 19 er að finna í Strandabyggð, og þetta sagði hann í spjalli við Fréttablaðið: „Þetta er auðvitað bara ein af þessum ankringislegu tilviljunum.“ Smit hafa vissulega komið upp í hreppnum að sögn Jóns: „Mér finnst að það eigi að fara að tilmælum sóttvarnalæknis og fara...
LandiðFólksflutningarnir miklu á nýjum söguvef í tilefni af fimmtugsafmæli Heimaeyjargossins Þann 23. janúar 2023 verða liðin 50 ár frá því að rúmlega 5000 íbúar Vestmannaeyja urðu að flýja bæinn sinn. Eldgos var hafið örskotslengd frá sjálfri byggðinni á Heimaey. Um miðja nótt streymdi fólk niður að höfn og fór um borð í 52 báta sem fluttu stærsta hluta íbúanna til Þorlákshafnar. Aðrir voru fluttir á brott flugleiðs en sumir urðu...
LandiðFjarðabyggð leitar að nafni á nýtt fótboltafélag – lumar þú á góðri hugmynd? Aðal íþróttafélögin í Fjarðabyggð hafa tekið þá ákvörðun að sameina enn frekar krafta sína á knattspyrnuvellinum og leita nú aðstoðar íbúa sveitafélagsins því nú vantar nafn á þetta nýja, óstofnaða félag. Samkvæmt vefsíðu Fjarðabyggðar þarf nafnið að endurspegla metnað, sameiningarkraft og heiðarleika. Þá skal það vera þjált í munni, auðvelt til hvatningar og auðvitað standast íslenskar málvenjur. Þetta kemur fram...
LandiðGuðni forseti skrapp út að skokka í Reykjanesbæ: „Hreint loft er gulls ígildi“ Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson notaði tækifærið þegar hann átti erindi í Reykjanesbæ á dögunum og fór út að skokka. Þar heillaði veggjalist Guðna sem og fallbyssan frá Landhelgisgæslunni fyrir framan Duus-húsið. „Um helgina hafði ég óvænt nægan tíma en nýtti hann ekki í neitt nema dívans dorm (eins og segir í gömlu lagi Stuðmanna) þar til ég dreif mig...