Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Karl Ágúst er hættur að horfa á fréttir: „Það hentar mér alveg prýðilega“

Karl Ágúst er hættur að horfa á fréttir: „Það hentar mér alveg prýðilega“
Karl Ágúst Úlfsson Mynd: Þjóðleikhúsið

Karl Ágúst Úlfsson er alveg hættur að fylgj­ast með frétt­unum og líður bara vel með það.

Lista­mað­ur­inn ást­sæli, Karl Ágúst Úlfsson rifjar upp í nýlegri Facebook-færslu atriði sem hann samdi og flutti í Ára­mótaskaup­inu 1986. Í atrið­inu rappar Karl Ágúst ádeilu á fjöl­miðla­æði Íslend­inga.

„Nú eru umtals­verðir ára­tugir síðan ég samdi og flutti þetta atriði í Ára­mótaskaupi. Þá fannst mér það fjöl­miðla­fár og -della sem ríkj­andi var skrambi hlægi­leg og eig­in­lega svo­lítið ógn­vekj­andi. Ekki gat mig grunað að fáeinum árum seinna ætti ég ekki ann­arra kosta völ en að fylgj­ast óhemju­lega náið með öllum fjöl­miðlum lands­ins svo engin ein­asta frétt eða við­burður færi fram­hjá mér. Og þið megið giska á ástæð­una fyrir því.“

Segir Karl Ágúst að hann hafi senni­lega skað­ast af því að fylgj­ast svona náið með öllum fréttum, bæði lík­am­lega og and­lega.

„Þetta hlægi­lega og ógn­vekj­andi sett­ist sumsé að í heila­bú­inu og þar með líka ljóð­línan „Ég er að missa vitið.“ Ég missti kannski ekki vitið – ekki alveg og ekki end­an­lega – en ég hef grun um að fjöl­miðla­yf­ir­legan hafi skaðað mig á ýmsan hátt, lík­am­legan og and­legan, sem ég ætla ekki að ræða frekar hér og nú.“

Að lokum seg­ist Karl Ágúst vera nán­ast alveg hættur að fylgj­ast með fréttum.

„En nú er ég sumsé nán­ast hættur að fylgj­ast með fréttum. Af og til fæ ég mína nán­ustu til að end­ur­segja mér helstu tíð­indin af póli­tík, sam­fé­lagi og umheimi. Við veltum þeim kannski fyrir okkur saman svolitla stund og leiðum svo talið að öðru. Skömmu síðar er ég yfir­leitt búinn að gleyma því hvað sé að frétta. Það hentar mér alveg prýði­lega.“

Hér má sjá hið stór­kost­lega rapppönk atriði Karls Ágústs:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu