InnlentEinar jarðsunginn í dag: „Óendanleg sorg og söknuður ríkir nú í mínu hjarta“30. október 2020 Einar Jónsson bílasmiður verður borinn til grafar í dag. Hann lést í hræðilegum húsbílabruna ásamt hundunum sínum þremur. Jón Einarsson, grasalæknir og vélstjóri, minnist elsta sonar síns í minningagrein í Morgunblaðinu í dag. „Elsku Einar minn. Þú varst frumburðurinn minn, glókollur sem fylgdir mér frá fyrsta degi. Við feðgar horfðumst í augu með gagnkvæmri aðdáun þegar ég lék við þig...
InnlentPétur Bjarnason myndhöggvari látinn30. október 2020 Listamaðurinn Pétur Bjarnason er látinn. Hann var 65 ára að aldri og lætur eftir sig eiginkonu og þrjú börn. Pétur fæddist í Reykjavík 20. september árið 1955. Hann lauk verslunarprófi frá Verzlunarskólanum og stundaði síðan nám í Myndlista- og handíðaskóla Íslands. Þá nam Pétur myndlist við Fachhochschule í Aachen í Þýskalandi og öðlaðist síðan MA-gráðu við National Higher Institute for...
InnlentÞrettándi Íslendingurinn látinn vegna Covid-19 – Þrír hafa nú látist í þriðju bylgjunni29. október 2020 Einn sjúklingur lést á síðasta sólarhring á Landspítala vegna Covid-19. Þá hafa þrettán látist hér á landi af völdum kórónuveirunnar frá því að faraldurinn hófst. Þetta er sá þriðji í þriðju bylgju faraldursins. Aðstandendum er vottuð samúð á vef Landspítalans. Aðeins er dagur liðinn frá því að tólfti Íslendingurinn lést af völdum veirunnar skæðu. Îslendingurinn sem lést í gær vegna...
InnlentRóbert Trausti Árnason sendiherra, fréttastjóri og útvarpsþulur látinn29. október 2020 Róbert Trausti Árnason, fyrrverandi sendiherra, fréttastjóri og útvarpsþulur, lést á líknardeild Landspítalans 23. október síðastliðinn. Hann var 69 ára er hann lést. Róbert Trausti fæddist í Reykjavík 24. apríl 1951. Hann útskrifaðist úr MR og lauk síðar BA-prófi frá Háskóla Íslands. Þaðan hélt hann í framhaldsnám til Kanada þar sem hann lauk mastersnámi í stjórnmálafræði. Um skeið starfaði Róbert sem...
InnlentÞórólfur óttast fleiri Covid-andlát – Tólfta tilvikið sjúklingur af Landakoti28. október 2020 Îslendingurinn sem lést síðasta sólarhring vegna Covid-19 var tæplega níræður sjúklingur á Landakoti. Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir óttast fleiri dauðsföll á næstunni. Vísir greindi frá og ræddi við Þórólf. Hann staðfesti þar að tólfta andlátið tengist Landakoti.„Auðvitað vitum við það að einstaklingar sem eru á Landakoti, þetta er náttúrulega viðkvæmur hópur og viðkvæmir einstaklingar, þannig að þess vegna höfum við lagt...
InnlentTólfti Íslendingurinn látinn vegna Covid-19 – Tveir hafa nú látist í þriðju bylgjunni28. október 2020 Af þeim Íslendingum sem greinst hafa með Covid-19 eru nú tólf látnir. Þetta kemur fram í nýjustu tölum á upplýsingasíðunni Covid.is. Af þeim fjölda hafa tveir látist í þessari þriðju bylgju faraldursins. Fyrr í mánuðnum lést sjúklingur á Landspítala vegna COVID. Viðkomandi var þá sá ellefti á Íslandi sem lést af völdum COVID. Tíu létust í fyrstu bylgjunni í vor....
InnlentMóðir minnist sonar síns sem lést í Mexíkó: „Tárin flæða að skrifa þessi orð, elsku Atli“28. október 2020 Móðir Atla Þórs Ólafssonar minnist sonar síns í dag en hann lést í Mexíkó í síðasta mánuði. Hann var þar búsettur undanfarin þrjú ár ásamt þarlendri unnustu sinni. Atli Þór var 36 ára gamall er hann lést. Atla Þór er minnst í Morgunblaðinu í dag. Þar segir móðir hans, Brynja Höskuldsdóttir, það þyngra en tárum taki að skrifa minningarorð um...
InnlentBjarni syrgir föður sinn sem lést í ýtuslysinu: „Ætla að gera hluti sem myndi gera hann stoltan“26. október 2020 Bjarni Heiðar Jósefsson, vélamaður og eigandi jarðvinnuverktakafyrirtækis, vonar að tíminn lækni sárin vegna sviplegs fráfalls föður síns, Jósefs G. Kristjánssonar, sem lést í hræðilegu ýtuslysi í síðustu viku. Í slysinu missti hann bæði föður sinn og mjög góðan vin. Jósef lést í vinnuslysi í malarnámu í Lambafelli aðfararnótt fimmtudagsins síðastliðinn. Hann var fæddur þann 28. nóvember 1967. Jósef lætur eftir...
InnlentJakob Jakobsson forstjóri Hafrannsóknarstofnunar látinn26. október 2020 Jakob Jakobsson, fiskifræðingur og fyrrverandi forstjóri Hafrannsóknastofnunar, lést á Landspítalanum síðastliðinn fimmtudag. Hann var 89 ára er hann lést. Hann lætur eftir sig eiginkonu og þrjú börn. Jakob fæddist 28. júní 1931 í Neskaupstað. Hann varð stúdent frá MR og lauk síðan prófi í fiskifræði og stærðfræði við Háskólann í Glasgow. Jakob hóf störf hjá Fiskideild atvinnudeildar Háskóla Íslands árið...
InnlentGámurinn sem kostaði Tomas lífið talinn öruggur23. október 2020 Margir hafa velt því fyrir sér hvernig ungur tæplega þrítugur maður, Tomas Mančiauskas, gat látið lífið af völdum söfnunargáms Rauða krossins. Líklega verður það ekki leyst fyrr en krufningu og rannsókn er lokið. Kristín S. Hjálmtýsdóttir, framkvæmdastjóri Rauða krossins, segir í svari við fyrirspurn Mannlífs að venjulega sé engin hætta af gámunum en við vissar aðstæður sé voðinn vís. Kristín...
InnlentKR kveður Karl: „Minnumst Kalla með miklu þakklæti fyrir allt sem hann gerði“23. október 2020 Karl Óskar Agnarsson, vallarvörður KR, lést í fyrradag á Landspítalanum, 68 ára að aldri. Hann var einn af dyggustu stuðningsmönnum og sjálfboðaliðum íþróttafélagsins til margra ára. Karl Óskar fæddist 19. júní 1952 og helgaði líf sitt KR. Félagið minnist hins fallna félaga í færslu á heimasíðu félagsins. „Kalli vinur okkar og félagi lést sl. miðvikudagskvöld á Landspítalanum. Kalli var einn...
InnlentMagnús H. Magnússon stofnandi Galdrasafnsins látinn23. október 2020 Magnús H. Magnússon rafvirkjameistari er látinn, 68 ára að aldri. Hann lætur eftir sig eiginkonu og fjögur börn. Magnús ólst upp á Hólmavík og byrjaði þar á sjó. Þaðan hélt hann í nám í Iðnskólann í Reykjavík. Magnús var mikill athafnamaður og tók virkan þátt í uppbyggingu ferðamála á Vestfjörum þar sem hann rak meðal annars bílaleigu, var vitavörður, umsjónarmaður...