InnlentCovid-1916 greindir með COVID-19 eftir skimun hjá ÍE16. mars 2020 16 einstaklingar hafa greinst með COVID-19 kórónuveiruna eftir skimun hjá Íslenskri erfðagreiningu í Turninum í Kópavogi. Þetta staðfestir Kári Stefánsson forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar í samtali við Vísir. Alls er búið að greina 1600 sýni úr skimuninni. Kári gerir ráð fyrir að í kvöld verði búið að greina um 2500 sýni. Í kvöldfréttum á Stöð 2 í gær kom fram að...
InnlentCovid-19Forsetahjónin ekki með COVID-1916. mars 2020 „Sjálfsagt er að geta þess að í kvöld fengum við hjón þau tíðindi að við erum ekki með COVID-19 sjúkdóminn. Um leið vorum við minnt á þau sannindi að sú niðurstaða útiloki ekki að við fáum sjúkdóminn síðar. Við þurfum öll að vera á verði núna,“ segir Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands í pistli á Facebook-síðu sinni. Guðni og eiginkona...
InnlentCovid-19Ráðstafanir líkamsræktarstöðva vegna samkomubanns – Reebok Fitness skellir í lás og viðskiptavinir Sporthússins hvattir til að fara í sturtu heima16. mars 2020 Samkomubann hér á landi tók gildi á miðnætti og verður í gildi næstu fjórar vikur. Það þýðir að samkomur þar sem fleiri en 100 koma sama eru bannaðar. Líkamsræktarstöðvar landsins hafa gripið til ýmissa ráðstafana vegna útbreiðslu COVID-19 og samkomubannsins. Stöðvar World Class verða áfram opnar og opnunartími helst óbreyttur en hámarksfjöldi í hóptímasali verður lækkaður um 50%. Viðskiptavinir eru...
InnlentCovid-19Búast við að slúðursögur fari á flug í vikunni16. mars 2020 Samkomubann tók gildi um allt land á miðnætti og verður í gildi næstu fjórar vikur. Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn segir að það megi búast við að slúðursögur fari á flakk á næstu dögum. „Ég held að við séum öll pínu hrædd, það er eðlilegt,“ sagði Víðir í samtali við morgunútvarp Rásar tvö. Hann bætti við að nú væri mikilvægt að tala...
InnlentCovid-19Hvetur fólk til að halda úti dagbók á meðan faraldurinn gengur yfir16. mars 2020 Handritasafn Landsbókasafnsins hefur hvatt fólk til að halda úti dagbók á meðan COVID-19 heimsfaraldurinn gengur yfir þar sem minningar fólks um upplifun faraldursins muni koma sér vel fyrir fræðimenn og fjölmiðlafólk í framtíðinni. Þessu er sagt frá í Fréttablaðinu í dag. „Ég tel að það sé um að gera fyrir fólk sem er í sóttkví og hefur kannski lítið að...
InnlentCovid-19Fyrsta smit COVID-19 í Eyjum15. mars 2020 Fyrsta smit COVID-19 kórónuveirunnar í Vestmannaeyjum greindist í dag, um er að ræða lögreglumann. Í tilkynningu lögreglunnar í Vestmannaeyjum segir að aðgerðarstjórn almannavarna hafi verið virkjuð í Vestmannaeyjum. Einstaklingum í sóttkví þar hafi fjölgað og eru nú 18 og búist við að þeim muni fjölga. Lögreglumaðurinn smitaðist ekki við störf sín svo vitað sé, en smitrakning er í gangi af...
InnlentCovid-19Heimsfaraldur COVID-19 skollinn á15. mars 2020 Allra augu hafa beinst að kórónuveirunni, SARS-CoV-2, og örri útbreiðslu hennar. Meira en 119.000 hafa sýkst í heiminum og yfir 4200 látist. Síðustu daga hefur tilfellum fjölgað hratt víða og er nú svo komið að Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) hefur gefið út að um heimsfaraldur sé að ræða. Þekking á veirunni er enn takmörkuð. Hér á landi hyggjast Kári Stefánsson og Íslensk...
InnlentCovid-19„Þjóðir þurfa að eiga heri heilbrigðisstarfsmanna“ – Sjáðu myndina sem Alma deildi15. mars 2020 Alma D. Möller landlæknir er ein þeirra sem staðið hafa í framlínunni nú þegar Ísland, ásamt öðrum þjóðum heims, berst við COVID-19 kórónuveirufaraldurinn. Daglegir upplýsingafundir hafa verið haldnir, og hefur Alma mætt á þá flesta og veitt upplýsingar og svarað spurningum blaðamanna á fumlausan og yfirvegaðan hátt. Í dag deildi Alma mynd á Facebook-síðu sinni með örfáum orðum sem minna...
ViðtalCovid-19Réttarhöldum yfir Gunnari frestað – Grunur á COVID-19 smiti i fangelsinu að sögn Heiðu systur hans15. mars 2020 Réttarhöldum yfir Gunnari Jóhanni Gunnarssyni sem varð hálfbróður sínum, Gísla Þóri Þórarinssyni, að bana í bænum Mehamn í Norður-Noregi, í apríl í fyrra, hefur verið frestað um óákveðinn tíma vegna útbreiðslu kórónuveirunnar, en réttarhöldin áttu að fara fram við Héraðsdóm Vadsø 23. mars. Grunur leikur á að einn fanginn í fangelsinu, þar sem Gunnar er vistaður, sé smitaður af COVID-19...
InnlentCovid-19Réttarhöldum yfir Gunnari frestað – Grunur á COVID-19 smiti i fangelsinu að sögn Heiðu systur hans15. mars 2020 Réttarhöldum yfir Gunnari Jóhanni Gunnarssyni sem varð hálfbróður sínum, Gísla Þóri Þórarinssyni, að bana í bænum Mehamn í Norður-Noregi, í apríl í fyrra, hefur verið frestað um óákveðinn tíma vegna útbreiðslu kórónuveirunnar, en réttarhöldin áttu að fara fram við Héraðsdóm Vadsø 23. mars. Grunur leikur á að einn fanginn í fangelsinu, þar sem Gunnar er vistaður, sé smitaður af COVID-19...
InnlentCovid-19Mikilvægt að auka ekki kvíða nemenda15. mars 2020 Ragnar Þór Pétursson, formaður Kennarasambands Íslands, fór yfir stöðuna í skólamálum á upplýsingafundi Almannavarna sem fram fór fyrr í dag. Benti hann á að fylgjast með leik barna sem láti oft hugsanir sínar sem þau geti ekki orðað birtast í leik. Nefndi hann sem dæmi að vinsælasti leikurinn í frímínútum sé eltingaleikur þar sem krakkarnir flýja þann sem er kórónuveiran....
InnlentCovid-19Smit orðin 171 talsins15. mars 2020 Smit vegna COVID-19 kórónuveirunnar eru orðin 171 hér á landi samkvæmt vefsíðu embættis landlæknis og almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra, Covid.is. Er þetta fjölgun um átta tilfelli frá því á upplýsingafundinum sem hófst klukkan tvö í dag og stóð yfir í fjörutíu mínútur. Alls eru 1.672 í sóttkví en 1.868 sýni hafa verið tekin.