Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Jakob Jakobsson forstjóri Hafrannsóknarstofnunar látinn

Jakob Jakobsson forstjóri Hafrannsóknarstofnunar látinn

Jakob Jak­obs­son, fiski­fræð­ingur og fyrr­ver­andi for­stjóri Haf­rann­sókna­stofn­unar, lést á Land­spít­al­anum síð­ast­lið­inn fimmtu­dag. Hann var 89 ára er hann lést. Hann lætur eftir sig eig­in­konu og þrjú börn.

Jakob fædd­ist 28. júní 1931 í Nes­kaup­stað. Hann varð stúd­ent frá MR og lauk síðan prófi í fiski­fræði og stærð­fræði við Háskól­ann í Glasgow. Jakob hóf störf hjá Fiski­deild atvinnu­deildar Háskóla Íslands árið 1956 sem síðar var ðað Haf­rann­sókn­ar­stofnun. Þar gerð­ist hann aðstoð­ar­for­stjóri 1975 og síðar for­stjóri 1984 sem hann gegndi til árs­ins 1998.

Fiski­fræð­ing­ur­inn Jakob var einn helsti sér­fræð­ingur lands­ins á sviði síld­ar­rann­sókna. Undir hans for­ystu efldist starf­semi Haf­rann­sókn­ar­stofn­unar. Eftir að Jakob hætti sem for­stjóri tók hann við stöðu pró­fess­ors við Háskóla Íslands en hélt áfram síld­ar­rann­sóknum af krafti. Á sviði fiski­fræð­innar rit­aði hann fjölda fræði­greina og hlaut fjölda við­ur­kenn­inga fyrir störf sín. Jakob var sæmdur ridd­ara­krossi hinnar íslensku fálka­orðu árið 1965 og síðar stór­ridd­ara­krossi árið 1986.

Sigurjón M. Egilsson, rit­stjóri Miðj­unnar, minn­ist Jakobs í pistli á vef­síðu sinni. Þar rifjar hann upp fund sem hann sat með for­stjór­anum þegar Sigurjón stýrði Sjó­manna­blað­inu Víkingi. „Jakob hafði gefið út að loðnu­stofn­inn stæði veikt og lagði til að litlar sem engar loðnu­veiðar yrðu á kom­andi ver­tíð. Skip­stjór­arnir sóttu hart að fiski­fræð­ingnum Jakobi. Hann varð­ist og færði rök fyrir máli sínu. Svo kom að einn skip­stjór­anna gat ekki leynt von­brigðum sínum, hækk­aði rödd­ina, barði í borðið sagði, Jakob, þið verðið að telja aftur. Jakob brást við hinn róleg­asti og sagði. Þið eruð eins og rón­arnir. Þeir voru nokkrir saman að snapa fyrir flösku. Sem þá kost­aði 200 krónur. Þeir töldu saman pen­ing­ana sem þeir voru með og þeir áttu aðeins 197 krónur. Það vant­aði enn þrjár krónur. Þá lagði einn þeirra til og sagði, teljum aftur,“ segir Sigurjón.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