InnlentCovid-19Guðmundur Ingi fokillur vegna slóðaskapar ríkisstjórnarinnar: „Börnin gráta sárt“29. mars 2021 „Fólk er lokað inni matar- og peningalaust,” segir Guðmundur Ingi Kristinsson, Flokki fólkins. Hann er harðorður í garð þess sem hann kallar slóðaskap ríkisstjórnarinnar í Covid-19 faraldrindum. „Við erum að ræða hér sóttvarnir og því miður, ég verð bara að segja það: Klúður, klúður klúður. Því miður klúðraðist þetta. Við hefðum getað haft það svo gott,“ sagði Guðmundur Ingi meðal...
InnlentCovid-19Ragnar Freyr læknir: „Það er varla þess virði að svara þessu, þetta er svo vitlaust“29. mars 2021 Ragnar Freyr Ingvarsson, sérfræðingur í lyf- og gigtarlækningum og umsjónarlæknir COVID göngudeildar Landspítalans, segist þurfa setja sig í sérstakar stellingar til að geta svarað 31 ástæðu fyrir því að láta ekki bólusetja sig, sem Guðrún Bergmann birtir á vefsíðu sinni. „Það er varla þess virði að svara þessu þetta er svo vitlaust, svo fullt af rangfærslum. Strax fyrsta ástæðan sem...
InnlentCovid-19Kári Stefánsson um hugmynd um Covid-litakóða: „Fáránleg, hlægileg og glæpsamleg.“28. mars 2021 Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar segir áform ríkisstjórnarinnar um að fara eftir litakóðunarkerfi við móttöku fólks á landamærunum út í hött: „Sú tillaga er einhvers staðar á milli þess að vera fáránleg, hlægileg og glæpsamleg. Það er alveg gjörsamlega út í hött,“ sagði Kári í þættinum Sprengisandi í morgun. Kári hrósaði ríkisstjórninni og sagði hana hafa staðið sig mjög vel...
InnlentCovid-19Rögnvaldur jákvæður – Covid hugsanlega á undanhaldi27. mars 2021 Í gær greindust sex með kórónuveiruna, þar af tveir á landamærunum og voru hinir fjórir allir í sóttkví. Vísbendingar eru um að búið sé að ná tökum á stöðunni samkvæmt Rögnvaldi Ólafssyni, aðstoðaryfirlögregluþjóns almannavarna. Hann segir þó of snemmt að fullyrða um slíkt. „Þetta eru enn sem komið er jákvæðar fréttir. Fjöldinn er auðvitað ekki jákvæður en að það skuli...
InnlentCovid-19Útlendingar reiðast Kára og saka um útlendingahatur: „Það ætti að refsa honum“26. mars 2021 Ummæli Kára Stefánssonar um að stórt hlutfall af COVID-19 sýkingum sem greindust við landamærin séu meðal fólks sem þarf að ferðast til og frá Íslandi til að viðhalda rétti sínum til atvinnuleysisbóta, hafa farið misjafnlega í útlendinga búsetta á Íslandi. „Mjög stór hundraðshluti þeirra sem koma hingað sýktir koma frá Austur-Evrópu. Býsna stór hundraðshluti þeirra hefur búsetu á Íslandi, en...
InnlentCovid-19Starfsmaður ferðaþjónustu COVID smitaður við gosstöðvarnar26. mars 2021 Aðili sem starfar í ferðaþjónustu á gosstöðvunum í Geldingadal greindist með COVID-19. Var hann eini aðilinn sem greindist í gær sem var utan sóttkvíar. Aðrir fimm greindust í gær, en voru þeir allir í sóttkví. Biðlar Þórólfur Guðnason, sóttvarnarlæknir til fólks að vera ekki að ganga upp að gosinu að svo búnu. Þórólfur segir í samtali við RÚV það vera...
InnlentCovid-19Brjálað að gera í Vínbúðum landsins25. mars 2021 Örtröð myndaðist í Vínbúðum landsins síðdegis í gær, eftir að tilkynnt var um hertar sóttvarnaraðgerðir og voru hillur farnar að tæmast í lok dags. Fólk var augljóslega að byrgja sig upp og þar með að reyna sleppa við að þurfa bíða í biðröðum til að komast inn í áfengisverslanir, sem gæti óhjákvæmilega gerst eftir að fjöldatakmarkanir tóku gildi á miðnætti....
InnlentCovid-19Reiðir leikskólastarfsmenn án bólusetningar í smithættu – „Við erum berskjölduð“25. mars 2021 Mikil reiði er á meðal leikskólastarfsmanna vegna þess að leikskólarnir eru galopnir á meðan breska afbrigði kórónaveirinnar berst á milli fólks og þá ekki síst barna. „Við erum í 8 flokki í bólusetningum og enginn búinn að fá bólusetningu. Við erum berskjölduð,“ sagði leikskólastarfsmaður sem Mannlíf ræddi við í morgun. Starfsmaðurinn, sem þorði ekki að koma fram undir nafni af...
InnlentCovid-19Fjórða bylgja Covid-19 skekur þjóðina – Þetta verður bannað frá miðnætti24. mars 2021 Á miðnætti tekur í gildi tíu manna samkomubann og á bannið við alla sem eru fæddir fyrir árið 2015. Þetta kom fram á blaðamannafundi sem ríkisstjórnin hélt í dag en Kári Stefánsson hefur sagt fjórðu bylgja Covid komna til landsins. Takmarkanir gilda um allt land og í þrjár vikur til að byrja með. Munu takmarkanirnar gilda um allt land og...
InnlentCovid-19Kári Stefánsson svartsýnn og segir annað barnaskap: „Fjórða bylgjan komin í öllu sínu veldi“24. mars 2021 Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar segir smittölur dagsins ógnvekjandi. Sautján manns greindust með kórónuveiruna innanlands í gær og hafa ekki greinst fleiri síðan 30. nóvember. Kári segir í samtalið við Vísi: „Ég held að fjórða bylgjan sé komin hér í öllu sínu veldi. Ég held að það væri barnaskapur að reikna með einhverju öðru.“ Hann segir líklegt að smitin sem...
InnlentCovid-19Allir nemendur tveggja skóla í sóttkví – Minnst fjórir smitaðir24. mars 2021 Allir nemendur í Laugarnesskóla og Laugalækjaskóla í Reykjavík fara í úrvinnslusóttkví í dag. Það þýðir að nemendurnir verða í sóttkví í skamman tíma á meðan Covid-19 hópsmitin eru rakin áfram. Minnst fjórir nemendur hafa greinst með veiruna. Hinir smituðu nemendur eru allir í Laugarnesskóla og var öllum tilkynnt um sóttkvínna með tölvupósti í gærkvöldi. Um síðustu helgi greindust bæði nemandi...
InnlentCovid-19Aðstoðarmaður landlæknis útilokar ekki að bólusettir ferðamenn geti smitað18. mars 2021 Það er ekki 100% öruggt að þeir sem hafi verið bólusettir gegn COVID-19, smiti ekki, en nú fá ferðamenn frá löndum utan Schengensvæðisins að koma til Íslands ef þeir eru með bólusetningarvottorð. Undir þetta tekur Kjartan Hreinn Njálsson, aðstoðarmaður landlæknis, í samtali við Mannlíf. Kjartan telur þó litlar líkur á því. „Það er talið ólíklegt að þeir sem hafa verið...