2 Pólitík „Ef það má bjóða einhverjum biturð og kvenfyrirlitningu, endilega lesið Moggann í dag“
MenningNýtt myndband frá Winter Leaves Hljómsveitin Winter Leaves var að gefa út tónlistarmyndband við lagið Second Chanses, sem var á plötunni Higher sem kom út árið 2019. Sveitin vann myndbandið sjálf og tók það allt upp á Suðurlandi. Óhætt er að segja að sveitin sé iðin við kolann, en hún er þessa dagana í hljóðveri að taka upp nýtt lag sem kemur út í haust....
MenningSeptember og Brynja Mary með glænýtt lag September sendi nýverið frá sér lagið Just for a minute, sem er sungið af söngkonunni Brynju Mary. Síðast sendu September og Brynja Mary frá sér lag sem nefnist California og kom út í maí. Brynja Mary Sverrisdóttir sem er aðeins sextán ára vakti athygli þegar hún tók þátt í Söngvakeppni 2020 með laginu Augun þín (In your eyes). September er...
MenningNýtt myndband við „remix“ frá Diagram Diagram var að senda frá sér nýtt myndband við lagið Remove The Veil (remix). Eins og titillinn gefur til kynna er um að ræða endurhljóðböndun, en hægt er að finna lagið í sinni upphaflegu mynd á fyrstu plötu sveitarinnar Transmission Response, sem kom út hjá Fuzz Club Records 2019. Þess má geta að Diagram byrjaði sem sólóverkefni Hákonar Aðalsteinssonar (The... Myndband
MenningHafði aldrei kjark til að syngja fyrir framan aðra Fyrir skömmu sendi Ragna Isabel frá sér lagið Eagle. Ragna hefur alltaf haft áhuga á tónlist en skorti kjark til að syngja fyrir framan aðra. „Ég leiddist út í neyslu á unglingsárunum og var mikið inn og út af geðdeild frá fjórtán ára aldri,“ útskýrir Ragna. Þegar hún fann svo sinn æðri mátt og náði loks að verða edrú eftir...
MenningForréttindablindur pótintáti Kólumkilli hefur gefið út lagið Júpíter. Hann segir lagið vera níðstöng reista til höfuðs Donalds Trump Bandaríkjaforseta. Textinn sé ortur í orðastað manns sem sé í svipaðri valdastöðu; sjálfshól, forréttindablinda og almenn mannfyrirlitning ríði ekki við einteyming í orðræðu hans. Kólumikill segir að um leið sé lagið harmagrátur yfir tapaðri mennsku, mannkærleika og visku.
Menningdirb og GDRN sameina krafta sína Ingvi Rafn Björgvinsson, sem gerir tónlist undir listamannsnafninu dirb, var að senda frá sér lagið Segðu Mér, sem er sungið af söngkonunni GDRN. Lagið er þriðji singúllin sem dirb sendir frá sér af væntanlegri plötu sem kemur út 3. Júlí. Ingvi spilar á bassa í fjölda hljómsveita, þar á meðal Oyama sem hefur verið starfandi frá árinu 2012. Myndband
MenningPoppuð raftónlist í anda eigthies-tímabilsins Þann 12. júlí næstkomandi ætlar hin unga og upprennandi tónlistarkona og útsetjari KÍTA að senda frá sér sína fyrstu smáskífu, Things You Don’t Know. Í tónlistarsköpun sinni hefur KÍTA lagt áherslu á poppaða raftónlist og er þessi smáskífa engin undantekning; hún inniheldur meðal annars hljóðgervla í anda níunda áratugar síðustu aldar og þykir þar af leiðandi vera skemmtilegt sambland af...
MenningBubbi og Hjálmar senda frá sér lag Á dögunum leiddu Bubbi Morthens og Hjálmar saman hesta sína og gáfu út nýtt lag, Þöggun. Lagið nýtur mikilla vinsælda og situr í 1. sæti á Vinsældalista Rásar 2 þegar þetta er skrifað. Buggi samdi lag og texta en lagið var tekið upp í Hljóðrita í Hafnarfirði. Þess má geta að hljómsveitina Hjálma skipa þeir Þorsteinn Einarsson, Sigurður Guðmundsson, Guðmundur...
MenningLaðast hvort að öðru en ná ekki saman Gyða Margrét, a.k.a. Gyda, og Fannar Freyr Magnússon sendu frá sér á dögunum nýtt lag, Andstæður. „Við höfum verið að vinna saman í rúmlega tvö ár og gáfum út plötuna Andartak, á síðasta ári. Okkur langaði alltaf að fylgja þeirri plötu eftir með fleiri lögum,“ segir Gyða í samtali við Albumm og bætir við að þess vegna hafi þau meðal...
MenningLöðrandi í erótík Hinn kynþokkafulli Love Guru og góðvinur hans Doddi hafa tekið höndum saman í nýju sumarlegu lagi í diskóhouse-stíl, Desire, sem er fullt af ást og löðrandi í erótók. Þetta er í fyrsta skipti sem þessir félagar gefa út tónlist saman þrátt fyrir að hafa átt í mjög nánu samstarfi síðustu 17 ár. Í laginu heyrist Love Guru syngja í fyrsta... Myndband
MenningHákon gefur út sína fyrstu plötu Tónlistarmaðurinn Hákon Aðalsteinsson var að gefa út sína fyrstu plötu, Adored. Platan er að mestu tekin upp í stúdíóinu hans og inniheldur lög þar sem mikið er notast við bassa, gítar, aðallega baritone-gítar og syntha. Plötuna gefur hann út undir merkjum raftónlistarverkefnisins Hákons, sem hann hefur unnið að síðasta árið. Platan er unnin í miklu samstarfi við Breka Stein Mánason,...
MenningÞórunn Antonía segir skilið við fortíðardrauga Þórunn Antonía og Agnar Friðbertsson hafa sent frá sér nýtt lag, Flugdreka, þar sem söngkonan er á persónulegum nótum. Fram undan eru síðan ýmis spennandi verkefni, þar á meðal samstarf við erlendan framleiðanda sem er stórt nafn í tónlistarbransanum úti í heimi. „Þetta lag er í raun bæði persónulegt og ljóðrænt. Það fjallar um það að segja skilið við fortíðardrauga...