O (Hringur) eftir Rúnar Rúnarsson valin til keppni í Feneyjum: „Ingvar er alveg ótrúlegur“
Á blaðamannafundi klukkan tíu í morgun tilkynnti Alberto Barbera, listrænn stjórnandi hinnar virtu kvikmyndahátíðar í Feneyjum, fyrstu myndirnar sem hafa verið valdar fyrir komandi hátíð í haust. Nýjasta stuttmynd leikstjórans Rúnars Rúnarssonar, O (Hringur), með Ingvari Sigurðssyni í aðalhlutverki, var valin til að keppa um aðalverðlaun stuttmyndakeppninnar í Feneyjum. Rúnar Rúnarsson.Mynd: Aðsend O er ljóðræn frásögn af manni sem vill...