SlúðurIngó Veðurguð og fingurinn Ingólfur Þórarinsson, eða Ingó veðurguð, skrifaði pistil á dögunum þar sem hann þvertók sem fyrr fyrir ásakanir sem á hann hafa verið bornar af konum. Hann vísaði meðal annars til fámenns áróðurshers og að hafa verið hent undir lestina. Ingólfur sagðist í pistlinum vera í senn breyskur og mistækur maður. Í því samhengi talaði hann um að vera sekur um...
SlúðurBjörn Ingi stríðsfréttaritari Björn Ingi Hrafnsson á Viljanum hefur marga fjöruna sopið undanfarin ár. Hann á að baki gjaldþrot og tröppugang í lífinu sem flestum þætti nóg um. Hann má þó eiga það að hann rís upp jafnharðan og hann hefur fallið til jarðar. Sú seigla hans að mæta á mörg hundruð blaðamannafundi Þríeykisins svonefnda, hefur vakið athygli og sumpart aðdáun. Nú hefur...
SlúðurBjarni og gullkálfarnir Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra er í vörn vegna skyndiútboðisins á bréfum í Íslandsbanka. Almenningi kom útboðið á óvart en það var það leynilegt og einungis fyrir valda fjárfesta sem fengu afslátt frá markaðsverði. Það stingur í augu að þrír gullkálfanna sem sem nutu hlunnindanna eru tengdir Íslandsbanka og því með betri stöðu en aðrir til að átta sig á verðmæti og...
SlúðurVilja taka Friðjón niður Ólgan vegna úrslitanna í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík heldur áfram. Listinn er einstakur að því leyti að Hildur Björnsdóttir, kjörinn foringi, er umsetin andstæðingum sínum sem eru í næstu fjórum sætum á eftir henni. Nú eru uppi raddir um að Friðjón Friðjónsson, sem situr í 6. sæti listans, verði færður úr baráttusætinu og neðar á listann. Það er raunhæft vegna...
SlúðurRíkidæmi Hildar og Valhöll skelfur Ólga er innan Sjálfstæðisflokksins vegna niðurstöðunnar í prófjöri flokksins um liðna helgi. Listinn, með Hildi Björnsdóttur, í forystusætinu þykir ólíklegur til að vinna sigra í vor. Þá ferð það fyrir brjóst eldri sjálfstæðismanna og þeirra íhaldssamari að Hildur og maður hennar, Jón Skaftason, eru í vinfengi við höfuðfjanda flokksins, Jón Ásgeir Jóhannesson athafnamann og eiga í samvinnu um eignarhald á...
SlúðurDrífa og koníaksklúbburinn Átökin innan verkalýðshreyfingarinnar eru að nálgast suðumark og klofningur er augljós. Hinir róttæku leiðtogar á borð við Sólveigu Önnu Jónsdóttur, formann Eflingar, Vilhjálm Birgisson, formann Verkalýðsfélags Akraness og Ragnar Þór Ingólfsson, formann VR hafa lagt til atlögu við Drífu Snædal, forseta Alþýðusambands Íslands, og þann hluta verkalýðshreyfingarinnar sem stundum er nefndur koníaksklúbburinn. Hinum stríðsglöðu þykir sem Drífa og félagar séu...
SlúðurFrímúrarar höfnuðu Ómari Einn umdeildasti lögfræðingur landsins er Ómar Valdimarsson. Hann þykir fara ótroðnar slóðir í lögmennsku sinni og hefur hlotið áminningu úrskurðarnefndar lögmanna fyrir að ofrukka skjólstæðing. Þá hefur Margrét Friðriksdóttir, ritstjóri Fréttin.is, sakað hann um skattsvik með því að taka við svörtum greiðslum. En þótt Ómar sé eflaust meðvitaður um orðspor sitt, þá þráir hann viðurkenningu. Það varð uppi fótur og...
SlúðurLaun Bjarna upp um 8 milljónir Bjarni Bjarnason, forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur, er ekki á flæðiskeri staddur. Hann var með 2,7 milljónir króna í mánaðarlaun, en hækkaði svo í 3,4 milljónir króna. Hækkun launa forstjórans nemur sem sagt 700 þúsund krónum á mánuði eða sem nemur góðum mánaðarlaunum venjulegs manns. Þetta hástökk Bjarna gefur honum yfir átta milljónir króna á ári. Bjarni er einn þeirra forstjóra sem...
SlúðurKristinn óhræddur á RÚV Kristinn Þorsteinsson, skólameistari Fjölbrautarskólans í Garðabæ, mætti galvaskur á Ríkisútvarpið í gærkvöld og gantaðist þar með Elísabet Siemsen, skólameistara Menntaskólans í Reykjavík. Tilefnið var úrslitakeppni skóla þeirra í spurningakeppninni Gettu betur. Það merkilega við heimsókn Kristins er sá kjarkur hans að hitta fyrir starfsfólk RÚV sem sögukennari hans pg samstarfsmaður, Páll Vilhjálmsson, hefur ýmist lýst sem geðsjúkum eða sakað um...
SlúðurLífróður Mörtu Fylkingar Guðlaugs Þórs Þórðarsonar umhverfisráðherra og Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra munu takast á í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík um helgina. Allt stefnir í að Hildur Björnsdóttir nái kosningu í 1. sæti listans og verði þannig leiðtogi í vonlítilli baráttu við Dag B. Eggertsson borgarstjóra og fjölflokkaher hans. Spurningin er fremur hvernig raðast neðar á lista Sjálfstæðisflokksins. Einn öflugasti stuðningsmaður og samherji...
SlúðurRuddaskapur Friðjóns Friðjón Friðjónsson, almannatengill og fyrrverandi aðstoðarmaður Bjarna Benediktssonar, fór flatt í jómfrúarræðu sinni á Alþingi þegar hann uppnefndi þingmenn Samfylkingar, Jóhann Pál Jóhannsson og Kristrúnu Frostadóttur, og kallaði þau krónprinsessu og jóker. Þetta féll í grýtta jörð enda líklega um sögulegan ruddaskap að ræða og þarf að leita aftur til fyrri hluta þingmannstíðar Steingríms J. Sigfússonar, fyrrverandi forseta Alþingis, til...
SlúðurGuðlaugur í hakkavél Þorgerðar Aðild að Evrópusambandinu er nú komin rækilega á dagskrá aftir eftir að Vladimir Putin réðst inn í Úkraínu. Ný skoðanakönnun sýnir að mikill meirihluti kjósenda vill að viðræður um aðild að ESB verði teknar upp að nýju. Rifjað er upp þegar Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, sveik með ófyrirleitnum hætti kosningaloforð sitt um að þjóðaratkvæðagreiðsla yrði um framhald viðræðna Íslands að...