Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólksflutningarnir miklu á nýjum söguvef í tilefni af fimmtugsafmæli Heimaeyjargossins

Fólksflutningarnir miklu á nýjum söguvef í tilefni af fimmtugsafmæli Heimaeyjargossins

Þann 23. jan­úar 2023 verða liðin 50 ár frá því að rúm­lega 5000 íbúar Vest­manna­eyja urðu að flýja bæinn sinn. Eldgos var hafið örskots­lengd frá sjálfri byggð­inni á Heimaey.

Um miðja nótt streymdi fólk niður að höfn og fór um borð í 52 báta sem fluttu stærsta hluta íbú­anna til Þor­láks­hafnar. Aðrir voru fluttir á brott flug­leiðs en sumir urðu eftir við skyldu­störf.

Sigl­ingin til Þor­láks­hafnar með þús­undir manna er stærsta björg­un­ara­frek Íslands­sög­unnar. Þessa verður minnst með veg­legum hætti á afmæl­is­ár­inu 2023. Þar ber einna hæst að opn­aður verður sögu­vefur þar sem rekja á upp­haf goss­ins, sögu flótt­ans og þess sem á dag­ana dreif í stórum dráttum árin 1973 og 1974.

Heima­eyj­ar­gosið er saga hörm­unga, eyði­legg­ingar og óvissu en líka saga bar­áttu þar sem sigrar unn­ust. Úr ösk­unni reis Vest­manna­eyja­bær öfl­ugri en fyrr.

Björg­un­ara­frek sjó­manna og útgerð­ar­manna gosn­ótt­ina er meg­in­stefið í ómet­an­legu verki Ingi­bergs Ósk­ars­sonar, 1973-Allir í bát­ana. Ingi­bergur skráði hver fór frá Eyjum með hvaða bát ásamt heim­il­is­fangi í Vest­manna­eyjum og fæð­ing­ar­ári og gerði öllum aðgengi­legt á sér­stökum vef.

Ekki vantar mikið upp á hringnum sé lokað en Ingi­bergur taldi sig kom­inn á enda­punkt. Fram­seldi hann verk­efnið Ómari Garð­ars­syni og Atla Rúnari Hall­dórs­syni haustið 2021. Þeir ætla að taka upp þráð­inn og auka veru­lega við enda af nógu er að taka. Margar eru sög­urnar og ótal angar máls­ins teygðu sig víða um íslenskt sam­fé­lag – og til ann­arra ríkja líka.

Við hæfi er að greina frá verk­efn­inu í dag, 23. jan­úar 2022, þegar 49 ár eru liðin frá upp­hafi Heima­eyj­ar­goss­ins. Frekari kynn­ing er áformuð á Goslokum í sumar, 2022.

Gert er ráð fyrir að fyrri áfangi nýja verk­efn­is­ins birt­ist á Vefnum gos­dag­inn 23. jan­úar 2023 en verk­efnið í heild verði opin­berað á Gos­loka­há­tíð í júlí 2023.

Ómar og Atli Rúnar hafa fengið til liðs við sig öfl­ugan hóp fólks til að vinna efni fyrir nýja sögu­vef­inn og setja hann upp. Með þeim í verk­efn­is­stjórn eru Guðrún Erlings­dóttir, Guðbjörg Sig­ur­geirs­dóttir og Helga Hall­bergs­dóttir. Sérlegur ráð­gjafi er Páll Zóphóníasson tækni­fræð­ingur Vest­manna­eyja­bæjar á gos­tím­anum og síðar bæj­ar­stjóri í Eyjum. Sæþór Vídó er vef­hönn­uður. Kári Bjarna­son og Sig­ur­hanna Frið­þórs­dóttir eru tengiliðir fyrir hönd Safna­húss­ins sem er aðili að verk­efn­inu. Fyrir liggur að nýi vef­ur­inn verði vistaður hjá Safna­hús­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Landið

Landið

Límdu yfir hraða­mynda­vél lög­reglu

„Það er svo sannarlega þörf á hraðamælingum“
Landið

Forbes vekur athygli á nýju ferða­manna­gjaldi á Íslandi

Landið

Breskur stór­mið­ill velur fimm stór­kost­leg­ustu fossa Íslands

Landið

Vilja vernda nátt­úruperlu í Skriðdal

Landið

Skortur á leik­skóla­plássum tefur end­ur­komu starfs­fólks HSA

Landið

Björg­un­ar­bún­aður og bætt öryggi til skoð­unar við Stuðla­gil