Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Var búinn að skrifa kveðjubréfið

Var búinn að skrifa kveðjubréfið

Rokk­hljóm­sveitin Casio Fatso var að senda frá sér sína fjórðu plötu, Last Album Before I Die. Platan varð til í kjöl­far þess að söngv­ari sveit­ar­innar Sig­ur­steinn Ingvar Rún­ars­son fékk hjarta­á­fall síð­asta sumar þegar hann var í úti­leigu með fjöl­skyld­unni. Hann vann plöt­una meðan á end­ur­hæf­ingu stóð og var á tíma­bili ekki viss um að honum tæk­ist að klára ætl­un­ar­verkið.

„Þótt mark­miðið hafi auð­vitað alltaf verið að verða góður lík­am­lega og svo­leiðis þá var mikil gul­rót í öllu þessu ferli að hafa að ein­hverju að stefna, að geta hellt sér út í verk­efni sem er manni svona hjart­fólgið,“ segir Sig­ur­steinn, þegar hann er spurður hvernig það hafi verið að vinna plöt­una í miðri end­ur­hæf­ingu.

„Lungun og hjartað voru reyndar ekki alveg upp á sitt besta,“ við­ur­kennir hann. „Hægri kransæðin, sem sér lung­unum fyrir miklu súr­efni, var alveg lokuð og þar af leið­andi var tví­sýnt að ég gæti beitt rödd­inni eins og ég þurfti. Enda var ég líka hálf­and­stuttur, svona til að byrja með og vissi í raun­inni hrein­lega ekki alveg hvort ég gæti klárað plöt­una. En lík­am­inn er ótrú­legur. Hann náði að aðlaga sig að þessu ástandi, þannig að maður fór smám saman að þora meiru og á end­anum hafð­ist þetta, sem betur fer.“

Plötuna tók Sig­ur­steinn upp í eigin stúd­íói, Spiderstudios, þar sem hann seg­ist geta verið einn og gert tón­list­ina sína í friði. „Konan mín hringdi reyndar reglu­lega í mig til að athuga hvort ég væri enn á lífi, þannig að ég útbjó leið­bein­ingar fyrir hana um hvernig ætti að hlaða upp lög­unum sem voru til­búin, svona ef ske kynni að ég myndi deyja áður en platan væri klár,“ segir hann og kímir.

„Ég skrif­aði líka niður skila­boð til krakk­anna minna sem var gríð­ar­lega átak­an­legt.“

Text­arnir á plöt­unni eru væg­ast sagt per­sónu­legir, því sumir þeirra inni­halda loka­kveðjur Sig­ur­steins til fjöl­skyldu hans og vina. „Ég skrif­aði líka niður skila­boð til krakk­anna minna sem var gríð­ar­lega átak­an­legt. En það er svona þegar maður áttar sig á eigin dauð­leika og hvað er mik­il­vægt í raun og veru í þessu hel­vítis lífi.“

Sig­ur­steinn tekur þó fram að þrátt fyrir alvar­legan und­ir­tón og vissa auð­mýkt í text­unum þá sé aldrei langt í fjörið á plöt­unni. „Það er enn þá sama rokkið,“ segir hann, með vísan í fyrri plötur sveit­ar­innar, „en það er meiri kassagítar en áður og meira um strengi og kór.“ Þá seg­ist hann loks hafa tekið upp á því að semja lag til­einkað móður sinni, eftir að hafa samið nokkur handa föður sínum. „Þá vildi svo til að ég hitti akkúrat á lag þar sem ég þen radd­böndin helst til of mikið fyrir hennar smekk,“ segir hann og skellir upp úr.

En hvernig hefur hann það í dag? Lítur hann lífið öðrum augum eftir þetta? „Þetta var auð­vitað mikið inn­grip, maður þurfti að staldra við og líta inn á við. Ég var nátt­úr­lega í vernd­uðu umhverfi á Reykja­lundi, umkringdur frá­bæru starfs­fólki, þannig að ég er á góðum stað and­lega. Nú stefni ég bara á að kom­ast í mitt besta lík­am­lega form síðan á mennta­skóla­ár­unum,“ segir hann og er greini­lega bjart­sýnn á að það tak­ist.

Platan er nú komin á allar helstu streym­isveitur og það er því ekki úr vegi að spyrja í lokin hvort það standi til að fylgja henni eftir með tón­leika­haldi? „Það er ekk­ert planað,“ segir hann, „en ég er opinn fyrir öllu.“

Texti / Sigrún Guðjohn­sen
Mynd / Elísabet Stef­áns­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Menning

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar