Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Sum íslensk fyrirtæki sýna engin grið vegna COVID-19

Sum íslensk fyrirtæki sýna engin grið vegna COVID-19
Breki Karlsson

Formaður Neyt­enda­sam­tak­anna hvetur stjórn­endur fyr­ir­tækja til að koma til móts við neyt­endur með sann­gjörnum hætti á tímum kór­óna­veirunnar. Hann telur mik­il­vægt að hafa sann­girni og still­ingu að leið­ar­ljósi.

„Við hvetjum stjórn­endur fyr­ir­tækja til að koma til móts við við­skipta­vini eins og þeir mögu­lega geta. Það eru engin fyr­ir­tæki án neyt­enda.“ Þetta segir Breki Karlsson, for­maður Neyt­enda­sam­tak­anna, í sam­tali við Mannlíf. Hann bætir reyndar við að það séu heldur engir neyt­endur án fyr­ir­tækja og vísar til snú­innar stöðu þeirra.

Samtökin hafa staðið í ströngu síð­ustu daga vegna kór­óna­veirunnar. Fyr­ir­spurnum hefur rignt yfir starfs­fólk sam­tak­anna, en þar vinna sex manns. Hér verður farið yfir hvernig nokkur af stærstu fyr­ir­tækjum lands­ins á sviði fjar­skipta, heilsu­ræktar og afþrey­ing­ar­þjón­ustu hafa brugð­ist við þeirri stöðu sem uppi er í íslensku sam­fé­lagi. Auk þess er farið yfir rétt­indi flug­far­þega.

Pakkaflugferðir endurgreiddar

Breki segir að fyrstu daga ferða­banns­ins hafi borist ótal fyr­ir­spurnir vegna pakka­ferða og flugs. Þar stendur fólk nokkuð vel hvað rétt­indi varðar. „Þeir sem hafa keypt sér ferða­pakka, það er sam­tengda þjón­ustu, svo sem flug og bíl eða flug og hótel, eru best varðir. Þeir eiga mestan rétt vegna aðstæðna. Þar er alla jafna hægt að afpanta og fá end­ur­greitt að fullu,“ útskýrir hann. Það sé laga­legur réttur fólks.

Á vef Neyt­enda­sam­tak­anna segir að sumar ferða­skrif­stofur hafi brugð­ist við ástand­inu með sóma­sam­legum hætti en aðrar síður. Vísað er í lög um pakka­ferðir þar sem segir meðal ann­ars að ferða­maður geti afpantað pakka­ferð áður en ferð hefst gegn greiðslu sann­gjarnar þókn­unar. Þar segir einnig: „Skipu­leggj­andi eða smá­sali á ekki rétt á greiðslu þókn­unar af hendi ferða­manns ef afpöntun er vegna óvenju­legra og óvið­ráð­an­legra aðstæðna sem hafa veru­leg áhrif á fram­kvæmd pakka­ferðar eða flutn­ing far­þega til ákvörð­un­ar­staðar …“

„Þeir sem hafa keypt sér ferða­pakka, það er sam­tengda þjón­ustu, svo sem flug og bíl eða flug og hótel, eru best varðir.“

Fram kemur að skipu­leggj­andi ferð­ar­innar skuli end­ur­greiða ferða­manni greiðslur sem honum ber innan 14 daga frá afpöntun. Neyt­enda­sam­tök­unum þykir ljóst að nú séu uppi óvenju­legar og óvið­ráð­an­legar aðstæður. Þau benda á mik­il­vægi þess að hafa sam­skipti skrif­leg, til að draga úr hættu á mis­skiln­ingi en á síð­unni er að finna dæmi um bréf sem hægt er að senda ferða­skrif­stofu vegna afpönt­unar pakka­ferðar.

Kortaskilmálar geti bætt flugfargjöld

Breki bendir í sam­tali við Mannlíf á að fólk sem hefur keypt flug glími við aðrar aðstæður. „Ef flug er fellt niður á flug­fé­lagið að end­ur­greiða far­þeg­unum að fullu. En ef það er flogið, og far­þeg­inn fer ekki, þá á hann rétt á að fá flug­valla­skatta og -gjöld end­ur­greidd, en hann á ekki rétt á far­gjald­inu.“ Breki segir að við þær aðstæður geti við­skipta­vin­ur­inn oft­ast sótt rétt sinn í gegnum korta­skil­mála, for­falla- eða heim­il­is­trygg­ingu. Það fari þó eftir skil­málum hverju sinni. „Það er í flestum til­fellum skil­máli sem segir að ef komið er í veg fyrir ferð vegna opin­berra hafta sem leiða af far­sótt, þá beri að end­ur­greiða fólki far­gjaldið,“ útskýrir hann.

