InnlentCovid-19Biðja fólk um að handleika ekki flöskur að óþörfu23. mars 2020 Í nýjum auglýsingum Víðbúðanna eru viðskiptavinir hvattir til að handleika ekki vínflöskur að óþörfu og þannig draga úr smithættu kórónaveirunnar. Í auglýsingunni er fólk áfram hvatt til að forðast annatíma ef mögulegt er og reyna að versla við Vínbúðina fyrri hluta dags eða í upphafi vikunnar, þegar minna er að gera. Þess má geta að mest er að gera í...
InnlentCovid-19Strætisvögnum skipt í tvo hluta og engir skiptimiðar23. mars 2020 Frá og með deginum í dag verður rými strætisvagna höfuðborgarsvæðisins skipt upp í tvo hluta. Borði verður strengdur fyrir fremsta hluta vagnanna til þess að aðskilja svæði vagnstjóra og svæði farþega. Farþegar Strætó munu halda áfram að ganga inn um mið- eða aftari dyr vagnsins og Strætó mælir með að viðskiptavinir greiði fargjaldið með því að halda Strætókorti eða Strætóappi...
HeimurCovid-19Harvey Weinstein með COVID-1923. mars 2020 Kvikmyndaframleiðandinn og kynferðisbrotamaðurinn Harvey Weinstein er með COVID-19 sjúkdóminn. BBC greinir frá. Weinstein var í dæmdur til 23 ára fangelsisvistar fyrir nauðgun og kynferðislega áreitni þann 11. mars. Hann hefur verið í Wende-fangelsinu í New York síðan dómur í málinu féll og er talinn hafa smitast þar. Weinstein er nú í einangrun og Michael Powers, fangelsismálastjóri New York-fylkis, staðfesti það....
InnlentCovid-19Smári McCarthy smitaður af COVID-19: „Ég er í stuttu máli ótrúlega heppinn með hvað þetta virðist vægt“23. mars 2020 Smári McCarthy, þingmaður Pírata, greinir frá því í færslu á Facebook að hann greindist með COVID-19 kórónuveiruna. „Jæja. Það kom að því. Fyrir rúmri viku fór ég í sjálfskipaða sóttkví eftir að ég fór að fá hósta. Það kom á daginn í gær eftir prufu á föstudaginn að ég er búinn að vera með Covid-19 smit. Ég er þokkalega hress,...
InnlentCovid-19Sum íslensk fyrirtæki sýna engin grið vegna COVID-1922. mars 2020 Formaður Neytendasamtakanna hvetur stjórnendur fyrirtækja til að koma til móts við neytendur með sanngjörnum hætti á tímum kórónaveirunnar. Hann telur mikilvægt að hafa sanngirni og stillingu að leiðarljósi. „Við hvetjum stjórnendur fyrirtækja til að koma til móts við viðskiptavini eins og þeir mögulega geta. Það eru engin fyrirtæki án neytenda.“ Þetta segir Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna, í samtali við Mannlíf....
InnlentCovid-19Hert samkomubann: Ekki fleiri en 20 mega koma saman22. mars 2020 Heilbrigðisráðherra hefur tilkynnt að samkomubann miðist nú við að eigi fleiri en tuttugu einstaklingar komi saman hverju sinni. Bannið tekur gildi á miðnætti annað kvöld, mánudaginn 23. mars. Gerir ráðherra þetta í samráði við tilmæli sóttvarnalæknis til að koma í veg fyrir frekari útbreiðslu COVID-19 í samfélaginu. Allar fjöldasamkomur þar sem fleiri en 20 manns koma saman verða óheimilar meðan...
InnlentCovid-19Hugur Elliða hjá Eyjamönnum: Erfið staða en vel unnið að málum22. mars 2020 Elliði Vignisson, sveitarstjóri í Ölfusi og fyrrverandi bæjarstjóri Vestmannaeyja, segir að þrátt fyrir þá þungu stöðu sem er komin upp í Eyjum vegna COVID-19 þá sé verið að vinna þrekvirki þar við að hefta útbreiðslu veirunnar. Hann kveðst hafa fullan skilning á líðan íbúa í Eyjum, ekki síst þar sem náinn ástvinur hans sé kominn í sóttkví. „Þetta er auðvitað...
InnlentCovid-19Stöð Sport 2 rukkar fyrir ekkert22. mars 2020 Íslenskar efnisveitur ganga mislangt til að koma til móts við þarfir neytenda á tímum kórónaveirunnar. Vodafone greinir frá því á heimasíðu sinni að Stöð 2 muni bjóða öllum landsmönnum opinn aðgang að Stöð 2 Krakkar, Stöð 2 Bíó og Stöð 3 frá 16. mars. Þá hefur verð á Stöð 2 Maraþon verið lækkað niður í tæpar þúsund krónur. Þegar kemur...
InnlentCovid-19Bæjarstjórinn í Eyjum biður íbúa um að halda ró sinni22. mars 2020 Alls hafa 27 manns greinst með COVID-19 í Vestmannaeyjum. Hefur einn verið lagður inn á spítala og eru nær 400 manns í sóttkví. Bæjarstjóri Vestmannaeyja biðlar til íbúa að halda ró sinni. „Við lifum nú ástand sem er ólíkt öllu sem við höfum áður þekkt. Af því leiðir að við getum ekki nema að takmörkuðu leyti notfært okkur fyrri reynslu...
InnlentCovid-19Flugleiðir til Íslands gætu lokast22. mars 2020 Utanríkisráðherra hvetur Íslendinga, sem eru staddir erlendis, að huga að heimkomu sem allra fyrst, hafi þeir það í hyggju á annað borð, því sá möguleiki sé fyrir hendi að öllum flugleiðum til landsins verði lokað um næstu mánaðarmót. „Þeir Íslendingar sem hyggja á heimkomu þurfa að snúa heim strax, skrá sig í gagnagrunn borgaraþjónustunnar og hafa beint samband ef þeir...
HeimurCovid-19Bað kærustunnar í Iceland eftir að bónorðsferðinni til Íslands var aflýst21. mars 2020 Breskur hjúkrunarfræðingur gerði það besta úr stöðunni sem kom upp eftir að fluginu sem hann hafði pantað til Íslands til að biðja kærustunnar þar var aflýst. Hann gerði sér lítið fyrir og féll á kné í einni af verslunum verslunarkeðjunnar Iceland í Bretlandi og bar upp bónorðið. Unnustan sagði já. Eftir að hafa fengið tilkynningu um að fluginu til Íslands...
InnlentCovid-19Íslenskum skólum mögulega lokað21. mars 2020 Til greina kemur að loka skólum og dagvistum. Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá ríkislögreglustjóra, greindi frá þessu í samtali við fréttastofu RÚV, þegar hann var spurður út í fyrirhugaðar hertar aðgerðir stjórnvalda til að hefta útbreiðslu COVID-19 á landinu Á blaðamannafundi í Skógarhlíð sagði Víðir að aðgerðirnar ættu eftir að beinast að stöðum þar sem mikil nánd skapaðist milli fólks, svo...