Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Yfirmaður Guðna kveður góðan dreng: „Ég vona að þú hafir vitað að þú varst með náðargáfu”

Yfirmaður Guðna kveður góðan dreng: „Ég vona að þú hafir vitað að þú varst með náðargáfu”

Jens Ívar, teym­is­stjóri hjá heima­þjón­ustu Reykja­vík­ur­borgar, kveður Guðna Pétur Guðnason í fal­legri minn­ing­ar­grein sem birt­ist í Morg­un­blað­inu í dag. Guðni Pétur starf­aði með honum við geð­þjón­ustu Reykja­vík­ur­borgar. Hann drukkn­aði í Sund­höll­inni þar sem hann var með skjól­stæð­ingi sínum. Hann var ein­ungis 31 ára. 

Jens segir að Guðni Pétur hafi verið ein­stakur starfs­maður í erf­iðu starfi. „Tveir mán­uðir, Pétur. Við þekkt­umst í tvo mán­uði. Mér lík­aði vel við þig. Mjög vel. Þú gerðir tals­vert grín að sjálfum þér og sagðir oft skemmti­sögur af ein­hverju sem þú varst að gera, en áttir til að vera alvöru­gef­inn og ein­lægur. Þú varst fljótur að vinna traust mitt,” segir Jens.

Hann segir að þrátt fyrir orð um annað hafi hann átt heima í þessu óeig­in­gjarna starfi. „Þú varst kaffi­drykkju­maður og kaffi­boll­inn var heil­agur fyrir þér. Þú lýstir sjálfum þér sem trukka­bíl­stjóra sem ætti bara að vinna rudda­vinnu og fara síðan heim og spila tölvu­leiki! En ég átt­aði mig á því að það var miklu meira spunnið í þig en þú sýndir,” segir Jens.

„Kannski vissir þú af þessu sjálfur. Ég geri mér ekki grein fyrir hve mikla inn­sýn þú hafðir í eigið ágæti. Þú varst að vinna með skjól­stæð­ingum sem voru að berj­ast við erf­iða sjúk­dóma og lést líta fyrir að það væri auð­velt. Þú varst þol­in­móður við fólkið sem þú ann­að­ist.”

Jens segir Guðna hafa sýnt veiku fólki mikla virð­ingu. „Þú sýndir því vænt­um­þykju og ástúð, settir mörk en með mik­illi virð­ingu. Ég hugs­aði með mér að þú ættir að leggja þessa vinnu fyrir þig vegna þess að það sem þú gafst til starfs­ins var ein­stakt og ég vona að þú hafir vitað það. Ég vona að þú hafir vitað að þú varst með náð­ar­gáfu. Ég hefði viljað kynn­ast þér miklu betur,” skrifar Jens. 

„Hugur minn er hjá öllum sem þekktu þig. Ég sam­hrygg­ist inni­lega for­eldrum þínum og systk­inum og þeim sem unnu með þér í lengri tíma. Ég vona að minn­ingin um þig veiti þeim ein­hverja gleði og huggi þau á þessum erf­iða tíma.”

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina