Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Herdís er látin: Fyndinn femínisti sem færði okkur dýrmæta gjöf gegn COVID

Herdís er látin: Fyndinn femínisti sem færði okkur dýrmæta gjöf gegn COVID

Herdís Stein­gríms­dóttir er látin, 67 ára að aldri. Hún var meðal fremstu vís­inda­manna Íslands og öflug í stríð­inu við COVID. Þó fæstir Íslend­ingar hafi lík­lega heyrt hennar getið þá hafa margir kom­ist í kynni við afrakstur hennar, skimun­ar­prófið við COVID. Herdís lést á Royal Sussex County-sjúkra­hús­inu í Brighton á Englandi 24. jan­úar síð­ast­lið­inn.

Hennar er minnst í Morg­un­blað­inu í dag en þar er henni lýst sem gjaf­mildri bar­áttu­konu gegn órétt­læti, hjarta­hlýjum töffari og bráð­fyndnum femínista.

Herdís bjó til skiptis á Englandi og Íslandi alla ævi eftir að hún kynnt­ist eft­ir­lif­andi eig­in­manni sínum, Dave Gillard, á háskóla­ár­unum í Leeds. Þau gift­ust árið 1983 eftir margra ára kynni og eiga saman tvo full­orðna syni: Daníel og Róbert. Herdís ólst upp í Þor­móðs­dal í Mos­fells­sveit en flutti til Reykja­víkur á ung­lings­árum. Eftir nám við MR hélt hún til Englands og hóf nám í mat­væla­fræði við Háskól­ann í Leeds. Hún starf­aði við mat­væla­rann­sóknir að námi loknu, bæði hér og á Englandi.

Árið 1984 urðu þó straum­hvörf í lífi Herdísar, sem íslenska þjóðin naut síðar góðs af. Í árs­byrjun 1984 fékk Herdís nýtt starf eftir að hafa flutt stuttu áður til Englands. Það starf var á rann­sókn­ar­stofu við sam­einda­líf­fræði­deild Háskól­ans í Sussex en þar kvikn­aði brenn­andi áhugi hennar á sam­einda­líf­fræði. Það varð svo til þess að sex árum síðar var hún orðin doktor í sam­einda­líf­fræði. Menn höfðu orð á því að þar sýndi hún hvað í henni bjó.

Herdís starf­aði við rann­sóknir meiri­hluta tíunda ára­tug síð­ustu aldar, bæði við háskól­ann í Sussex og við King’s College í London. Árið 1998 stofn­aði hún svo líf­tækni­fyr­ir­tækið Microzone ásamt eig­in­manni sínum Dave. Þar þró­aði Herdís pró­fefna­blönd fyrir sam­einda­líf­fræði­legar rann­sóknir. Sú vinna hefur verið ómissandi í bar­áttu mann­kyns­ins við ósýni­lega óvin­inn, ill­víga smit­sjúk­dóma. Þrátt fyrir að Herdís hafi selt fyr­ir­tækið árið 2018 þá leit­uðu nýir eig­endur til hennar þegar COVID komst á kreik. Afrakst­ur­inn varð nýtt  skimun­ar­próf sem var tekið í notkun í sept­em­ber að loknum klínískum athug­unum. Það sýndi vel, líkt og segir í Morg­un­blað­inu að „Herdís var kona sem hafði ætíð ráð undir rifi hverju; hún dó ekki ráða­laus“.

Vinkonur hennar skrifa sam­eig­in­lega minn­ing­ar­grein þar sem yngri árum hennar er  lýst:

„Þegar Hedda var náms­maður í Leeds á átt­unda ára­tugnum komumst við að því að eng­inn speg­ill var til á hennar litla heim­ili. Flestar ungar konur hefðu lík­lega saknað slíks hús­gagns, en ekki Hedda. Hún þurfti enga spegla til þess að vita hver hún var. Við vin­kon­urnar höfum fengið að vera sam­ferða Heddu gegnum lífið. Þess vegna bland­ast minn­ing­arnar um tíma­bilin og árin okkar saman í lif­andi púslu­spil. Þess vegna er Hedda enn mennta­skóla­stúlkan sem vann í sjopp­unni á Lang­holts­veg­inum – sú sem var búin með kaupið sitt nokkrum dögum eftir útborgun þótt hún eyddi nán­ast engu í sjálfa sig. Hún er líka unga stúlkan í Íslands­úlp­unni með nafnið Che skrifað stórum stöfum á bakið, til­búin að takast á við órétt­læti heims­ins. Og einnig sú sem vann á Herjólfi áður en hún fór til Leeds að læra mat­væla­fræði þar sem hún hitti mann­inn sinn, öðling­inn hann Dave.“

Fleiri nefna gjaf­mildi hennar sem minnk­aði ekki með aldr­inum. „Rausn­ar­skap hennar voru engin tak­mörk sett og for­gangs­rað­aði hún hlut­unum sam­kvæmt lífs­gildum sínum þar sem fal­leg sam­skipti og vin­átta voru í fyr­ir­rúmi,“ segir í einni minn­ing­ar­grein.

Annar vina­hópur lýsir atviki sem sýnir vel hversu skel­egg Herdís var. „Í MR var Hedda stúlka sem stóð fyrir sínu og tók til dæmis ekki þegj­andi athuga­semdum kenn­ara sem beindust að því sem litlu skipti, svo sem stóru R–i inni í miðjum orðum í stíl á töfl­unni. Hedda leit­aði til stjórn­enda og fékk hnekkt þeim úrskurði að hún skyldi stroka út öll R–in í stílnum. Áræði ein­kenndi náms­feril hennar sem var í raun­greinum, inn­an­lands og síðar á Englandi. Áræði var það líka þegar hún stofn­aði sitt eigið fyr­ir­tæki í Englandi og rak það af mynd­ar­skap.“

Herdís var femínisti en í einni minn­ing­ar­grein er henni lýst svo: „Hedda bjó yfir mörgum mann­kostum. Efst í huga er heið­ar­leik­inn, hrein­skilnin, gjaf­mildin og gest­risnin. Hún kom alltaf til dyr­anna eins og hún var klædd, sagði skoð­anir sínar umbúða­laust. Hún var femínisti. Þau Dave höfð­ingjar heim að sækja. Margar góðar veisl­urnar höfum við setið í hús­unum þeirra fal­legu í Brighton. Og ekki má gleyma kímni­gáf­unni hennar sem stundum var skemmti­lega kald­hæðin.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við