Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Menning

Ris og fall Krumma

Fólk

Flug­freyja afhjúpar 15 hluti sem þú ættir aldrei að taka með í flug

Innlent

Hljóð­upp­tökur komu verk­stæði í Garðabæ í koll

Innlent

„Mig bara langar ekki í saur­gerla­bað“

Fólk

Selja fal­legt fjöl­skyldu­hreiður með heitum potti og stórum garði

Heimur

Hundruð reyndu að færa fræga lista­verkið til að bjarga manni

Heimur

Sam­göngu­yf­ir­völd rann­saka hesta­ferð í stræt­is­vagni

Fólk

Átta algeng mis­tök sem gælu­dýra­eig­endur gera

Heimur

Kenn­ingar uppi um að geim­skip hafi stöðvað flug­um­ferð í Banda­ríkj­unum

Innlent

Ísland sett í frystikist­una næstu daga

Grétar Matt lét áratuga draum rætast

„Þegar ég las text­ann, brotn­aði ég alger­lega saman“

Grétar Matt
Grétar Matt „Þetta var áminn­ing um að draumar ræt­ast ef maður hefur trú á sér“ Mynd: Að

Unbr­eaka­ble er fyrsta breið­skífa tón­list­ar­manns­ins Grétars Lárusar Matth­í­as­sonar sem not­ast við tón­list­ar­nafnið Grétar Matt, þar sem hann dregur saman ára­tuga­langa ástríðu sína fyrir tón­list og inni­heldur hún sam­tals 12 lög sem eru bæði per­sónu­legar og sterkar sögur. Fram kemur í frétta­til­kynn­ingu að platan sé afrakstur mik­illar vinnu, minn­inga og krafts. Sum lag­anna spruttu fram á rólegum sum­ar­dögum, önnur úr sárs­auka­fullum minn­ingum.

Rokk og rólUnbr­eaka­ble er fyrsta breið­skífa Grétars.

„Þetta hefur verið draumur í mörg ár,“ segir Grétar sem hefur spilað á gítar frá barns­aldri. Hann var í tón­list­ar­skóla á ung­lings­árum í Grinda­vík og færði sig til Reykja­víkur í tveggja ára tón­list­ar­nám hjá FÍH.

Fram kemur í frétta­til­kynn­ing­unni að hann hafi alla tíð verið að semja gít­ar­riff og meló­díur en gaf sér aldrei tíma til að klára þau fyrr en núna. Það var ekki fyrr en í ágúst 2022 þegar eig­in­kona hans Karen Dögg gaf honum fjóra stúdíó tíma hjá Stúdíó Paradís í afmæl­is­gjöf, sem verk­efnið fór af stað fyrir alvöru. Að því er fram kemur í frétta­til­kynn­ing­unni áttu tím­arnir að vera nóg til þess að taka upp eitt heilt lag mögu­lega en þegar hann vissi af þessum tíma kvikn­aði í sköp­un­ar­kraft­inum og áður en hann vissi var hann mættur í stúd­íóið með þrjú lög til­búin og gaf út sína fyrstu smá­skífu í febr­úar 2023. Það losn­aði um eitt­hvað í sköp­un­ar­kraft­inum og ný lög fóru að fæð­ast. „En bara að fá þetta spark í rass­inn og vita að ég ætti tíma í hljóð­veri opn­aði ein­hverja flóð­gátt,“ segir Grétar.

Sögurnar á bak við lögin per­sónu­legar

Á plöt­unni má finna lög sem end­ur­spegla lífs­hlaup Grétars bæði áföll og gleði­stundir. Platan er fjöl­breytt í tón­list­ar­stíl en hefur rokk sem grunn­stef.

Lagið‚ barnið mitt fjallar um barns­missi sem hann fór í gegnum árið 2008 þegar hann missir aðra tví­bura­dóttir sína, Elsu Björt aðeins viku gamla „Þetta er sorg sem fylgir mér alla tíð,“ segir hann.

Texti lags­ins er eftir Kristínu Matth­í­as­dóttur systur Grétars sem samdi text­ann eftir heil­un­ar­stund með honum. „Þegar ég las text­ann, brotn­aði ég alger­lega saman,“ segir Grétar. „Það var eins og text­inn tal­aði beint úr mínu hjarta“.

Enn­fremur kemur fram í frétta­til­kynn­ing­unni að tit­il­lagið Unbr­eaka­ble sé til­einkað annarri systur Grétars, Laufeyju sem greind­ist með blóð­krabba­mein árið 2021. Grétar pass­aði sem stofn­frumu­gjafi fyrir hana og lagið varð til á hót­el­her­bergi í Svíþjóð í því ferli og var þetta lag samið fyrir hana á meðan á gjafa­ferl­inu stóð, þegar hún barð­ist við krabba­mein. „Hún hafði verið beygð en ekki brotin, því hún er „Unbr­eaka­ble“. Hún er laus við krabba­meinið í dag,“ útskýrir Grétar.

Grétar MattPlatan er mjög per­sónu­leg.

Lögin Under a Heavy Stone og Life Sets In urðu til á sama tíma og var það á sól­ríkum degi á pall­inum, að því er fram kemur í frétta­til­kynn­ing­unni. Under a Heavy Stone er ákveðin úrvinnsla úr for­tíð­inni. Lagið Life Sets In er áminn­ing um hvað lífið er dásam­legt og nefnir hann hvernig gróð­ur­inn er að taka við sér og tján­ing á hvernig lífið er að kvikna eftir vetr­ar­dval­ann, eins og það er orðað í frétta­til­kynn­ing­unni.

Lagið Welcome to the show fæð­ist eftir heim­sókn og upp­lifun á rokk­há­tíð í Belgíu. „Þetta var mögnuð upp­lifun. Ég kom heim yfir mig pepp­aður og samdi lagið Welcome to the show sem fangar stemm­ing­una á rokk­há­tíð. Allir ættu að upp­lifa slíka orku,“ segir hann.

Loka­hnykk­ur­inn á Karolina Fund

Þegar ljóst var að platan væri að taka á sig mynd þurfti Grétar að leita leiða til að fjár­magna verk­efnið. Hann leit­aði í styrki en fékk enga úthlutun. Í stað þess að láta deigan síga ákvað hann að setja af stað söfnun á Karolina Fund, sem fékk mik­inn stuðn­ing. „Það var magnað að sjá hversu margir stóðu með mér. Þetta var áminn­ing um að draumar ræt­ast ef maður hefur trú á sér,“ segir Grétar. Hann er óend­an­lega þakk­látur fyrir fólkið sem lögðu verk­efn­inu lið.

Plötuna er hægt að hlusta á hér

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ökumenn í vímu og slags­mál í mið­bænum

Gangandi vegfarandi varð fyrir bíl en slapp með minniháttar meiðsli
Skoðun
Brynjar Birgisson

Það er ekki nægur mennta­hroki á Íslandi

Brynjar Birgisson
Heimur

Ók á hóp fólks og varð tveimur að bana en sleppur við ákæru

Heimur

Fimmtán ára drengur frá Palest­ínu laus úr fang­elsi í Ísrael

Innlent

Halldóra hæf­ari en Björn og Sigríður Elsa

Menning

Menning

Martröð í Mið­húsa­skógi

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Dóttir.x til­nefnd til Music Moves Europe-verð­laun­anna 2027

Menning

Ein besta rapp­sveit Íslands­sög­unnar snýr aftur á svið

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian