Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Svona vörðumst við Spænsku veikinni: Landshlutaeingangrun bjargaði nærri helmingnum

Svona vörðumst við Spænsku veikinni: Landshlutaeingangrun bjargaði nærri helmingnum
Börn og hjúkr­un­ar­fólk í spænsku veik­inni í Reykja­vík. Myndin er senni­lega tekin í Barna­skól­anum sem var breytt í bráða­birgða­sjúkra­hús. Mynd / Vís­inda­vefur HÍ.

Þegar Spænska veikin felldi nærri 500 Íslend­inga var stór hluti lands­ins settur í ein­gangrun. Sam­göngu­bann var sett á þannig að Norður-, Suður- og Aust­ur­land voru ein­angruð frá suð­vest­ur­horni lands­ins og Vest­ur­land­inu. Þannig tókst að forða 40 pró­sentum þjóð­ar­innar frá veirunni skæðu.

Árið 1918 var Ísland bænda­sam­fé­lag þar sem nærri 60 pró­sent af ríf­lega 90 þús­und íbúum bjuggu í dreif­býli og hin 40 pró­sentin í þétt­býl­is­kjörnum. Fyrsta bylgja inflú­ensunnar barst til lands­ins í júlí 1918, en ein­kenni veik­innar voru þá yfir­leitt væg. Önnur bylgja veik­innar barst til svo lands­ins dag­ana 19. og 20. októ­ber með skip­verjum á Botníu og Willemoes. Þannig barst veikin frá Reykja­vík og Hafn­ar­firði til Suð­ur­nesja, yfir á Vest­ur­land og áfram norður á Vest­firði.

Fréttir af háu dán­ar­hlut­falli í Reykja­vík bár­ust fljótt til nær­liggj­andi byggð­ar­laga en það kom ekki í veg fyrir að veikin skal með fullum þunga bæði á Akranesi og Keflavík. Íbúar fjar­læg­ari staða höfðu hins vegar lengri tíma til að bregð­ast við yfir­vof­andi vá. Fyrir til­stuðlan heima­manna var komið á sam­göngu­banni yfir Holta­vörðu­heiði til norð­urs og ferða­lög austur yfir Jökulsá á Sól­heima­sandi voru bönnuð. Skip sem sigldu til Norður- og Aust­ur­lands voru sett í sótt­kví vikum saman eftir hild­ar­leik­inn í Reykja­vík. Eftirlit var haft með að sam­göngu­bann­inu væri hlýtt og tókst þannig að stemma stigu við útbreiðslu veik­innar til Norður- og Aust­ur­lands.

Það vekur athygli að heima­menn, bæði norð­an­lands og austan, áttu frum­kvæði að ein­angrun sinna lands­hluta. Þetta sam­göngu­bann varð án efa til þess að veikin barst hvorki til Norður- né Aust­ur­lands ásamt hluta Vest­ur­lands.

„Blóðið streymdi ekki aðeins úr nösum, stundum óstöðv­andi, heldur og upp úr lungum, niður úr þörmum, upp úr maga og gegnum þvag­rás­ina.“

Ljóst þykir á lýs­ingum að Spænska veikin var mjög skæð. Þannig rit­aði Þórður Thorods­sen læknir eft­ir­far­andi lýs­ingu í Lækna­blað­inu árið 1919. „Að því er sjálfa veik­ina snertir, var hún mjög ein­kenni­leg og að mörgu leyti alt öðru­vísi en þær inflú­ensu-sóttir, sem áður hafa gengið og eg hefi séð. Eg var alvanur við að sjá í fyrri sóttum barka­kvef og háls­bólgur, lungna­kvef og lungna­bólgur, bæði bronco-pneumon­íur og krúpösar, eyrna­bólgur, tauga­verki, upp­köst og nið­ur­gang, konur hafa misst fangs og sumir orðið hálf brjál­aðir um tíma. En svo þungt lungna­kvef, svo tíðar lungna­bólgur sem í þess­ari sótt hefi eg aldrei séð. Og þessar blæð­ingar. Blóðið streymdi ekki aðeins úr nösum, stundum óstöðv­andi, heldur og upp úr lungum, niður úr þörmum, upp úr maga og gegnum þvag­rás­ina. Lungna­bólgan kom þótt menn lægju kyrrir í rúmunum og gættu allrar var­úðar. Og þótt lungna­bólgan rén­aði, fór hjartað að ólm­ast, hræðsla greip menn og kvíði, þyngsli komu og and­ar­teppa, menn bólgn­uðu í and­liti, á höndum og fótum og köfn­uðu að lokum. Og svo eftir alt saman urðu líkin hel­blá. Þetta er það, sem gerði þessa inflú­ensa-sótt svo ein­kenni­lega og ægi­legri en aðrar inflú­ensa-sóttir, sem eg hefi séð,“ sagði Þórður.

Á Íslandi er talið að tæp­lega 500 manns hafi lát­ist í annarri bylgju veik­innar og mestur var fjöld­inn í Reykja­vík, tæp­lega 300 manns. Dán­ar­hlut­fallið var nálægt 2,8 pró­sentum hér á landi. Þegar aldur fórn­ar­lamba spænsku veik­innar er skoð­aður kemur í ljós að ungt og hraust fólk á aldr­inum 20-40 ára varð verst úti, ásamt smá­börnum og eldri borg­urum.

Magnús Gott­freðs­son smit­sjúk­dóma­læknir fór yfir veik­ina og við­brögð yfir­valda við henni í Lækna­blað­inu fyrir rúmum ára­tug síðan. Þar segir hann að ýmsan lær­dóm megi draga af útbreiðslu veik­innar hér á landi. Einna merkast megi telja að hér tókst að ein­angra stóran hluta lands­ins en það er lík­lega eins­dæmi þegar heil þjóð á í hlut. Í öðru lagi hafa lítil og sein við­brögð heil­brigð­is­yf­ir­valda orðið mönnum umhugs­un­ar­efni. „Það er auð­velt að vera vitur eftir á,“ sagði Magnús í loka­orðum sínum.

Þessi mynd sýnir hvar Spænska veikin herj­aði á Íslandi. Mynd / Lækna­blaðið.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