Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Bragðgóð baunabuff

Bauna­buff eru hollur og góður matur sem er t.d. gott að eiga í frysti og grípa til þegar lít­ill tími er til stefnu. Baunir hafa hátt prótín­hlut­fall og eru stút­fullar af nær­ing­ar­efnum og trefjum. Þær eru ódýr matur og því vel til þess fallnar að drýgja t.d. pott­rétti og súpur. Nið­ur­soðnar baunir eru þægi­legur kostur þegar tím­inn er naumur en það er miklu ódýr­ara að leggja þurrk­aðar baunir í bleyti, sjóða þær og skipta þeim niður í hæfi­lega skammta og frysta. Þannig er fljót­legt að grípa til þeirra þegar á þarf að halda. Linsu­baunir þarf ekki að leggja í bleyti, þær eru því eins­konar skyndi­baunir sem er mjög hent­ugt að nota með litlum fyr­ir­vara.

Bragðgóð baunabuff
|

KJÚKLINGABAUNABUFF MEÐ SPÍNATI
8-10 buff
Erfitt er að gefa nákvæm­lega hversu mikið hveiti þarf að nota í þessa upp­skrift. Það fer eftir því hversu vel gengur að ná vatn­inu úr spínat­inu.
200 g spínat
2 tsk. kummin-fræ
2 hvít­lauk­geirar, saxaðir
2 dósir kjúklinga­baunir, safi sigtaður frá
2-3 msk. sítrónu­safi
hveiti eða heil­hveiti eftir þörfum (u.þ.b. ½ dl)
salt og pipar
olía til að steikja upp úr

Setjið spínatið í sigti og hellið fullum katli af sjóð­andi vatni yfir það. Látið það bíða í góða stund. Kreistið eins mikið vatn og þið getið úr spínat­inu og saxið það gróft. Ristið kummin-fræ á þurri pönnu. Setjið kjúklinga­baun­irnar í mat­vinnslu­vél og maukið vel, bætið spínati, kummin og hvít­lauk í vél­ina og maukið allt saman. Bætið sítrónusafa og hveiti eins og þarf út í, smakkið til með salti og pipar. Mótið buff og steikið þau á báðum hliðum. Berið þau e.t.v. fram á sal­at­beði með grófri ristaðri brauð­sneið, mauki úr lárperu og agúrkusósu.

AGÚRKUSÓSA
½ agúrka, afhýdd, kjarni tek­inn úr og söxuð
1 hvít­lauks­rif, marið
2 dl grísk jógúrt
salt og pipar

Blandið öllu saman og smakkið til með salti og pipar.

Með thaí­lensku ívafi.

BAUNABUFF MEÐ TAÍLENSKU ÍVAFI OG ANANASTOPPI
12-14 stk.
2 dósir kjúklinga­baunir
2 dl hafra­mjöl
4 tsk. sojasósa
safi úr 1 límónu
2-3 hvít­lauk­geirar, saxaðir
u.þ.b. 2-3 cm fersk engi­fer­rót, rif­inn fínt
4-6 msk. ósætt hnetu­smjör
u.þ.b. ½ – 1 dl ferskur kórí­ander, fínt saxaður
kókos­olía til steik­ingar

Sigtið vökvann frá baunum og skolið þær undir renn­andi vatni. Setjið hafra­mjöl í mat­vinnslu­vél og malið það fínt. Bætið baunum og öðru hrá­efni út í og maukið vel saman. Látið standa í kæli í 30 mín. Hitið ofn í 180°C. Hitið kókosolíu á pönnu við með­al­hita. Mótið buffin í höndum og steikið í 3-4 mín. á hvorri hlið eða þar til þau hafa tekið fal­legan lit. Setjið í ofn í 10-15 til þess að klára steik­ing­una.

ANANASTOPPUR
1 tsk. kókos­olía
½ ferskur ananas, skorin í bita (einnig er hægt að nota úr dós, en sigtið þá vökvann vel frá)
1 msk. sojasósa

Hitið kókosolíu á pönnu og steikið ananas í 1-2 mín., bætið þá sojasós­unni saman við og steikið í nokkrar mín. eða þar til ananas­inn fer að mýkj­ast aðeins. Berið fram heitt með bauna­buff­inu.

Umsjón / Kristín Dröfn Ein­ars­dóttir og Sigríður Björk Braga­dóttir
Myndir / Kristinn Magn­ús­son
Stílisti / Ólöf Jakobína Ernu­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni