InnlentCovid-19Útgerð frystitogarans hlýddi ekki lækni: Veikum sjómönnum haldið úti á sjó22. október 2020 Forsvarsmenn Hraðfrystihússins Gunnvarar, sem gerir út togarann Júlíus Geirmundsson ÍS, voru ítrekað hvattir til að halda með skipið í land í Covid-sýnatöku. Þau tilmæli bárust frá umdæmislækni sóttvarna á Vestfjörðum, Súsönnu Björgu Ástvaldsdóttur, meðal annars á þriðja degi túrsins, en þau tilmæli voru virt að vettugi. Útgerðin sendi frá sér yfirlýsingu í gær þar sem það sagði að í ljósi...
InnlentCovid-19Skuggahliðar Covid: Heimilisofbeldi rauk upp í samkomubanni22. október 2020 Tölur sýna að heimilisofbeldi eykst talsvert í samkomubanni. Frá því það var sett á í fyrstu bylgju faraldursins jókst það um ríflega helming í höfuðborginni frá mánuðunum þar á undan. Þannig varð til dæmis 55 prósenta aukning á tilkynntu ofbeldi í apríl miðað við í febrúar þegar ekkert bann var í gildi. Þetta sýna tölur lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Heilt yfir...
InnlentCovid-19Sjómenn í einangrun á prestsetri – Áhafnarmeðlimir enn að veikjast21. október 2020 Áhafnarmeðlimir frystitogarans Júlíusar Geimundssonar ÍS halda í Covid-einangrun í skólabyggingu að Holti í Önundarfirði. Þar var áður prestsetur. Samkvæmt heimildum Mannlífs eru sjómennirnir enn að veikjast. Nærri 20 manns af 25 manna úr áhöfn frystitogarans smituðust af Covid. Þetta kom fram á sunnudag þegar skipið leitaði hafnar eftir að veikindi höfðu herjað á áhöfnina í þá 20 daga sem skipið...
MenningCovid-19Þingmaðurinn fyrrverandi: Ég er Kórónaveiran21. október 2020 Hjálmar Árnason, fyrrverandi þingmaður og rektor Keilis, er ekki aðgerðalaus eftir að hann fór á eftirlaun. Hann skrifaði barnabók um veiruna illræmdu sem tröllríður samfélaginu. Bókin er skrifuð í léttum dúr með mögnuðum teikningum eftir Fanney Sizemore. Hjálmar var um árabil alþingismaður Framsóknarflokksins í suðurkjördæmi. Þá var hann skólameistari háskólans Keilis á Suðurnesjum. Hann er þekktur útivistarmaður og er gjarnan...
InnlentCovid-19Björn Ingi uggandi yfir ræktinni – Opna aftur helstu gróðrarstía COVID gegn vilja Þórólfs20. október 2020 Björn Inga Hrafnssyni, blaðamanni og óneitanlega helsta áhugamann Íslands um COVID, líst ekki á blikuna. Hann gefur sterklega í skyn að enduropnun líkamsræktarstöðva geti haft skelfileg áhrif á þróun mála næstu vikur. Færsla hans á Facebook um þetta hefur fengið mikil viðbrögð á stuttum tíma og ljóst að margir eru sammála honum. Björn Ingi fullyrðir að það sé skrifstofufólk í...
InnlentCovid-19Frystitogari kallaður í land: Stærstur hluti áhafnar smitaður af Covid19. október 2020 Um 20 manns af 24 úr áhöfn frystitogarans Júlíusar Geirmundssonar ÍS smituðust af Covid. Þetta kom fram í gær þegar skipið leitaði hafnar eftir að veikindi höfðu herjað á áhöfnina í þá 20 daga sem skipið hafði verið í veiðiferðinni. Allan túrinn voru menn að veikjast einn og einn. Fæstir urðu mjög veikir en þó var undantekning þar á. Það...
InnlentCovid-19Arnar skilur ekki reglur Læknavaktarinnar: „Húðin er samt æði“16. október 2020 Færsla Arnars Marvin Kristjánssonar hefur heldur betur slegið í gegn en þar gerir hann góðlátlegt grín að orðalagi sem finna má á Læknavaktinni. Læknavaktin fer fram á að gestir þar séu með „andlitsmaska“ en ekki andlitsgrímu líkt og slíkt kallast yfirleitt á íslensku. Arnar skrifar: „Hata að þurfa að hlaupa alla leiðina heim frá læknavaktinni til þess eins að mjaka...
InnlentCovid-19Öldruð kona lést af COVID16. október 2020 Sjúklingurinn sem lést af völdum COVID á Landspítalanum var öldruð kona. Vísir greinir frá þessu. Hún var ekki á gjörgæslu þegar hún lést samkvæmt Má Kristjánssyni yfirlækni á smitsjúkdómadeild Landspítalans. Hún er sá ellefti á Íslandi sem lést af völdum COVID. Tíu létust í fyrstu bylgjunni í vor.
InnlentCovid-19Lést af COVID á Landspítalanum – Fyrsta andlát þriðju bylgjunnar16. október 2020 Einn sjúklingur lést síðasta sólarhring á Landspítala vegna COVID. Þetta kemur fram í tilkynningu frá spítalanum. Ekkert kemur fram um sjúklinginn utan þess. Viðkomandi er þá sá ellefti á Íslandi sem lést af völdum COVID. Tíu létust í fyrstu bylgjunni í vor.
InnlentCovid-19Sólveig biður þig um að vera heima: „Ég er bara að reyna að lifa af“15. október 2020 Sólveig Hauksdóttir hjúkrunarfræðingur birtir á Twitter mynd af sér við hennar dagslegu störf. Líkt og sjá má á myndinni þá er ekkert grín að starfa á spítala á Íslandi í dag. „Hæ, hérna… Nennið þið ekki bara að vera heima hjá ykkur? Takk,“ skrifar Sólveig. Nokkrir menn hafa notað tækifærið til að hnýta í hana þar sem mynd hennar hefur...
SlúðurCovid-19Kófsveittur covidsjúklingur reyndi að …14. október 2020 Á meðal þeirra sem voru svo óheppnir að veikjast af Covid er sjálfur Eiríkur Jónsson fjölmiðlamaður. Hann lýsti veikindum sínum með afar dramatískum hætti og hvernig hann barðist kófsveittur við veiruna. Eiríkur er einn grimmasti fyrirsagnasmiður samtímans. Hann á fyrirsagnir sem sumar hverjar hafa nánast sett fjölmiðil hans í gröfina. Þar var um að ræða Ísafjarðarmálið og kennarann sem sakaður...
InnlentCovid-19Svona vörðumst við Spænsku veikinni: Landshlutaeingangrun bjargaði nærri helmingnum13. október 2020 Þegar Spænska veikin felldi nærri 500 Íslendinga var stór hluti landsins settur í eingangrun. Samgöngubann var sett á þannig að Norður-, Suður- og Austurland voru einangruð frá suðvesturhorni landsins og Vesturlandinu. Þannig tókst að forða 40 prósentum þjóðarinnar frá veirunni skæðu. Árið 1918 var Ísland bændasamfélag þar sem nærri 60 prósent af ríflega 90 þúsund íbúum bjuggu í dreifbýli og...