Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Afrek að vera ekki laminn

Tón­list­ar­mað­ur­inn Daníel Hjálmtýs­son, sem margir kann­ast við úr sveit­inni HYOWLP sem náði vin­sældum með lag­inu Afterglow árið 2018, var að senda frá nýtt lag, Treehouse. Lagið er hluti af plötu sem Daníel er með í smíðum og er vænt­an­leg í kringum tón­list­ar­há­tíð­ina Airwaves, en í lag­inu þykir hann sýna á sér nýja hlið.

Afrek að vera ekki laminn

„Þetta lag kall­ast á við lagið Birds, sem ég sendi frá mér í jan­úar. Það lag snérist um bar­áttu í myrk­inu og í því not­að­ist ég tölu­vert við strengi, hljóð­gervla og keyrslu. Treehouse er létt­ara og ljúfara þjóð­legt popp með fókus á ást og þakk­læti fyrir það liðna. Ég ákvað að gefa lagið út á vor­jafn­dægrum af því að fyrir mér táknar það sól­ar­upp­rás og yl eftir kalda og dimma nótt. Þetta er án efa bjartasta lagið sem hefur heyrst frá mér hingað til,“ segir Daníel um nýja lagið.

Hann segir að það hafi tekið á sig mynd síð­asta sumar. „Ég og Bjarni í Mínus vorum að spila útlaga­kán­trýtón­list hér og þar, eins og við höfum verið að gera af og til síð­ustu ár, oftar en ekki í slag­togi við Krumma. Strák­arnir hvöttu mig til að klára það, en ég samdi lag og texta og syng inn allar raddir, spila á nokkra kassagít­ara, leik á píanó og slag­verk en þar hjálpar Skúli mér líka. Hálfdán sér svo um að negla inn bass­ann eins og áður. Einar Vilberg sá um upp­tökur, hljóð­blöndun og jöfnun í Hljóð­verki og Bjarni skreytti lagið aðeins, eins og heyr­ist svo vel og fal­lega.“

Rekinn fyrir stjórnsemi

Daníel, sem er upp­al­inn í Fella­hverf­inu í Breið­holti, seg­ist snemma hafa fengið áhuga á tón­list. „Ég söng og dans­aði sem krakki fyrir fjöl­skyldu og vini og byrj­aði að fram­kalla hljóð með bad­mint­on­spöðum, Machintosh-dollum og öðru dóti sem ég fann þar til ég fékk gef­ins leik­fanga­hljóð­færi. Þá var ég sendur í Rokklinga­skól­ann sál­uga, tón­list­ar­skóla og barna­kóra,“ rifjar hann upp og seg­ist svo hafa stofnað fyrsta bandið sitt, Ein­angrun, í bíl­skúr í Fellunum eftir að hafa fengið gítar að gjöf þegar hann var 10 ára. Á end­anum hafi hann hins vegar verið rek­inn úr sveit­inni fyrir stjórn­semi.

„Það var mikil „tra­gedía“ á þeim tíma en í dag finnst okkur þetta vera stór­kost­lega fyndið. Ég ætl­aði mér að sigra heim­inn en menn voru ekki alveg að nenna svo­leiðis stælum þar og þá,“ útskýrir hann og hlær. „Við spil­uðum samt okkar fyrsta og eina gigg saman á busa­balli 8. bekkjar í Fella­skóla og vorum ekki lamdir eftir á – sem var afrek í þá daga.“

„Það var mikil „tra­gedía“ á þeim tíma en í dag finnst okkur þetta vera stór­kost­lega fyndið.“

Breiðskífa í bígerð

Talandi um það þá hef­urðu komið víða við á ferl­inum og t.d. staðið fyrir vin­sælum ábreiðutón­leikum til heið­urs ýmsum tón­list­ar­mönnum, þ.á m. Leonard Cohen. Ertu mik­ill Cohen-aðdá­andi? „Cohen kom til mín þegar ég var ung­lingur og átti bágt og hefur ekki farið frá mér síðan,“ segir hann, „þannig að ég neita því ekki að hann hefur haft mikil áhrif á mig sem skáld, tón­smiður og hugs­andi maður. Ég og hljóm­sveitin mín settum upp tón­leika til heið­urs honum fyrir þremur árum og þeir urðu að tón­leika­seríu sem virð­ast engan endi ætla að taka. Það er alltaf upp­selt á þá og alltaf jafn­gaman.“

En hvað með þína eigin tón­list, hvað er fram undan hjá þér? „Núna er ég bara að setja saman band fyrir lif­andi flutn­ing á efn­inu. Við ætlum að nýta vorið í æfingar og sum­arið í tón­leika­hald og svo stendur til að gefa út eina smá­skífu til við­bótar í júní og EP-plötu í kringum Iceland Airwaves. Síðan erum við að skoða ein­hver víd­eó­verk og fleira spenn­andi en það er það sem gerir þetta svona skemmti­legt, þetta frelsi sem ég upp­lifi í tón­list­inni. Mér líður best þegar ég hef frelsi til að semja og spila það sem ég vil, en ekki það sem ég held að aðrir vilji. Alveg eins og tón­list á að vera.“

Texti / Sigrún Guðjohn­sen

Mynd / Karl Sig­trygg­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Menning

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar