MannlífiðFlatbrauð með steiktum lauk, chili-sveppum og sesamsmjörssósu3. apríl 2019 Hér kemur uppskrift að dásamlegri pizzu sem er fljótlegt að gera og því hentar hún vel þegar tíminn er naumur og allir svangir eftir annasaman dag. Í uppskriftinni er gert ráð fyrir að pizzan sé bökuð á grilli en hana er auðvitað líka hægt að baka í ofni.
MannlífiðLjúffeng papriku- og gulrótasúpa17. mars 2019 Paprikur eru vinsælar víða um heim. Þær eru litríkar, hollar og bragðgóðar. Þær eru góðar hráar, bakaðar eða í súpur og það er auðvelt að nálgast þær allt árið um kring. Hér kemur uppskrift að dásamlegri súpu þar sem paprika spilar stórt hlutverk.
MannlífiðMatarmikil kjötsúpa sem yljar5. mars 2019 Súpur geta vel staðið einar og sér sem kvöldmatur með góðu brauði og sumar þeirra verða hreinlega betri daginn eftir eins og þessi matarmikla kjötsúpa. Það borgar sig því að gera nóg af henni.
MannlífiðSælkera perlubyggsbollur með grænmeti26. janúar 2019 Í þennan rétt var notað perlubygg sem er lúxusútgáfan af bygginu. Suðutíminn er einungis 15 mínútur og því sniðugt að nota það í staðinn fyrir hrísgrjón eða kartöflur til tilbreytingar. Hér er byggið notað í bollur sem eldaðar eru með grænmeti í ofni. Rétturinn getur staðið einn sér en líka sem meðlæti t.d. með fiski.
MannlífiðBragðgóð blómkálsbaka23. janúar 2019 Þegar hráefnið er fyrsta flokks er óþarfi að flækja hlutina mikið, yfirleitt er það einfaldasta best. Fátt jafnast á til dæmis á við ferkst grænmeti eins og sannast hér þar sem uppskrift er gefin að blómkálsböku frá Persíu.
MannlífiðSpínatlasagna með haloumi-osti og basilíku13. janúar 2019 Hér er ekki notað hefðbundið ferkantað lasagna-form sem gefur réttinum grófara og frjálslegra yfirbragð. Lasagna-blöðin eru ekki öll ofan í sósunni og brúnast flví aðeins í endanna og verða stökk. fyrir 4-6 4 hvítlauksgeirar, saxaðir 1 rauðlaukur, saxa›ður 800 g ferskir kirsuberjatómatar, skornir gróft 3 msk. balsamedik 2 msk. kaldpressuð ólífuolía sjávarsalt og nýmala.ur pipar hnefafylli fersk basilíka 500 g...
MannlífiðBragðgóð baunabuff7. janúar 2019 Baunabuff eru hollur og góður matur sem er t.d. gott að eiga í frysti og grípa til þegar lítill tími er til stefnu. Baunir hafa hátt prótínhlutfall og eru stútfullar af næringarefnum og trefjum. Þær eru ódýr matur og því vel til þess fallnar að drýgja t.d. pottrétti og súpur. Niðursoðnar baunir eru þægilegur kostur þegar tíminn er naumur en það er miklu ódýrara að leggja þurrkaðar baunir í bleyti, sjóða þær og skipta þeim niður í hæfilega skammta og frysta. Þannig er fljótlegt að grípa til þeirra þegar á þarf að halda. Linsubaunir þarf ekki að leggja í bleyti, þær eru því einskonar skyndibaunir sem er mjög hentugt að nota með litlum fyrirvara.
MannlífiðHaustlegir pottréttir18. nóvember 2018 Pottréttir eru þægilegur og góður matur. Ekki missa kjarkinn þótt hráefnislistinn í uppskriftinni sé stundum langur, eldunin er yfirleitt einföld og oft er bara notaður einn pottur. Það má líka gera stóra skammta og geyma til næsta dags því pottréttir eru jafnvel betri daginn eftir. Gott er að hafa í huga að því lengur sem pottréttir fá að malla við vægan hita, því betri verða þeir.
MannlífiðNautahakk – þægilegt og alltaf gott4. nóvember 2018 Nautahakk er þægilegt hráefni að grípa til í miðri viku en einnig er hægt að nota það í sparilega rétti. Hér eru frábærar og einfaldar uppskriftir úr smiðju Gestgjafans.
MannlífiðDásamlegur bleikjubrauðréttur2. október 2018 Flestir eru alveg vitlausir í brauðrétti og klárast þeir yfirleitt alltaf fyrst í veislum. Það er líka tilvalið að hafa slíka rétti í matinn fyrir fjölskylduna. Hér bjóðum við upp á brauðrétt með fiski sem aldeilis hentar vel sem kvöldmatur. Hér er á ferðinni dásamlegu brauðréttur sem kom sérstaklega vel út í tilraunaeldhúsi Gestgjafans. Það þarf smá undirbúning og fyrirhöfn til að útbúa hann en er alveg þess virði. Tilvalið er að nota afganga af bleikju eða laxi frá kvöldinu áður í réttinn.
MannlífiðÞorskur í sítrónu- og smjörsósu21. september 2018 Fljótlegur og bragðgóður réttur sem er tilvalinn fyrir önnum kafið fólk.
MannlífiðBleikt og freistandi rauðrófu-risotto15. september 2018 Rauðrófur hafa verið vinsælar hér á landi síðustu ár enda eru þær bragðgóðar, fallegar á litinn og mjög hollar. Þær innihalda sterkt rautt litarefni sem gerir matinn sem þær blandast við bara fallegri.