InnlentBrosmildi baráttumaðurinn Gunnar Karl var aðeins 26 ára: „Gott að finna að maður er ekki einn“28. febrúar 2021 Gunnar Karl Haraldsson, kennaranemi baráttumaður fyrir réttindum fatlaðs fólks er látinn aðeins 26 ára gamall. Hann lést í morgun eftir baráttu við krabbamein. Vísir greindi frá og vísaði í tilkynningu fjölskyldu Gunnars Karls á Facebook. Gunnar Karl er fæddur og uppalinn í Vestmannaeyjum. Frá unga aldri glímdi hann við taugasjúkdóm og þurfti því alla tíð að synda á móti straumnum....
InnlentJohn Snorri kvaddur: „Hvetjum alla að taka þátt með því að tendra ljós hjá sér“26. febrúar 2021 Aðstandendur John Snorra Sigurjónssonar heitins ætla að kveðja hann við Vífilsstaðavatn á sunnudaginn. Þau hafa stofnað viðburð á Facebook og hefur fjöldi fólks nú þegar boðað þátttöku sína. Fjallgöngugarpurinn er talinn hafa látist eftir að hafa náð tindi mannskæða fjallsins K-2 í Pakistan ásamt tveimur félögum, heimamanninum Ali Sadpara og Sílemanninum Juan Pablo Mohr. Bænastundin á sunnudaginn verður jafnframt helguð...
InnlentJón Ólafur er látinn: „Það að vera lifandi, er í sjálfu sér banvænt“23. febrúar 2021 Jón Ólafur Skarphéðinsson er látinn einungis 64 ára gamall. Hann lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi þann 11. febrúar eftir baráttu við illvígt krabbamein. Jón Ólafur starfaði sem prófessor í lífeðlisfræði og kenndi við flestar deildir heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands. Margir minnast hans í dag í Morgunblaðinu en útför hans fer fram síðdegis. Jón Ólafur ólst upp í Hlíðunum og lauk...
InnlentBaráttukonan Amal Rún látin: „Við erum ein stór fjölskylda“18. febrúar 2021 Baráttukonan Amal Rún Qase er látin, aðeins 57 ára að aldri. Hún féll frá laugardaginn 23. janúar og hefur útförin farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Amal Rún lætur eftir sig einn son. Mbl.is greindi frá andláti hennar. Amal Rún fæddist í hinu stríðshrjáða landi Sómalíu árið 1963. Hún var mikil baráttukona og setti svip sinn á mannlífið...
InnlentLína Móey kveður eiginmann sinn: „John Snorri verður í hjarta okkar að eilífu“18. febrúar 2021 Lína Móey Bjarnadóttir, eiginkona John Snorra Sigurjónssonar fjallgöngugarps, segir að eiginmaður sinn, sem nú hefur verið tilkynntur látinn, verði í hjarta sínu að eilífu. Hún og börnin þeirra hjóna sendu frá sér yfirlýsingu á Facebook fyrir skömmu „Íslensk hjörtu okkar slá með hjörtum Pakistana og Sílebúa. Við sendum þakkir til allra þeirra sem hafa tileinkað sig leitinni og gefið sér...
InnlentJohn Snorri látinn18. febrúar 2021 Fjallgöngugarpurinn John Snorri Sigurjónsson er nú talinn af. Ferðamálaráðherra Pakistan gaf það formlega út í dag að Íslendingurinn og tveir göngufélagar hans, heimamaðurinn Ali Sadpara og Sílemaðurinn Juan Pablo Mohr, væru látnir og leitað yrði nú áfram að líkum þremenninganna. Leit pakistanska hersins að John Snorra og félögum hefði staðið yfir í tæpar tvær vikur við afar erfiðar aðstæður á...
InnlentKatrín þarf okkar hjálp – Ung móðir þarf að jarða þennan litla dreng – „Barðist eins og hetja“18. febrúar 2021 Sólný Lísa Jórunnardóttir hefur komið af stað söfnun fyrir frænku sína sem glímir við skelfilegar aðstæður. Frænka hennar, Katrín, þarf að jarða Brynjar Leó sem lést þann 15. febrúar eftir veikindi alla hans stuttu ævi. Sólný segir að Katrín eigi þrjú önnur börn svo því þarf hún hjálpar hönd. „Kæru vinir. Mig langar að biðja þá sem geta að hjálpa...
InnlentMaður lést eftir að ekið var á hann í Garðabæ17. febrúar 2021 Karlmaður á áttræðisaldri lést í umferðarslysi á gatnamótum Kauptúns og Urriðaholtsstrætis í Garðabæ í dag. Ekið var á manninn og leitar lögreglan nú vitna að slysinu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu: „“Karlmaður á áttræðisaldri lést í umferðarslysi á gatnamótum Kauptúns og Urriðaholtsstrætis í Garðabæ í dag. Varð maðurinn fyrir bifreið er hann gekk yfir götuna. Tilkynning...
InnlentKristjana fór alltof snemma: „Elsku Sissa, ég kveð þig með ást og söknuði“15. febrúar 2021 Kristjana Þuríður Jónsdóttir var ekki nema 59 ára gömul þegar hún lést á heimili sínu 6. febrúar síðastlðinn. Þá hafði hún háð hetjulega baráttu við lífhimnukrabbamein síðasta árið. Hún lætur eftir sig eina dóttur. Kristjana, eða Sissa eins og hún var oftast kölluð fæddist í Hafnarfirði 16. mars 1961. Hún vann í fiskvinnu í Bæjarútgerð Hafnarfjarðar sem unglingur auk þess...
InnlentKarlmaður handtekinn vegna andláts við Rauðagerði í nótt14. febrúar 2021 Lögreglan handtók fertugan karlmann í nótt í tengslum við andlát manns við Rauðagerði í Reykjavík. Lögreglan er enn á vettvangi að sögn RÚV. Maðurinn sem lést var á sama aldri og sá handtekni en hvorugur þeirra er íslenskur. Lögreglan var kölluð að húsinu um miðnætti í nótt en samkvæmt tilkynningu var slasaður maður fyrir utan húsið. Það reyndist rétt en...
InnlentYfirmaður Guðna kveður góðan dreng: „Ég vona að þú hafir vitað að þú varst með náðargáfu”12. febrúar 2021 Jens Ívar, teymisstjóri hjá heimaþjónustu Reykjavíkurborgar, kveður Guðna Pétur Guðnason í fallegri minningargrein sem birtist í Morgunblaðinu í dag. Guðni Pétur starfaði með honum við geðþjónustu Reykjavíkurborgar. Hann drukknaði í Sundhöllinni þar sem hann var með skjólstæðingi sínum. Hann var einungis 31 ára. Jens segir að Guðni Pétur hafi verið einstakur starfsmaður í erfiðu starfi. „Tveir mánuðir, Pétur. Við þekktumst...
InnlentHerdís er látin: Fyndinn femínisti sem færði okkur dýrmæta gjöf gegn COVID10. febrúar 2021 Herdís Steingrímsdóttir er látin, 67 ára að aldri. Hún var meðal fremstu vísindamanna Íslands og öflug í stríðinu við COVID. Þó fæstir Íslendingar hafi líklega heyrt hennar getið þá hafa margir komist í kynni við afrakstur hennar, skimunarprófið við COVID. Herdís lést á Royal Sussex County-sjúkrahúsinu í Brighton á Englandi 24. janúar síðastliðinn. Hennar er minnst í Morgunblaðinu í dag...