InnlentCovid-19Veit ekki hvort hún var COVID smituð því sýnin týndust11. apríl 2020 „Ég hreinlega veit ekki hvort ég hafi verið smituð eða ekki. Úr því fæ ég líklega aldrei skorið,“ segir Tanja Líf Traustadóttir, 21 árs leiklistarnemi í Barcelona, sem leitaði til heilbrigðisyfirvalda snemma í marsmánuði eftir að listaháskólinn sem hún stundar nám í fór fram á að hún yrði skimuð. Ástæðan er sú að Tanja Líf hafði farið með fjölskyldu sinni...
InnlentCovid-19Áttunda andlátið vegna COVID staðfest11. apríl 2020 Áttunda andlitið vegna COVID-19 hérlendis tilkynnti Landspítalinn í dag og vottar þar einnig fjölskyldu sjúklingsins samúðar. Sjúklingurinn lést á síðasta sólarhring og það er annar dagurinn í röð þar sem spítalinn tilkynnir andlát vegna COVID-19. Samkvæmt nýjustu tölum eru 40 á sjúkrahúsi vegna veikinnar og 11 á gjörgæslu. Staðfest smit hér á landi eru 1.675 talsins.
InnlentCovid-19Einkaviðtal við bakvörðinn: „Ég var meðhöndluð eins og stórglæpamaður“11. apríl 2020 „Ég lýsi algjörlega yfir sakleysi mínu. Það er bara verið að reyna koma á mig einhverri sök og drulla yfir mig,“ segir Anna Aurora Waage Óskarsdóttir sem handtekin var í gær vegna ásakana um að hafa villt á sér heimildir og þjófnað sem bakvörður á Hjúkrunarheimilinu Bergi í Bolungarvík. Hún hefur ráðið sér lögmann til að stefna Gylfa Ólafssyni forstjóra...
InnlentCovid-19Grunaði bakvörðurinn ekki með Covid-1911. apríl 2020 Meðlimir bakvarðasveitarinnar sem starfað hefur á hjúkrunarheimilinu Bergi í Bolungarvík eru ekki með Covid-19, samkvæmt sýnum sem voru tekin úr fólkinu. Vísir greinir frá þessu og ræðir við Gylfa Ólafsson, forstjóra Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða, sem staðfestir þetta í samtali við fréttastofu. Sveitin þurfti að fara í sóttkví á farsóttarheimilinu á Ísafirði í kjölfar þess að kona úr sveitinni var handtekin, grunuð...
InnlentCovid-19Kári Stefánsson: „Fólk gæti verið að dreifa veirunni án þess að vita af því“11. apríl 2020 „Þetta er svolítið ógnvekjandi. Fólk gæti því verið að dreifa veirunni án þess að vita af því.“ Þetta segir Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, í samtali við vefútgáfu bandaríska tímaritsins USA Today, þar sem fjallað er um aðgerðir stjórnvalda hérlendis til að takmarka útbreiðslu veirunnar og rannsóknir Íslenskrar erfðagreiningar á henni. Í greininni, sem mbl.is vekur athygli á, segir Kári...
InnlentCovid-19Bakvörðurinn segist vera saklaus11. apríl 2020 Konan, sem var handtekin í gær grunuð um hafa framvísað fölsku starfsleyfi sem heilbrigðisstarfsmaður og stolið lyfjum á dvalarheimilinu Bergi í Bolungarvík, segist vera saklaus. Lögmaður konunnar, Jón Bjarni Kristjánsson, hefur sent yfirlýsingu á fjölmiðla þar sem fram kemur að konan hafi hvorki framvísað fölskum gögnum né gert tilraun til að villa á sér heimildir, en það var forstjóri Heilbrigðisstofnunar...
InnlentCovid-19Reiknar með að meirihluta fyrirtækja verði lokað11. apríl 2020 Framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar segir að fari svo að áfram verði ferðatakmarkanir á flæði fólks til og frá landinu næstu mánuðina, þá megi gera ráð fyrir því að meirihluti ferðaþjónustufyrirtækja verði lokað. „Það er alveg ljóst að ef það verða hömlur í eitt eða eitt og hálft ár þá þarf að fá lausnir sem gera fyrirtækjum kleift að vera lokuð í...
InnlentCovid-19„Falski“ bakvörðurinn á framboðslista í síðustu kosningum – „Harmleikur“ segir fyrrverandi samstarfsmaður10. apríl 2020 Kona á fertugsaldri, sem handtekin var í dag og sleppt úr haldi lögreglunnar á Vestfjörðum seinni partinn, var á framboðslista stjórnmálaflokks á Suðvesturhorninu og tók þátt í stjórnmálum í bæjarfélaginu sem hún býr í samkvæmt öruggum heimildum Mannlífs. Sjá einnig: Bakvörður með falsaða pappíra handtekinn – verður skimaður fyrir Covid-19 Konan var handtekin grunuð um hafa framvísað fölsku starfsleyfi sem...
InnlentCovid-19Bakverði sem grunaður er um þjófnað sleppt úr haldi10. apríl 2020 Lögreglan á Vestfjörðum hefur sleppt konu, sem er grunuð um að hafa framvísað fölsku starfsleyfi sem heilbrigðisstarfsmaður og stolið lyfjum, úr haldi. Konan sem hefur starfað í viku á hjúkrunarheimilinu Bergi í Bolungarvík var handtekin fyrr í dag. Ekki þótti ástæða til að halda henni lengur þar sem yfirheyrslu er lokið. Greint er frá því á Facebooksíðu lögreglunnar að kæra...
InnlentCovid-19Annalísa lést vegna COVID-19: „Ég er endalaust þakklát fyrir tímann með henni“10. apríl 2020 Annalísa Jansen lést í morgun vegna COVID-19, 80 ára að aldri. Annalísa skilur eftir sig fjögur börn, ellefu barnabörn auk barnabarnabarna. Fréttablaðið greindi frá nafni Önnulísu. Dóttir Önnulísu, Anna Margrét Ólafsdóttir og dóttir hennar, Ragnheiður Ásta Pétursdóttir, minnast Önnulísu með færslum á Facebook og gáfu Mannlíf góðfúslegt leyfi til að deila minningarorðum sínum. Ragnheiður Ásta Pétursdóttur barnabarn Önnulísu minnist ömmu...
InnlentCovid-19Bakvörður með falsaða pappíra handtekinn – verður skimaður fyrir Covid-1910. apríl 2020 Alma Möller greindi frá því á blaðamannafundi Almannavarna rétt í þessu að kona sem hefur starfað í vikunni á hjúkrunarheimilinu Bergi í Bolungarvík hafi verið handtekin í morgun. Lögregla er með málið til rannsóknar. Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn greindi ennfremur frá því að kona sem hefur unnið í viku á hjúkrunarheimilinu hafi verið handtekin, grunuð um að hafa falsað starfsleyfi og...
InnlentCovid-19Sjöunda dauðsfallið á Íslandi af völdum Covid-1910. apríl 2020 Einn sjúklingur lést á á síðasta sólarhring á Landspítala af völdum kórónuveirunnar. Þar með hafa sjö látist hérlendis vegna Covid-19. Þetta kemur fram í tilkynningu á heimasíðu Landspítalans, þar sem spítalinn vottar fjölskyldu viðkomandi samúð. Ástralskur ferðamaður á fertugsaldri var sá fyrsti sem lést af völdum veirunnar hérlendis, nánar tiltekið á sjúkrahúsinnu á Húsavík, hjón úr Hveragerði á áttræðisaldri létust...