Rebok Fitness frystir kort líkamsræktenda

Far­bannið sem gildir á Íslandi hefur í för með sér ýmsar aðgangs­tak­mark­anir á fjöl­förnum stöðum. Lík­ams­rækt­ar­stöðv­arnar hafa brugð­ist við ástand­inu með ólíkum hætti. Stjórn­endur Rebok Fitness til­kynntu á föstu­dag að öllum stöðvum yrði lokað tíma­bundið á meðan ástandið gengi yfir. Fyr­ir­tækið hefur dregið þetta til baka. Á mánu­dag var til­kynnt að tækja­salir verði opnir en fólki er gert að virða tveggja metra fjar­lægð­ar­reglu við aðra gesti og gæta að hrein­læti. Sauna og heitir pottar verða lok­aðir. Vegna þessa ákvað Rebok að koma til móts við áskrif­endur. „Allar áskriftir hald­ast óbreyttar og þessi tími sem um tak­mark­aða þjón­ustu er að ræða, bæt­ist aftan við núver­andi áskrift þeirra þeim að kostn­að­ar­lausu.“ Á mið­viku­dag til­kynnti fyr­ir­tækið svo að hóp­tímar yrðu áfram haldnir en að hámarks­fjöldi í hverjum tíma yrði lækk­aður.

Lítill slaki hjá World Class

World Class hefur ákvað að fara aðra leið og leyfir fólki ekki að frysta kortin nema að hámarki í tvær vikur, og þá aðeins ef fólk er veikt eða í sótt­kví. Hámarks­fjöldi í hóp­tímum er nú helm­ingi lægri, annað hvert upp­hit­un­ar­tæki hefur verið tekið úr notkun og iðk­endum er upp­álagt að halda tveggja metra fjar­lægð við næsta mann. „Í samn­ingum okkar við við­skipta­vini eru inn­lagnir á kortum almennt ekki leyfðar en það er sam­fé­lags­leg ábyrgð okkar að bjóða þeim við­skipta­vinum sem eru sýktir eða í sótt­kví að leggja kort sín inn í allt að tvær vikur,“ segir á heima­síðu fyr­ir­tæk­is­ins.

Hreyfing hefur gripið til svip­aðra ráð­staf­ana og World Class en á heima­síðu félags­ins kemur ekk­ert fram um fryst­ingu korta eða frestun áskrifta. Þess má geta að þeim sem eru með áhættu­þætti fyrir alvar­legri COVID-19 sýk­ingu hefur verið ráðið frá því að fara í lík­ams­rækt­ar­stöðvar eða sund­laugar. Ekki fæst séð að þessum hópi sé mætt, hvað áskriftir varðar, í Hreyf­ingu og World Class.

Höfðar til samkenndar og skynsemi

Þær aðstæður sem uppi eru vegna COVID-19 eru eins­dæmi, að sögn Breka. Hann segir að sam­tökin hafi ekki myndað sér ein­hlíta afstöðu til þess­ara mála. „Við hvetjum bara fyr­ir­tæki til að koma til móts við fólk eins og það getur.“ Hann nefnir að íþrótta­fé­lög séu líka í bobba. Dæmi séu um að íþrótta­fé­lög hafi lengt í æfinga­tíma­bilið sem nemur þeim tíma sem sam­komu­bannið gildi. Það séu góð við­brögð. Staðan sé íþrótta­fé­lögum erfið. „Maður höfðar til sam­kenndar og skyn­semi hjá fólki, við þessar aðstæður.“

Breki tekur fram að allar ákvarð­anir fyr­ir­tækja séu teknar af fólki. „Menn eru lík­legri til að eiga við­skipti aftur við fyr­ir­tæki sem koma vel fram við mann. Slæmar fréttir ferð­ast hraðar en góðar fréttir.“ Það sé því hagur fyr­ir­tækja til lengri tíma að koma eins vel fram við neyt­endur og frekast er unnt. „Við höfum heyrt af mjög mörgum fyr­ir­tækjum sem sýna gott for­dæmi með því að veita fyr­ir­greiðslu eða bíða með greiðslur. Margir sýna sam­fé­lags­lega ábyrgð og sýna neyt­endum skiln­ing í þessum erf­iðu aðstæðum.“ Hann bendir líka á að aðstæður fyr­ir­tækja séu mis­mun­andi.

Eins og kunn­ugt er hefur öllum íþrótta­við­burðum, svo að segja um heim allan, verið aflýst næstu vik­urnar. Engar beinar útsend­ingar af íþrótta­kapp­leikjum eru því á dag­skrá Stöðvar 2 Sport, þótt ein­hverjir upp­rifj­unar- og sam­an­tekt­ar­þættir séu fram­leiddir í stórar eyð­urnar. Sá sem segir upp stöð­inni nú þarf að greiða fyrir áskrift út apríl, eða í sex vikur, án beinna útsend­inga frá íþrótta­kapp­leikjum. Mynd / EPA

Íþróttastöðvar án íþróttakappleikja

Íslenskar efn­isveitur ganga mis­langt til að koma til móts við þarfir neyt­enda á tímum kór­óna­veirunnar. Vodafone greinir frá því á heima­síðu sinni að Stöð 2 muni bjóða öllum lands­mönnum opinn aðgang að Stöð 2 Krakkar, Stöð 2 Bíó og Stöð 3 frá 16. mars. Þá hefur verð á Stöð 2 Maraþon verið lækkað niður í tæpar þús­und krónur. Þegar kemur að Inter­neti hefur Vodafone til­kynnt að heima­teng­ingar verði með ótak­markað gagna­magn.

