2 Pólitík „Ef það má bjóða einhverjum biturð og kvenfyrirlitningu, endilega lesið Moggann í dag“
MenningSýna á sér nýja hlið Karl Orgeltríó og Rakel Sigurðardóttur hafa sent frá sér popplag sem kallast What Can You Do To Me? og myndband við lagið. Rakel er ung og upprennandi söngkona sem vinnur nú einnig að eigin efni, en Karl Orgeltríó var stofnað árið 2013 í kringum Hammondorgelið Nínu sem Karl Olgeirsson leikur á. Fyrir þremur árum sendi tríóið frá sér plötuna Happy...
MenningSkógarhöggskona semur seiðandi tónlist Danska söngvaskáldið Ditte Grube, a.k.a. Out of the woods, sem er rísandi stjarna innan indí-þjóðlagasenunnar á Norðurlöndunum, sendi á dögunum frá sér smáskífuna Silence you with love. Tónlistin er sveipuð eterískri áru og seiðandi rödd Ditte dansar áreynslulaust við kontrabassa, fiðlu, píanó, trompet, trommur og blæbrigðaríkan rafmagnsgítarinn. Textarnir fjalla um allt frá svefnleysi og vinamissi til óhlutkenndra geimævintýra og rándýra...
MenningMenntaskólanemar gefa út tilraunakennda tónlist Hljómsveitin Dymbrá gar út samnefnda smáskífu föstudaginn 12. júní. „Við erum þrjár í hljómsveitinni, allar í menntaskóla, og höfum spilað saman síðan 2018, tókum til dæmis þátt í Músíktilraunum, þá undir nafninu Umbra,“ segir Eir, einn meðlimur sveitarinnar. Dymbrá spilar frekar tilraunakennda tónlist sem blandar saman rafmagnshljóðum, hefðbundnum popp-hljóðfærum, klassískum hljóðfærum og öðru, til dæmis flösku. Hægt er að hlusta...
MenningÁsgeir á tónleikaferð um Ísland í júlí Tónlistarmaðurinn Ásgeir hefur ákveðið að fara í tónleikaferð um Ísland í júlí þar sem hann leikur á 13 tónleikum á 17 dögum. Í febrúar á þessu ári gaf Ásgeir út sína þriðju breiðskífu, Sátt, og til stóð að hann myndi verja mestum hluta ársins á tónleikaferðalögum erlendis við að kynna plötuna. Árið hófst með mánaðarlöngu tónleikaferðalagi um Evrópu í febrúar...
MenningÞúsundaþjalasmiður með áhuga á tónlist og kakói Jóhann Kristófer Stefánsson, eða Joey Christ, er sannkallaður þúsundþjalasmiður. Hann hefur leikið, leikstýrt, verið í útvarpi og nú hefur hann sent frá sér nýja plötu, Bestur. Albumm sló á þráðinn til Jóhanns sem var á Eyrarbakka að verða sér úti um réttindi til að stýra kakóathöfnum þegar samtalið fór fram. „Bestur er eins og að vera heima að slaka á...
MenningUngt fólk sýnir listir sínar í miðbænum á sautjánda júní Listhópar og götuleikhús Hins Hússins standa fyrir sautján POP-up viðburðum á höfuðborgarsvæðinu á 17. júní. Á boðstólnum verður dans, söngur, gjörningar, sirkus og innsetningar og flottir götuleikarar sýna listar sínar. Með öðrum orðum verður eitthvað í boði fyrir alla á þjóðhátíðardaginn. Nánari upplýsingar um dagskrána, tímasetningar og staðsetningar má finna hér.
MenningBannað að vera fáviti Hljómsveitin Labrab sem er skipuð þeim Viðari Hákoni Gíslasyni og Ólafi Hjördísarsyni Jónssyni var að senda frá sér lagið Wichita. Félagarnir hafa verið viðloðandi tónlist um árabil og stefna á að senda frá sér kassettu í sumar og plötu með haustinu en er illa við að skilgreina tónlistina á ákveðinn hátt. „Björk sagði einu sinni að það væri fínt að...
Menning„Mig langaði til að reyna að impónera hina plötunördana” Boogie Mixx serían fæddist 2008 á SoulStrut.com sem er spjallborð plötusafnara sem plötusnúðurinn og öðlingurinn Árni Kristjánsson aka Mondeyano sótti mikið. „Mig langaði til að reyna að impónera hina plötunördana með plötum sem ég hafði sankað að mér. Eftir það komst það í vana að henda í nýtt mix sirka árlega, sem eins konar persónuleg uppskeruhátíð eftir mikinn plötugröft.” Núna...
MenningEndanleg útgáfa varð til í samkomubanni Tónlistarmaðurinn og plötusnúðurinn Haraldur Ragnarsson, a.k.a. KrBear, var að senda frá sér lagið Holy Diaz.
MenningByrjuðu ferilinn í kjallara í Hafnarfirði Félagarnir Ragnar Jón Ragnarsson og Helgi Egilsson hafa undir nafninu Urmull & Kraðak gefið út lagið One Eyed Jack. Lagið fjallar um Jack, sem ríður inn á mójörpum hesti, segir „fokkit“ og skrifar svo óaðfinnanlegan status á samfélagsmiðil. Það fjallar líka um að gefast ekki upp eða missa vonina.
MenningNý íslensk gamanmynd um uppistand Mentor, ný kvikmynd leikstjórans Sigurðar Antons Friðþjófssonar, verður frumsýnd í Senubíóunum þann 24. júní. Myndin er gamanmynd og fjallar um unga stúlku sem skráir sig í uppistandskeppni þótt hún hafi aldrei stigið á svið og leitar til uppistandarans sem vann keppnina tíu árum fyrr um aðstoð. Myndband
MenningHaki gefur út lag ásamt Bubba Morthens Tónlistarmaðurinn Haki sendi á dögunum frá sér nýtt lag, Flýg. Í laginu notar Haki brot úr lagi Bubba Morthens, Velkomin, af plötunni Regnbogans stræti sem Bubbi gaf út í ágúst í fyrra.