Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Jón Ólafur er látinn: „Það að vera lifandi, er í sjálfu sér banvænt“

Jón Ólafur er látinn: „Það að vera lifandi, er í sjálfu sér banvænt“

Jón Ólafur Skarp­héð­ins­son er lát­inn ein­ungis 64 ára gam­all. Hann lést á líkn­ar­deild Land­spít­al­ans í Kópavogi þann 11. febr­úar eftir bar­áttu við ill­vígt krabba­mein. Jón Ólafur starf­aði sem pró­fessor í líf­eðl­is­fræði og kenndi við flestar deildir heil­brigð­is­vís­inda­sviðs Háskóla Íslands. Margir minn­ast hans í dag í Morg­un­blað­inu en útför hans fer fram síð­degis.

Jón Ólafur ólst upp í Hlíðunum og lauk stúd­ents­prófi frá Mennta­skól­anum við Hamra­hlíð. Að loknu BS-próf í líf­fræði frá HÍ árið 1979 flutti hann út til Sví­þjóðar. Þar hóf hann dokt­ors­nám sem fjall­aði um áhrif ósjálf­ráða tauga­kerf­is­ins og ýmissa lyfja á stjórn blóð­flæðis. Hann varði dokt­ors­rit­gerð sína við Gauta­borg­ar­há­skóla árið 1988 og var ráð­inn lektor við hjúkr­un­ar­fræði­deild Háskóla Íslands sama ár.

Í Morg­un­blað­inu segir að hann hafi verið mik­ill nátt­úru­unn­andi, hafi verið í sveit sem barn bæði fyrir norðan og sunnan. Jón Ólafur naut þess að fara í flugu­veiði. Hann var félagi í Ármönnum – félagi um stang­veiði og sat um tíma í stjórn þess. Jón Ólafur var mik­ill áhuga­maður um tón­list en blús­inn var í upp­á­haldi og var hann tíður gestur á Blús­há­tíð í Reykja­vík.

Umgekkst mýsnar af væntumþykju

Torfi H. Tulinius, pró­fessor í íslenskum mið­alda­fræðum við Háskóla Íslands, minn­ist fall­ins félaga í Morg­un­blað­inu. „Djúp rödd og karl­mann­leg. Hlý og mjúk. Hún hljómar í hug­anum þegar ég minn­ist vinar míns Jóns Ólafs Skarp­héð­ins­sonar. Jónsi var glæsi­legur maður, hávax­inn og herða­breiður, nef­mik­ill með fal­leg brún augu. Þau lýstu af greind og festu. Á góðum stundum geisl­uðu þau af gleði og kær­leika. Við kynnt­umst á síð­asta ári okkar í mennta­skóla. Við Þór bróðir vorum þá svo lánsamir að tengj­ast hópi félaga sem höfðu orðið sam­ferða í gegnum skóla­kerfið og hnýtt sterk vina­bönd sín á milli. Sjálfir höfðum við alist upp í mörgum löndum og höfðum því ekki sömu rót­festu,“ segir Torfi sem átti eftir að leigja saman með Jóni Ólafi síðar meir.

„Eftir árs­hlé þar sem ég dvaldi erlendis leigðum við Jónsi aftur saman, nú með Þór bróður, Jóhönnu Þórhalls vin­konu, Völundi Óskars og Guð­björgu, eig­in­konu minni. Þá var Jónsi útskrif­aður, far­inn að vinna við rann­sóknir og kenna við háskól­ann. Hann var þegar orð­inn metn­að­ar­fullur vís­inda­maður, ekki nema tutt­ugu og þriggja ára. Við hin vorum að fást við ólíka hluti, en nutum þess að hlusta á Jónsa segja frá rann­sókn­unum sem hann tók þátt í, meðal ann­ars á marg­vís­legum undrum sléttra vöðva. Einhvern tím­ann þennan vetur tók hann heim með sér af til­rauna­stof­unni tvær hvítar mýs sem urðu þar með hluti af heim­il­is­fólk­inu. Hann hafði gaman af þessum dýrum og það var eft­ir­minni­legt hvað hann umgekkst þau af mik­illi virð­ingu og vænt­um­þykju.“

