Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

O (Hringur) eftir Rúnar Rúnarsson valin til keppni í Feneyjum: „Ingvar er alveg ótrúlegur“

O (Hringur) eftir Rúnar Rúnarsson valin til keppni í Feneyjum: „Ingvar er alveg ótrúlegur“
Ingvar E. Sig­urðs­son Mynd: Aðsend

Á blaða­manna­fundi klukkan tíu í morgun til­kynnti Alberto Barbera, list­rænn stjórn­andi hinnar virtu kvik­mynda­há­tíðar í Feneyjum, fyrstu mynd­irnar sem hafa verið valdar fyrir kom­andi hátíð í haust.

Nýjasta stutt­mynd leik­stjór­ans Rúnars Rún­ars­sonar, O (Hringur), með Ingvari Sig­urðs­syni í aðal­hlut­verki, var valin til að keppa um aðal­verð­laun stutt­mynda­keppn­innar í Feneyjum.

Rúnar Rún­ars­son.

O er ljóð­ræn frá­sögn af manni sem vill standa sig en hans helsta hindrun er hann sjálfur.

Verður þetta í átt­ug­asta og fyrsta skiptið sem þessi árlega kvik­mynda­há­tíð fer fram sem gerir hana af einni þeirri elstu í heim­inum. Á hverju ári bít­ast tvær virt­ustu kvik­mynda­há­tíðar heims, Feneyjar og Cannes, að frum­sýna helstu myndir árs­ins. 

Það hefur verið skammt stórra högga á milli hjá Rúnari í ár en í vor frum­sýndi hann kvik­mynd­ina LJÓSBROT sem opn­un­ar­mynd á Kvik­mynda­há­tíð­inni í Cannes og hlaut myndin stand­andi lófa­klapp áhorf­anda í fimm mínutur sem og frá­bæra dóma kvik­mynda­gagn­rýnenda. Til að mynda hafa helstu kvik­mynda­tíma­rit heims­ins, Hollywood Reporter og Screendaily, sett Ljósbrot á sína lista yfir bestu mynd­irnar á þess­ari Cannes hátíð.

Leik­stjór­inn og leik­arar Ljós­brots á rauða dregl­inum.

Rúnar á blaða­manna­fund­inum:

„Við erum nátt­úru­lega voða­lega ánægð með þennan heiður sem mynd­irnar okkar hefur hlotið. Þetta er mikið til sama fólkið sem er á bak­við mynda­vél­ina sem kemur að bæði O og Ljósbrot. Við erum ótrú­lega stolt af og þakk­lát þessu fólki. Þessi veg­ferð sem O og Ljósbrot eru á, eru einnig gríða­leg við­ur­kenn­ing fyrir Íslenska kvik­mynda­gerð. Fyrir það mikla starf sem stjórn­völd og einka­að­ilar hafa unnið und­an­farin ár.“

Heather Millard fram­leið­andi:

„Okkur hlakkar til að frum­sýna mynd­irnar heima á Íslandi. Við byrjum á Ljósbrot um miðjan ágúst, í sam­starfi við Sambíóin. Þó að myndin hafi verið að fá upp­hefð erlendis að þá erum við að gera mynd fyrir íslenska áhorf­endur, mynd sem ger­ist í íslenskum veru­leika. Húmor flyst ekki alltaf á milli landa. Við erum svo­lítið spennt að heyra hversu mikið íslend­ingar hlæja og hvar, miðað við áhorf­endur í Cannes.“

Rúnar:

„Skil­málar stóru hátíð­anna eru að þar séu heims­frum­sýn­ingar. Þannig að eftir Feneyjar í byrjun sept­em­ber að þá munu mynd­irnar vera sýndar saman í ákveðnum kvik­mynda­húsum. Íslend­ingar vita hversu góður leik­ari Ingvar Sig­urðs­son er þannig að það er svo sem ekk­ert nýtt. En hann er alveg ótrú­legur í þess­ari mynd. Ein hans besta framistaða, ef ekki sú besta.“

O er fjórða stutt­mynd Rúnars sem vekur athygli á heims­vísu. 

Hinar þrjár eru Kross­götu þrí­leik­ur­inn (Síðasti bær­inn, Smá­fuglar og Anna) sem hlutu um eitt­hund­rað alþjóð­leg verð­laun og fengu einnig ýmsar aðrar við­ur­kenn­ingar. Til að mynda var Síðasti bær­inn til­nefndur til Ósk­arsverð­launa árið 2006. Eftir Rúnar liggja einnig kvik­mynd­irnar; Eldfjall, Þrestir, Bergmál og Ljósbrot, sem hafa verið valdar á sumar af helstu kvik­mynda­há­tíðum heims og unnið til fjöldan allan af verð­launum.

Upp­lýs­ingar um O:

Aðal­hlut­verk: Ingvar Sig­urðs­son

Leik­stjóri & Hand­rits­höf­undur: Rúnar Rún­ars­son

Fram­leið­andi:
Heather Millard, Rúnar Rún­ars­son

Með­fram­leið­endur:
Siri Hjorton Wagner
Jenny Luukkonen, Film i Väst
Val­ent­ina Chamorro Westergårdh, SVT

Yfir­fram­leið­endur:
Claudia Hausfeld
Þórður Jónsson
Mike Downey
Lilja Ósk Snorra­dóttir

Stjórn kvik­mynda­töku: Sophia Olsson
Tónlist: Kjartan Sveins­son
Hljóð­hönnun: Jesper Miller
Bún­inga­höf­undur: Helga Rós Hannam

Leikmynd: Hulda Helga­dóttir                                                                                          

Leik­gervi: Ásta Haf­þórs­dóttir

Fram­leiðslu­fyr­ir­tæki: Compass Films, Halibut

Með­fram­leiðslu­fyr­ir­tæki: [sic] film, Film i Väst og SVT

Sölu- og dreif­ing­ar­fyr­ir­tæki erlendis: The Party Film Sales

Styrkt af kvik­mynda­mið­stöð Íslands og Sænsku Kvik­mynda­mið­stöð­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu