SlúðurSár Þorsteinn Már Eitt af furðulegri málum síðari tíma snýst um listamanninn, Odee, Odd Eystein Friðriksson, sem hannaði og birti nýja heimasíðu með afsökunarbeiðni Samherja hf. vegna Namibíumálsins. Þorsteini Má Baldvinssyni, forstjóra Samherja, sárnaði óskaplega, enda ekki annarra að biðjast afsökunar á afglöpum eða meintum brotum fyrirtækisins. „Eins og ykkur er eflaust kunnugt um, hefur falsfréttum í nafni Samherja verið dreift að undanförnu...
SlúðurEinar fær skuldasúpu Meirihluti borgarstjórnar í Reykjavík á í gríðarlegum erfiðleikum og glímir við ímyndarbrest vegna skuldamála. Þetta sýnir sig best þegar litið er til könnunar Maskínu varðandi vinsældir borgarfulltrúa. Sanna Magdalena Mörtudóttir, oddviti Sósíalista í Reykjavík, er vinsælasti borgarfulltrúinn. Næstum fjórðungur borgarfulltrúa nefnd hana sem þann borgarfulltrúa sem hefði staðið sig best á kjörtímabilinu. Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins er í öðru sæti....
SlúðurVítalía í vanda Baráttukonan Vítalía Lazereva, sem varð þjóðþekkt eftir að hafa opinberað samskipti sín við þjóðþekkta athafnamenn í heitum potti og á hótelherbergi í Borgarfirði, er í vanda. Sá umtalaði siðfræðingur, Stefán E. Stefánsson upplýsti í spjallþætti Morgunblaðsins að Vítalía væri sá starfsmaður Lyfju sem hefði flett upp einstaklingum í lyfjaskrá. Ekkert hefur verið staðfest í þessum efnum og Vítalía sjálf er...
SlúðurJón Ásgeir í banastuði Jón Ásgeir Jóhannesson athafnamaður hefur rifið olíufélagið Skeljung upp og komið því í góðan hagnað eftir nokkra lognmollu. Þetta er sigur fyrir Jón Ásgeir sem lýsti því að eftir hrun hefði hann verið orðinn nær gjaldþrota. Nú er hann upprisinn og í banastuði. Móðurfélag Skeljungs, Skel, lætur ekki eldsneytismarkaðinn einan nægja því það teygir anga sína víðar um markaðinn. Nú...
SlúðurDiljá troðið í treyju Margir eru súrir vegna þess að Diljá Pétursdóttir, keppandi Íslands, náði ekki inn í aðalkeppnina og var send heim áður en stórta stundin rann upp. Flestir eru sammála því að Diljá gerði sitt besta en einhverjir staldra við þá sem stýrðu framlagi Íslands og fjörinu ytra. Sá glaðbeitti Siggi Gunnars gerði sitt besta til að hafa sjálfan sig í sviðsljósinu...
SlúðurGarmur Simma Vill Sigmar Vilhjálmsson, athafnamaður og álitsgjafi, hefur átt erfiða tíma undanfarið. Á honum hafa dunið gjaldþrot og persónubundin áföll sem hann reynir að leysa sem best úr. Simmi er alla jafna glaðbeittur og leysir gjarnan mál af bjartsýni og dugnaði. Það vakti þjóðarathygli þegar hann tilkynnti um breyttan lífsstíl og að hann ætlaði að leggja bílnum sínum og hjóla. Þetta þótti...
SlúðurBjarni eignast óvin Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra er kjarkmaður. Það kom ágætlega í ljós í gær þegar hann blandaði sért í umræðuna um úrsögn Eflingar úr Starsfsgreinasambandi og benti réttilega á að einungis brotabrot af af félagsmönnum hefði tekið ákvörðunina og væri dæmi um sambandsleysi forystu og félagsfólks. Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, var snögg að bregðast við og furðar sig á áhyggjum fjármálaráðherra...
SlúðurGæðablóðið Guðmundur Baráttujaxlinn Guðmundur Smári Guðmundsson, forstjóri útgerðarfyrirtækisins Guðmundar Runólfssonar ehf. á Grundarfirði er afar ósátttur við kortlagningu Svandísar Svavarsdóttur sjávarútvegsráðherra á eignatengslum í sjávarútvegi. Guðmundur Smári stýrir veldi sem faðir hans, Guðmundur Runólfsson, kom upp á sínum tíma og þykir hafa verið einkar farsæll í rekstri. Samkeppniseftirlitið annast könnunina. Guðmundur hefur nú klagað til viðskiptaráðherra og Umboðsmanns Alþingis. Ekki er vitað...
SlúðurKolbeinn orðinn kapteinn Kolbeinn Óttarsson Proppé , fyrrverandi þingmaður Vinstri grænna, gerir það gott á Siglufirði eftir að hann hrökklaðist úr stjórnmálum vegna óljósra sakargifta um að hafa stigið yfir mörk kvenna fyrir margt löngu. Hann hafði í tvígang gefið kost á sér í prófkjör flokksins þegar hann hætti við og flutti norður þegar góða fólkið sýndi honum rauða spjaldið og boðaði slaufun....
SlúðurBrynjar á reiðhjóli Brynjar Níelsson, aðstoðarmaður dómsmálaráðherra, segir frá því á Facebook að hann hafi verið staðinn að því að koma á reiðhjóli í vinnuna. Það hafi vakið athygli og tortryggni samstarfsmanna. „Ég sór við almættið að ég hefði ekki verið sviptur ökuréttindum. Áhyggjur samstarfsmanna voru ekki þær heldur bentu þau á að síðmiðaldra menn í yfirvikt væru ekki á kvenmannshjólum með körfu...
SlúðurÁsmundur glímir við skítkast Ásmundur Friðriksson, alþingismaður Sjálfstæðisflokksins, er ekki mikið fyrir að láta eiga inni hjá sér í umræðunni. Listamaðurinn Jón Óskar Hafsteinsson gagnrýndi það harkalega í færslu á Facebook að þingmaðurinn hygðist gera út á ferðaþjónustu í Eyjum í sumar. Í þessu skyni hefur hann stofnað fyrirtækið Þingmannaleið ohg keypt sér litla rútu. Sakaði Jón Óskar þingmanninn um að fara gegn veikburða...
SlúðurHvít lygi Sigmars Sigmar Vilhjálmsson athafnamaður er þekktur fyrir snilld sína í markaðsmálum. Hann var svo stálheppinn á dögunum að gerast brotlegur við lög með þeim afleiðingum að yfirvöld sviptu hann ökuleyfi. Sigmar nýtti þetta tækifæri til að gefa út yfirlýsingar um að hann hefði ákveðið að taka upp bíllausan lífstíl og ferðast um Reykjavík á reiðhjóli. Fjölmiðlar stukku á málið og gerðu...