Bauð svo meira kaffi

Gunnar Oddur Rós­ars­son rifjar upp hvernig Jón Ólafur tókst á við veik­indi sín af miklu æðru­leysi. „„Það að vera lif­andi, er í sjálfu sér ban­vænt,“ sagð­irðu í fram­hjá­hlaupi í Vatns­dalnum í fyrra. Þar gafstu í skyn að þig grun­aði að eitt­hvað væri að heilsu þinni sem gæti skipt sköpum. U.þ.b. 8 mán­uðum síðar, um mán­uði fyrir and­lát þitt, tal­að­irðu undir rós við okkur Gilla, þegar þú sættir annarri geisla­með­ferð, keikur. Sagðir u.þ.b. þetta: „Næsta skref er senni­lega líkn­ar­deildin.“ Enginn sagði neitt fyrr en þú sagðir: „Hva, það fara allir, þið líka! Þið vitið bara ekki alveg hvenær, enn þá.“ Svo bauðstu meira kaffi,“ skrifar Gunnar Odddur.

Gæfa hjúkrunarfræðinga

Herdís Sveins­dóttir, deild­ar­for­seti Hjúkr­un­ar­fræði­deildar HÍ, minn­ist einnig Jóns Ólafs en hún segir það hafa verið gæfu fyrir íslenska hjúkr­un­ar­fræð­inga að njóta kennslu hans. „Við Jón Ólafur vorum sam­stúd­entar frá MH. Ég þekkti hann ekki mikið á mennta­skóla­ár­unum en við vorum mál­kunnug. Það breytt­ist því við réðum okkur bæði um svipað leyti til starfa við Hjúkr­un­ar­fræði­deild HÍ og áttum þar far­sælt sam­starf í rúm 30 ár. Jón Ólafur var stór og glæsi­legur maður með sterka nær­veru og sterkar skoð­anir. Rann­sókn­ar­svið hans var líf­eðl­is­fræði og lutu flestar rann­sóknir hans að áhrifum ósjálf­ráða tauga­kerf­is­ins á starf­semi hjarta og æða og stjórn blóð­þrýst­ings, blóð­flæðis og blóð­þurrðar og marg­vís­legra áhrifa lyfja á þessa þætti. Rann­sóknir sínar stund­aði hann með sam­starfs­fólki hjá Líf­eðl­is­fræði­stofnun HÍ. Samstarf okkar sneri hins vegar að mestu að líf­eðl­is­fræði­kennslu hjúkr­un­ar­fræði­nema. Hann hafði mik­inn metnað fyrir menntun hjúkr­un­ar­fræð­inga og það var gæfa hjúkr­un­ar­fræði­deildar að fá hann til starfa,“ segir Herdís.

Hún segir það hafa verið mikið áfall þegar hann missti son sinn Jón Börk í flug­slysi. „Jón Ólafur og kona hans Hólm­fríður urðu fyrir því skelfi­lega áfalli að missa son sinn Jón Börk árið 2001 í kjöl­far flug­slyss í Skerja­firði. Við í hjúkr­un­ar­fræði­deild­inni fylgd­umst náið með fram­vindu Jóns Barkar það tæpa ár sem hann lifði eftir slysið en Jón Ólafur ræddi við okkur reglu­lega um líðan sonar síns, aðbúnað hans, hjúkrun sem hann fékk og eigin líðan. Hann fékk þarna meiri reynslu af þjón­ustu heil­brigð­is­kerf­is­ins og hjúkr­un­ar­fræð­inga en flestir á hans aldri höfðu og nýtti þá reynslu í kennslu og við almenn stjórn­un­ar­störf í deild­inni til að byggja upp færa ein­stak­linga til starfa við hjúkrun sjúk­linga,“ segir Herdís og bætir við að lokum:

„Blessuð sé minn­ing góðs manns.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina