SlúðurJóhann, krónprins Framsóknar Þau tíðindi hafa verið kunngerð að Jóhann H. Sigurðsson, hafi verið ráðinn sem skrifstofustjóri Framsóknarflokksins. Þetta er nokkuð góð staða sem gefur sæmilega í aðra hönd. Því er lýst á vef flokksins að Jóhann hafi verið virkur í starfi Framsóknarflokksins um árabil. Hann er þannig innmúraður og innvígður í flokknum. Svo skemmir ekki fyrir að hann er sonur Sigurðar Inga...
SlúðurÚtrásarvíkingurinn Karl snýr aftur Karl Wernersson athafnamaður hefur gengið um dimma dali og hæstu tinda á ferli sínum sem viðskiptamaður. Hann var um tíma einn af öflugustu útrásarvíkingum landsins og lífið brosti svo sannarlega við honum. Við Hrunið fór hins vegar allt á hliðina hjá honum og spilaborg viðskipta hans hrundi til grunna. Karl gekk í gegnum málaferli, fékk dóma fyrir framgöngu sína og...
SlúðurÓmar í ólgusjó Lögmaðurinn Ómar R. Valdimarsson stendur í stórræðum þessa dagana. Nýverið úrskurðaði Siðanefnd lögmanna að hann hefði gerst brotlegur þegar hann ofrukkaði skjólstæðing sinn um tæpar tvær milljónir króna og hafði þannig af honum slysabætur. Hermt er að annað mál er einnig í pípunum hvað varðar meint brot gegn skjólstæðingi. Lögmaðurinn er einn sá umdeildasti á landinu. Við þetta bætist að...
SlúðurBrynjar svikinn um stól Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir er klókur stjórnmálamaður. Hún upplýsti það í hlaðvarpsþættinum Chat after dark að Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins hefði á sínum tíma tilkynnt sér að hún yrði ekki dómsmálaráðherra eftir afsögn Sigríðar Á. Andersen. Áslaug Arna upplýsir að hún hafi orðið fyrir vonbrigðum enda hafi hún ákveðið að sækjast eftir embættinu. Hún hringdi í föður sinn, Sigurbjörn Magnússon, stjórnarformann...
SlúðurEdda þarf meira Baráttukonan Edda Falak er um það bil að ná því markmiði sínu að safna fyrir lögfræðikostnaði og kostnaði eftir að hún tapaði máli fyrir undirrétti eftir að hafa birt í þætti sínum upptöku af móður að úthúða dóttur sinni. Til að bæta skaðann og gera sér kleift að áfrýja til Landsréttar, greip hin dæmda til þess að safna á Karolina...
SlúðurHannes á förum Hannes Hólmsteinn Gissurarson prófessor er að fara á eftirlaun eftir litríkan feril sem fræðimaður. Í tilefni að starfslokunum verður haldin kveðjustund í Háskólanum þar sem Hannes verður væntanlega mærður í bak og fyrir. Á meðal þeirra sem koma fram er Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, sem ræðir upprisu samfélagsins eftur hrunið. Þá mun sjálfur Davíð Oddsson, átrúnaðrgoð Hannesar, stíga á stokk...
SlúðurHitnar undir Máa Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, á ekki sjö dagana sæla um þessar myndir. Ásakanir um spillingu og hörku dynja á honum. Saga Ólafs Jónssonar, skipstjóra og baráttumanns gegn kvótanum, einkennist af meintu ofbeldi Máa, eins og hann kallast, og þykir vera dæmigerð fyrir vinnubrögð forstjórans sem ræður yfir stórum hluta af Íslandsmiðum. Mál á hendur Samherjamönnum í Namibíu eru í...
SlúðurVildu reka Guðlaug Sjálfstæðisflokkurinn er í úlfakreppu vegna fylgishruns sem skrifast á formanninn, Bjarna Benediktsson. Eins og greint var frá á þessum vettvangi hefur verið teiknuð upp flétta sem gefur Bjarna útgönguleið. Hún gengur út á það að Bjarni segi af sér formennsku í haust og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir varaformaður taki við keflinu fram að landsfundi ári síðar. Jafnframt muni þau skipta...
SlúðurDaufur Dagur Dagur B. Eggertsson borgarstjóri er undir í umræðunni um fjármál Reykjavíkur og þann mikla vanda sem blasir við. Augljóst er af umræðunni að dæma að borgarstjórinn er á förum og hugur hans fjarri því verkefni að koma málum í lag. Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Sjálfstæisflokksins, hefur farið hamförum vegna ástandsins í borginni og meintrar óráðssíu sem leitt hafi til rekstrarafhroðs sem...
47:15SlúðurÓlafi hótað Einn af aflasælustu skipstjórum Íslands er Ólafur Jónsson, gjarnan nefndur Óli ufsi. Hann hefur um árabil glímt við óvild Þorsteins Má Baldvinssonar, forstjóra Samherja. Ólafur lýsir þessum örlögum sínum í viðtali við vefsjónvarpið Sjóarann sem kom út í tveimur hlutum. Ólafur var rekinn af skipi sínu en fékk vinnu í veiðarfærasölu Hampiðjunni, sem sölumaður. Á þeim tíma var hann harður...
SlúðurElín niðurlægð Einhver reynslumesti fréttamaður landsins, Elín Hirst, hefur starfað sem fréttastjóri á Ríkisútvarpinu og Stöð 2 í gegnum árin. Elín átti góða spretti á Hringbraut sálugu þar sem hún stjórnaði um tíma sjónvarpsfréttum. Elín sótti um sumarstarf hjá Ríkisútvarpinu nokkru áður en Hringbraut fór í þrot. Einhver hefði talið að fréttastofu ríkisins hefði þótt fengur að slíkum reynslubolta. Elín var kölluð...
SlúðurÞagnarhjúpur Stefáns Vandræðagangur er sagður einkenna fréttastofu Ríkisútvarpsins vegna mála sem snúa að Valgerði Þorsteinsdóttur skriftu. Fullyrt er að Heiðar Örn Sigurfinnsson fréttastjóri hafi einhliða lofað henni starfi sem fréttamaður Ríkisútvarpsins á Akureyri í stað Óðins Svan Óðinssonar sem er á förum þaðan eftir góða frammistöðu. Það var bloggarinn umdeildi, Páll Vilhjálmsson, sem fyrst reifaði málið og fullyrti að Heiðar hefði verið...