Mannlíf hefur á hinn bóg­inn haft spurnir af óánægðum áskrif­endum Stöðvar 2 Sport, sem er í eigu Sýnar eins og Vodafone. Eins og kunn­ugt er hefur öllum íþrótta­við­burðum, svo að segja um heim allan, verið aflýst næstu vik­urnar. Engar beinar útsend­ingar af íþrótta­kapp­leikjum eru því á dag­skrá stöðv­ar­innar, þótt ein­hverjir upp­rifj­unar- og sam­an­tekt­ar­þættir séu fram­leiddir í stórar eyð­urnar. Sá sem segir upp stöð­inni nú þarf að greiða fyrir áskrift út apríl, eða í sex vikur, án beinna útsend­inga frá íþrótta­kapp­leikjum.
Áskrif­anda sem Mannlíf ræddi við var boðið að kaupa Skemmti­pakk­ann í stað­inn. Stytting upp­sagn­ar­frests eða „fryst­ing“ áskriftar kom ekki til álita.

Annar áskrif­andi sem Mannlíf ræddi við sagð­ist hafa fengið áskrift í apríl fellda niður. Fyr­ir­spurn Mannlífs vegna þessa hafði ekki verið svarað þegar þetta var skrifað.

Ótakmarkað gagnamagn

Síminn hefur til­kynnt að við­skipta­vinir búi að ótak­mörk­uðu gagna­magni meðan á þessum óvissu­tímum stendur. Ekki verður gjald­fært fyrir notkun umfram inni­falið gagna­magn inn­an­lands, að því er segir á heima­síðu Símans. Þar segir að for­dæma­laust ástand sé í heim­inum og að fjar­skipti séu nauð­syn­leg. „Við hjá Símanum viljum að við­skipta­vinir okkar hugsi frekar um eigin hag og heilsu, ætt­ingja sína og vini frekar en inni­falið gagna­magn og reikn­inga.“ Síminn rekur einnig íþrótta­stöð, Síminn sport. Þar eru sömu­leiðis engar beinar útsend­ingar af kapp­leikjum þessa dag­ana. „Síminn til­kynnir á vef sínum að fyr­ir­tækið muni ekki gjald­færa fyrir áskrift að sím­inn Sport frá og með 1. apríl og á meðan þetta ástand varir.“

Önnur fyr­ir­tæki á fjar­skipta­mark­aði hafa brugð­ist við vegna COVID-19. Nova sendi við­skipta­vinum sínum skila­boð 14. mars þar sem til­kynnt var að allir lands­menn fengju frían aðgang að Jibbí á Nova TV. „Það eru ansi margir heima fyrir og við viljum alls ekki að neinn verði uppi­skroppa með afþrey­ing­ar­efni.“ Jibbí býður upp á barna­efni.

Flestir gera eitthvað

Athugið að það sem að ofan er rakið er ekki tæm­andi úttekt á við­brögðum allra fyr­ir­tækja á þessum mörk­uðum. Þannig má nefna að Bylgjan og Rás 2 hafa til að mynda hafið útsend­ingar í sjón­varpi frá morg­un­þáttum sínum. Þessi sam­an­tekt sýnir hins vegar að flest fyr­ir­tæki á mark­aði, sér­stak­lega þegar kemur að fjar­skipta­fyr­ir­tækjum og efn­isveitum, hafa stigið skref til að mæta við­skipta­vinum sínum í þessum óvenju­legu aðstæðum. Einhver dæmi eru þó um að gera mætti betur, eins og for­maður Neyt­enda­sam­tak­anna kemur inn á hér í grein­inni.

Neyt­enda­sam­tökin eru félaga­sam­tök og langstærsti hluti tekna þeirra kemur frá félags­mönnum. Samtökin leggja áherslu á að veita félags­mönnum svör en einn dag í viku er reynt að svara fólki sem er utan félags­ins. Breki segir að eftir því sem á sam­komu­bannið hefur liðið hafi sífellt fleiri fyr­ir­spurnir farið að ber­ast sem snúa að afkomu, neyslu og kostn­aði. Síminn hafi fyrstu dag­anna ekki stoppað vegna ferða­laga og ferða­langa. „Við erum að reyna að svara fólki og greiða úr því sem við getum.“ Hann hvetur fólk til að hafa sam­band með raf­rænum hætti. Almennt leggur hann þó til að fólk komi vel fram. „Við beinum því til allra að sýna still­ingu og sann­girni við þessar aðstæður.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum