2 Pólitík „Ef það má bjóða einhverjum biturð og kvenfyrirlitningu, endilega lesið Moggann í dag“
MenningCovid-19Courteney Cox hámhorfir á Friends í einangruninni Leikkonan Courteney Cox, sem eins og allir vita lék hina ráðríku og hreinlætisóðu Monicu Geller í Friends-þáttunum vinsælu, er nú í einangrun heima hjá sér vegna kórónaveirufaraldursins og segist hafa ákveðið að stytta sér stundir í einangruninni með því að horfa á allar tíu þáttaraðirnar af hinum geysivinsælu Friends-þáttum og þeir séu bara ansi góðir. Myndband
MenningÚtsending út í tómið Hljómsveitin Grísalappalísa kom sem stormsveipur inn í íslenskt tónlistarlíf árin 2013 og 2014 með plötunum Ali og Rökréttu framhaldi. Eftir langt og strangt sköpunarferli hefur Týnda rásin, þriðja breiðskífa sveitarinnar, litið dagsins ljós. Að sögn sveitarinnar er platan bylgjulengdin sem enginn stillir á, „útvarpsstöðin sem er falin á tíðni sem þú nærð ekki sambandi við, útsending út í tómið. Hún...
MenningFannst hann búinn að vera Tónlistarmaðurinn Bergþór Smári, eða Beggó eins og hann er iðulega kallaður, var að senda frá sér lagið Einnar nætur gaman. „Ég gaf lagið fyrst út árið 2011, heima í Skagafirði, eftir að það var valið besta frumsamda lagið í undankeppni Söngkeppni framhaldsskólanna á Sauðárkróki,“ segir hann.
MenningRapparinn Kilo sendir frá sér plötuna Heart of Gold Rapparinn Kilo, öðru nafni Garðar Eyfjörð Sigurðsson, var að senda frá sér sína þriðju plötu en hún ber heitið Heart of Gold. Platan er virkilega þétt, að mati Albumm, enda Kilo einn af okkar fremstu röppurum.
MenningFimm uppáhaldsplötur Dj Kára Kári Þór Arnþórsson er einn helsti plötusnúður landsins en hann hefur þeytt skífum á öllum helstu stöðum bæjarins frá því snemma á tíunda áratugnum. Dj Kári, eins og hann er oftast kallaður, hefur komið víða við en hann vann lengi vel í hinni sálugu plötuverslun Hljómalind sem Kiddi kanína átti og rak.
MenningAfrek að vera ekki laminn Tónlistarmaðurinn Daníel Hjálmtýsson, sem margir kannast við úr sveitinni HYOWLP sem náði vinsældum með laginu Afterglow árið 2018, var að senda frá nýtt lag, Treehouse. Lagið er hluti af plötu sem Daníel er með í smíðum og er væntanleg í kringum tónlistarhátíðina Airwaves, en í laginu þykir hann sýna á sér nýja hlið.
MenningBöddi Reynis snýr aftur eftir 10 ára hlé Tónlistarmaðurinn Böddi Reynis var að senda frá sér glænýtt lag undir eigin nafni eftir 10 ára hlé frá útgáfu. Fyrsti singúllinn ber heitið Þessi tár og hefur fengið góðar viðtökur. Böddi sendi frá sér sólóplötu árið 2009 sem heitir So Simple, en hún kom út á Spotify á 10 ára afmæli plötunnar fyrir síðustu jól. Flestir muna eftir honum sem...
MenningVök og Auður hlutu flest verðlaun Vök, Auður, Hildur Guðnadóttir, Kristín Anna, Grísalappalísa, Páll Ragnar Pálsson, Ásta og Ingi Bjarni Skúlason voru meðal vinningshafa á uppskeruhátíð Íslensku tónlistarverðlaunanna sem haldin voru á miðvikudagskvöldið sem leið.
MenningPlata, tónleikar og myndband Tónlistarkonan Jófríður Ákadóttur, eða JFDR, var að senda frá sér nýja plötu sem nefnist New Dreams. New Dreams er önnur sólóplata Jófríðar sem sendi síðast frá sér plötuna Brazil sem kom út árið 2017 og hlaut frábærar viðtökur. Fyrr í vikunni kom út myndband við lag hennar Shimmer, sem var tekið upp í Osaka í Japan á síðasta ári þegar...
MenningVar búinn að skrifa kveðjubréfið Rokkhljómsveitin Casio Fatso var að senda frá sér sína fjórðu plötu, Last Album Before I Die. Platan varð til í kjölfar þess að söngvari sveitarinnar Sigursteinn Ingvar Rúnarsson fékk hjartaáfall síðasta sumar þegar hann var í útileigu með fjölskyldunni. Hann vann plötuna meðan á endurhæfingu stóð og var á tímabili ekki viss um að honum tækist að klára ætlunarverkið. „Þótt...
MenningSænsk-íslenski tónlistarmaðurinn Freyr Flodgren gefur út nýtt lag Sænsk-íslenski tónlistarmaðurinn Freyr Flodgren (Rögnvaldsson) komst á samning hjá Nettwerk Music Group í fyrra eftir að hafa á eigin spýtur gefið út lögin Over My Head og I‘m Here, en lögin vann hann í samstarfi við Tyler Neil Johnson sem hefur unnið með tónlistarmönnunum Joshua Hyslop, Austin Basham, Otha og fleirum. Myndband
MenningIngibjörg Elsa og sveit með tónleika í Hörpu Ingibjörg Elsa Turchi blæs til tónleika í Kaldalóni í Hörpu ásamt hljómsveit sinni þann 27.mars Á efnisskránni verður endurunnin tónlist af plötu hennar Wood/Work, sem kom út árið 2017 hjá SMIT records, í bland við nýtt óútgefið efni og spuna. Á vormánuðum er svo væntanleg ný plata sveitarinnar á vegum Reykjavik Record Shop en sveitin hljóðritaði hana síðasta haust.