Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Hert samkomubann: Ekki fleiri en 20 mega koma saman

Hert samkomubann: Ekki fleiri en 20 mega koma saman

Heil­brigð­is­ráð­herra hefur til­kynnt að sam­komu­bann mið­ist nú við að eigi fleiri en tutt­ugu ein­stak­lingar komi saman hverju sinni. Bannið tekur gildi á mið­nætti annað kvöld, mánu­dag­inn 23. mars. Gerir ráð­herra þetta í sam­ráði við til­mæli sótt­varna­læknis til að koma í veg fyrir frek­ari útbreiðslu COVID-19 í sam­fé­lag­inu.

Allar fjölda­sam­komur þar sem fleiri en 20 manns koma saman verða óheim­ilar meðan tak­mörk­unin er í gildi. Á það jafnt við hvort sem fólk kemur saman í opin­berum rýmum eða einka­rýmum. Skal tryggt að hægt sé að hafa a.m.k. tvo metra á milli ein­stak­linga.

Sund­laugum, lík­ams­rækt­ar­stöðvum, skemmti­stöðum, spila­sölum, spila­kössum og söfnum verður lokað á meðan þessum tak­mörk­unum stendur.

Starf­semi og þjón­usta sem krefst mik­illar nálægðar milli fólks eða skapar hættu á of mik­illi nálægð er óheimil. Þar undir fellur allt íþrótta­starf og einnig allar hár­greiðslu­stofur, snyrti­stofur, nudd­stofur og önnur sam­bæri­leg starf­semi. Þetta á einnig við um íþrótta­starf þar sem notkun á sam­eig­in­legum bún­aði getur haft smit­hættu í för með sér, s.s. skíða­lyftur.

Á vinnu­stöðum skal tryggt að aldrei séu fleiri en tutt­ugu ein­stak­linga í sama rými. Þessar tak­mark­anir eiga einnig við um almenn­ings­sam­komur og aðra sam­bæri­lega starf­semi.

Tak­mörkun á skóla­haldi verður þó áfram óbreytt og munu börn mæta áfram í skóla líkt og í síð­ustu viku.

Þessar tak­mark­anir eiga einnig við um almenn­ings­sam­komur og aðra sam­bæri­lega starf­semi.

Sér­stakar reglur gilda um mat­vöru­versl­anir og lyfja­búðir þar sem heim­ilt verður að hafa allt að 100 manns inni í einu. Ef mat­vöru­versl­anir eru yfir 1.000 fer­metrar er heim­ilt að hleypa til við­bótar einum ein­stak­lingi fyrir hverja tíu fer­metra þar umfram en þó aldrei fleiri en 200 við­skipta­vinum.

Helstu áhrif frek­ari tak­mörk­unar:
Allar fjölda­sam­komur þar sem fleiri en 20 manns koma saman eru óheim­ilar meðan tak­mörk­unin er í gildi. Á það jafnt við hvort sem fólk kemur saman í opin­berum rýmum eða einka­rýmum.

Hvar sem fólk kemur saman og í allri starf­semi skal tryggt að hægt sé að hafa a.m.k. 2 metra á milli ein­stak­linga.

Á öllum vinnu­stöðum eða þar sem önnur starf­semi fer fram skal vera tryggt að ekki séu fleiri en 20 ein­stak­lingar í sama rými. Þessar tak­mark­anir eiga einnig við um almenn­ings­sam­göngur og aðra sam­bæri­lega starf­semi.

Sér­stakar reglur gilda um mat­vöru­versl­anir og lyfja­búðir. Þar verður heim­ilt að hafa allt að 100 manns inni í einu, að því gefnu að hægt sé að halda a.m.k. 2 metra fjar­lægð milli ein­stak­linga. Ef mat­vöru­versl­anir eru yfir 1.000 m2 er heim­ilt að hleypa til við­bótar einum ein­stak­lingi fyrir hverja 10 m2 þar umfram en þó aldrei fleiri en 200 við­skipta­vinum.

Lokun sam­komu­staða og starf­semi vegna sér­stakrar smit­hættu
Sund­laugum, lík­ams­rækt­ar­stöðvum, skemmti­stöðum, spila­sölum, spila­kössum og söfnum skal lokað meðan á þessum tak­mörk­unum stendur.

Starf­semi og þjón­usta sem krefst mik­illar nálægðar milli fólks eða skapar hættu á of mik­illi nálægð er óheimil. Þar undir fellur allt íþrótta­starf og einnig allar hár­greiðslu­stofur, snyrti­stofur, nudd­stofur og önnur sam­bæri­leg starf­semi. Þetta á einnig við um íþrótta­starf þar sem notkun á sam­eig­in­legum bún­aði getur haft smit­hættu í för með sér, s.s. skíða­lyftur.

Þrif og sótt­hreinsun almenn­ings­rýma
Í öllum versl­unum, opin­berum bygg­ingum og á öðrum stöðum inn­an­dyra þar sem umgangur fólks er nokkur skal þrifið eins oft og unnt er, sér­stak­lega algenga snertifleti.

Við alla inn­ganga skal tryggja aðgang að sótt­hreins­andi vökva fyrir hendur og eins víða um rými og talin er þörf á, s.s. við afgreiðslu­kassa í versl­unum.

Und­an­skilið ákvörðun um hertar tak­mark­anir
Sérstök aug­lýs­ing sem áður hefur verið birt gildir um tak­mörkun skóla­starfs. Þó skal fylgja fjar­lægð­ar­mörkum um tveggja metra fjar­lægð milli ein­stak­linga eftir því sem það á við og mögu­legt er, einkum gagn­vart eldri börnum.

Tak­mörk­unin gildir ekki um nauð­syn­lega heil­brigð­is­þjón­ustu sem ekki getur beðið.

Tak­mörk­unin tekur hvorki til alþjóða­flug­valla og -hafna, né til loft­fara og skipa.

Und­an­þágur
Heil­brigð­is­ráð­herra getur veitt und­an­þágu frá tak­mörkun á sam­komum í þágu alls­herj­ar­reglu eða öryggis rík­is­ins eða til verndar lífs eða heilsu manna eða dýra.

Sótt­varna­læknir getur veitt und­an­þágu frá sótt­kví vegna sam­fé­lags­legra ómissandi inn­viða sem mega ekki stöðvast vegna lífs­bjarg­andi starf­semi, s.s. raf­orku, fjar­skipta, sam­gangna, heil­brigð­is­starf­semi, lög­gæslu, sjúkra­flutn­inga og slökkvi­liða.

Allar und­an­þágur sem veittar hafa verið vegna sótt­kvíar falla úr gildi og þurfa þeir sem slíkt hafa fengið að sækja um að nýju sé þörf á því.

Heil­brigð­is­ráð­herra mun birta í Stjórn­ar­tíð­indum nýja aug­lýs­ingu um tak­mörkun á sam­komum í stað þeirrar eldri sem fellur þar með úr gildi. Gild­is­tími verður óbreyttur, þ.e. til 5. apríl.

Tak­mörk­unin tekur til lands­ins alls. Stjórn­völd end­ur­meta tak­mörk­un­ina eftir því sem efni standa til, hvort heldur til að aflétta henni fyrr, eða fram­lengja gild­is­tím­ann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við