SlúðurSilfur Bergsteins Stjórnendur Ríkissjónvarpsins hafa augljóslega lítinn áhuga á því að gera Silfri Egils Helgasonar hátt undir höfði. Sú aðgerð að láta Egil fara og færa þáttinn af sunnudögum og yfir á síðkvöld mánudags sýnir að þátturinn er orðinn hornreka í veldi Stefáns Eirikssonar útvarpsstjóra. Þátturinn er að formi til eins að því undanskildu að sá þaulreyndi Bergsteinn Sigurðsson var við stjórnvölinn...
SlúðurGrímur og geðlæknirinn Grímur Atlason, framkvæmdastjóri Geðhjálpar, nýtur nokkurar virðingar í störfum sínum í þágu þeirra sem eiga undir högg að sækja vegna andlegra veikinda af ýmsum toga. Ýmsum brá þó í brún þegar Páll Steingrímsson skipstjóri upplýsti í vefsjónvarpi Mannlífs að Grímur hefði pantaða fyrir hann tíma hjá geðlækni í krafti starfstitils síns hjá Geðhjálp. Ekki er vitað til þess að Páll...
SlúðurKynlíf Brynjars Brynjar Níelsson , fyrrverandi alþingismaður, á það til að vera afskaplega hnyttinn. Færslur hans á Facebook þykja vera í senn fyndnar og ósvífnar í sumum tilvikum. „Nú er það svo að maður opnar ekki fjölmiðil án þess að allt snúist um kynlíf og endalaus viðtöl við kynfræðinga, sem ætla má að séu kynlífsfíklar miðað við það sem kemur frá þeim,“...
SlúðurVilli fékk upp í kok Einn áhrifamesti leiðtogi verkalýðs á Íslandi, Vilhjálmur Birgisson á Akranesi, hefur skipt um skoðun og vill krónuna feiga. Vilhjálmur hefur framundir þetta verið grjótharður stuðningsmaður krónunnar en nú þegar verðbólgubálið er að éta upp eignir og sliga heimili er hann kominn með upp í kok. „Nú hef ég skipt um skoðun enda kominn á endastöð með að verja krónuna,“ skrifar...
SlúðurHanna Birna er lekavörn Ein ag áhugaverðari skipun í stjórn átti sér stað á dögunum þegar aðalfundur Justikal var haldinn. Í þriggja manna stjórn var Hanna Birna Kristjánsdóttir, fyrrverandi dómsmálaráðherra, skipuð. Eins og margir muna hraktist hún úr embætti í framhyaldi þess að lekið var ur ráðuneyti hennar upplýsingum um hælisleitandann Tony Omos. Gísli Freyr Valdórsson, aðstoðarmaður Hönnu Birnu tók á sig glæpinn og...
74:50SlúðurPáll fór í hjartastopp Skipstjórinn Páll Steingrímsson hefur staðið í ströngu allt frá því hann missti meðvitund á heimili sínu á Akureyri eftir að hafa drukkið bjór sem fyrrverandi eiginkona hans færði honum. Páll var fluttur á spítala og lenti í hjartastoppi. Hann var fluttur með sjúkraflugi til Reykjavíkur og á Borgarspítalann þar sem bráði af honum. Þá komst hann að því að síminn...
SlúðurBlóðbóndi kærir Ingólf Fréttamenn Ríkissjónvarpsins gætu verið í nokkrum vanda vegna kæru Orra Guðmundssonar bónda á hendur þeim. Orri rekur bú með blóðmerar að Holti undir Eyjafjöllum. Á dögunum varð hann var við dróna sem sveimaði lágt yfir búi hans. Við eftirgrennslan kom í ljós að þar var um að ræða starfsmenn fréttaskýringarþáttarins Kveiks sem að sögn Morgunblaðsins þrættu upphaflega fyrir að hafa...
SlúðurÁföll Svandísar Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra stendur í ströngu þessi misserin. Allt fór í bál og brand innan stjórnarliðsins þegar hún bannaði hvalveiðar örskömmu áður en vertíðin átti að hefjast. Sjálfstæðismenn með Óla Björn Kárason, fráfarandi þingflokksformann, hótuðu að bera upp vantraust á ráðherrann ef hann sæi ekki að sér. Þetta varð til þess að Svandís hopaði og leyfði Kristjáni Loftssyni, aðaleiganda Hvals,...
SlúðurDularfullt skattamál Sigríðar Páll Vilhjálmsson, kennari við Fjölbrautarskólann í Garðabæ og bloggari, stendur í ströngu þessa dagana. Hann hefur kallað yfir sig reiði stjórnenda Ríkisútvarpsins með umfjöllun sinni um „skattsvikamál“ Sigríðar Daggar Auðunsdóttur, umsjónarmanns Kastljóss. Páll fullyrðir að Sigríður hafi leigt út fjórar íbúðir í húsi sínu við Surðurgötu á airbnb án þess að gefa upp tekjur upp á milljónatugi. Þá segir sögukennarinn...
SlúðurEgill fjarlægður Stjórnendur Ríkisútvarpins hafa gripið til þeirrar sparnaðaraðgerðar að fjarlægja Egil Helgason, sjónvarpsmanninn dáða en umdeilda, úr Silfrinu. Egill, sem er 63 ára, hefur stýrt Silfrinu um langt árabil og haft viðkomu á nokkrum sjónvarpsstöðvum. Hann er á meðal dýrari starfsmanna RÚV auk þess að vera þyrnir í augum hægriaflanna í landinu. Margur sjálfstæðismaðurinn telur að kappinn sé hallur undir vinstrið...
SlúðurGunnar vill verða frímúrari Ólga er innan Frímurarareglunnnar vegna væntanlegs nýs félaga sem kjósa skal um á þriðjudaginn komandi. Það flýgur fyrir að Eiríkur Hreinn Helgason , lögreglumaður og meistari stúkunnar Eddu, hafi mælt með því að séra Gunnar Sigurjónsson , fyrrverandi prestur Digraneskirkju, verði frímúrari.Það var í vor sem séra Gunnar var borinn upp í stúkunni Eddu. Gunnari var vikið úr embætti af...
SlúðurSlæmir dagar Ásmundar Ásmundur Einar Daðason, ráðherra framhaldsskóla og barnamála, er í verri málum en undanfarin ár. Ráðherrann hefur notið fádæma hylli vegna afskipta sinna af málefnum barna sem hann hefur fært til betri vegar. Um tíma þótti hann jafnvel vera formannsefni Framsóknarflokksins þegar Sigurður Ingi Jóhannsson hverfur á braut. En nú er hún Snorrabúð stekkur. Frænkur Ásmundar úr Dölunum halda úti hlaðvarpi...