Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Réttarhöldum yfir Gunnari frestað – Grunur á COVID-19 smiti i fangelsinu að sögn Heiðu systur hans

Réttarhöldum yfir Gunnari frestað – Grunur á COVID-19 smiti i fangelsinu að sögn Heiðu systur hans

Rétt­ar­höldum yfir Gunnari Jóhanni Gunn­ars­syni sem varð hálf­bróður sínum, Gísla Þóri Þór­ar­ins­syni, að bana í bænum Mehamn í Norður-Noregi, í apríl í fyrra, hefur verið frestað um óákveð­inn tíma vegna útbreiðslu kór­ónu­veirunnar, en rétt­ar­höldin áttu að fara fram við Hér­aðs­dóm Vadsø 23. mars. Grunur leikur á að einn fang­inn í fang­els­inu, þar sem Gunnar er vistaður, sé smit­aður af COVID-19 veirunni.

„Það hefði verið léttir að fá lokun í þessu máli. Í stað­inn hangir maður ein­hvern veg­inn í lausu lofti, sem er glatað. Óvissan er verst,“ segir Heiða Þórð­ar­dóttir, systir bræðr­anna, sem hafði áformað að vera við­stödd rétt­ar­höldin í mars. Hún tekur fram að sér finn­ist frest­unin hins vegar ásætt­an­leg í ljósi þeirrar hættu sem nú steðjar að allri heims­byggð­inni vegna útbreiðslu COVID-19 kór­óna­veirunnar. Við séum peð í þessu ástandi – og eigum að standa saman.

Og ljóst er að áhrif af völdum COVID-19 veirunnar teygja sig víða því Heiða segir að sá grunur sé nú uppi að einn fang­inn í fang­els­inu þar sem Gunnar bróðir hennar er vistaður sé smit­aður. „Sá er í ein­angrun á meðan kom­ist er að nið­ur­stöðu. Fyllstu örygg­is­gæslu er gætt, engar heim­sóknir leyfðar, lík­ams­rækt­ar­stöð­inni hefur verið lokað og svo fram­vegis,“ segir hún og getur þess að Gunnar sé furðu slakur miðað við aðstæður.

Bræð­urnir Gunnar Jóhann og Gísli Þór

Blæddi út á skömmum tíma

Eins og fram hefur komið í fjöl­miðlum er Gunnari gefið að sök að hafa farið með hagla­byssu inn á heim­ili Gísla Þórs í Mehamn klukkan fimm að morgni 27. apríl 2019. Eru bræð­urnir sagðir hafa tek­ist á um með vopnið með þeim afleið­ingum að tvö skot hlupu af  og hafn­aði annað þeirra í vinstra læri Gísla með þeim afleið­ingum að honum blæddi út á skömmum tíma.

Gunnar lýsti sig í kjöl­farið sekan um mann­dráp af gáleysi, en þann 21. jan­úar gaf hér­aðs­sak­sókn­ar­inn í Troms og Finnmörk út ákæru á hendur honum, þar sem honum er gefið að sök mann­dráp af ásetn­ingi. Er ákæran í sex liðum og er Gunnar meðal ann­ars ákærður fyrir hús­brot á heim­ili hálf­bróður síns, brot á nálg­un­ar­banni gagn­vart honum, að hafa tekið bif­reið hans ófrjálsri hendi eftir atvikið og ekið henni undir áhrifum áfengis og amfetamíns.

Í öðrum lið ákærunnar er Gunnari gefið að sök að hafa haft í hót­unum við Gísla Þór dag­ana fyrir and­lát hans, og eins við Elenu Undeland barns­móður og fyrrum eig­in­konu Gunnars.

Sorgin skrítið fyrirbæri

Í við­tali við Mannlíf í haust sagði Heiða frá sorg­inni eftir að Gísli Þór var skot­inn af Gunnari. Hún sagði sorg­ina hafa verið þá þyngstu sem hún hefur upp­lifað. „Þetta hefur nátt­úr­lega verið alveg svaka­lega erf­iður tími,“ sagði Heiða. „Þótt ég syrgi auð­vitað Gísla bróður minn óskap­lega mikið þá er Gunnar líka bróðir minn og ég get ekki hatað hann fyrir þetta slys.“

Heiða segir sorg­ina vera skrítið fyr­ir­bæri. Eftir að hafa ein­angrað sig gjör­sam­lega frá umhverf­inu í marga mán­uði hafi hún tekið þann pól­inn í hæð­ina að styrkja sig lík­am­lega og and­lega. „Ég hef náð að þynga­jst og styrkst og er aftur farin að taka þátt í félags­störfum. Heyri reglu­lega í Gunna og dreymi Gísla minn oft. Þetta er allt á réttri leið,“ segir hún og kveðst reikna með því að rétt­ar­höldin yfir Gunnari bróður hennar komi til með að fara fram í sumar.

Mynd / Hallur Karlsson

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una