Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Heimsfaraldur COVID-19 skollinn á

Heimsfaraldur COVID-19 skollinn á
|Alda Rose Cartwright

Allra augu hafa beinst að kór­ónu­veirunni, SARS-CoV-2, og örri útbreiðslu hennar. Meira en 119.000 hafa sýkst í heim­inum og yfir 4200 lát­ist. Síðustu daga hefur til­fellum fjölgað hratt víða og er nú svo komið að Alþjóða­heil­brigð­is­mála­stofn­unin (WHO) hefur gefið út að um heims­far­aldur sé að ræða. Þekking á veirunni er enn tak­mörkuð. Hér á landi hyggj­ast Kári Stef­áns­son og Íslensk erfða­grein­ing fram­kvæma víð­tæka skimun fyrir kór­ónu­veirunni til að kort­leggja dreif­ingu hennar og skilja betur hvernig hún hagar sér sem verður mik­il­vægt tæki í bar­átt­unni við vágest­inn. Til að fá betri sýn á þessi mál ræddi Mannlíf við Kára og tvo lækna sem standa í fram­lín­unni í bar­átt­unni við veiruna.

Dreifist með miklum hraða um Evrópu

Nicola Montano, pró­fessor og for­stöðu­maður lyf­lækn­inga við háskóla­sjúkra­húsið í Mílanó, segir að það geti þurft end­ur­tekin próf til að greina COVID-19 ef grunur leikur á að ein­stak­lingur sé smit­aður. Sýni séu oft ekki nægi­lega góð og það þurfi jafn­vel 3-4 sýni áður en grein­ing fáist. Mynd / Lækna­blaðið

Á Íslandi hafa 103 manns greinst með kór­ónu­veiruna, þegar þetta er skrifað og 700 eru í sótt­kví. Til­fellum á Spáni fjölg­aði um tæp­lega 2000 á fjórum dögum í vik­unni og í Danmörku hefur orðið mikil aukn­ing á skömmum tíma. Til­fellum í Wuhan, þar sem veiran er talin eiga upp­tök sín, hefur hins vegar snar­fækkað og virð­ist fólk þar vera komið með ónæmi. Ítalía hefur orðið sér­lega illa fyrir barð­inu á kór­óna­veirunni því yfir 12.000 manns hafa smit­ast og 827 lát­ist. Allir sem hafa lát­ist hafa verið aldr­aðir eða með und­ir­liggj­andi sjúk­dóma. Ítalir hafa sett 16 millj­ónir manna í norð­ur­hluta lands­ins í sótt­kví og lokað á sam­komur og hefur náðst góður árangur við að hefta útbreiðslu veirunar á svæðum sem fyrir nokkru voru hættu­svæði.

Nicola Montano er pró­fessor og for­stöðu­maður lyf­lækn­inga við háskóla­sjúkra­húsið í Mílanó. Mannlíf ræddi við hann um ástæður þess hve hratt kór­ónu­veiran hefur breiðst út og hvað hann telji að verði að gera til að stöðva útbreiðsl­una.

Fjöldi smitaðra einkennalítill

Aðspurður um hvers vegna Ítalía hafi orðið svo illa úti á skömmum tíma vegna kór­ónu­veirunnar svarar Nicola að í upp­hafi hafi stjórn­völd ekki verið með skipu­lagða áætlun til að mæta far­aldr­inum, þrátt fyrir ábend­ingar lækna. Ítalir hafi ein­blínt á fólk sem kom frá Kína. „Það var svo 38 ára maður, lík­am­lega mjög vel á sig kom­inn, sem kom á bráða­mót­töku í bæ nálægt Mílanó. Hann var með háan hita og kvef en var sendur heim og sagður með flensu. Næsta dag kom hann aftur, var kom­inn með lungna­bólgu og greind­ist þá með COVID-19,“ segir Nicola. „Þá kom í ljós að hann hafði umgeng­ist fólk sem hafði verið í Kína. Það fólk reynd­ist hins vegar nei­kvætt þegar prófað var fyrir kór­ónu­veirunni. Þá hófum við að prófa mjög marga, m.a. fólk almennt sem var með lungna­bólgu. Við fundum marga sem reynd­ust vera jákvæðir fyrir veirunni. Það varð til þess að við gátum gert okkur betur grein fyrir sjúk­dómnum og hvernig hann dreifð­ist. Svæðið þar sem þessi fyrr­greindi maður grein­ist var sett í sótt­kví og tveimur vikum síðar var svæðið orðið hreint. Á Ítalíu hefur fjöldi ein­stak­linga með lítil sem engin ein­kenni greinst með COVID-19 og eru taldir hafa smitað aðra.“

„Mér finnst lík­legt að veiran sé miklu útbreidd­ari og finn­ist í þeim sem eru með lítil eða engin ein­kenni.“

Þróunin í öðrum löndum lík og á Ítalíu

Mat Nicola er að mik­ill fjöldi úti í sam­fé­lag­inu á Ítalíu sé þegar smit­aður, jafn­vel hund­ruð þús­unda. ,,Við teljum að allt að ein milljón kunni að vera smituð á Ítalíu því útbreiðsla veirunnar hefur verið mjög hröð en þegar töl­fræðin er borin saman við Kína þá er um að ræða mjög svip­aða útbreiðslu miðað við fólks­fjölda.“

Spurður um hvort hann telji að þró­unin verði svipuð í öðrum löndum Evrópu og á Ítalíu svarar Nicola: ,,Án efa. Í öllum löndum. Við lifum í heimi þar sem fólk er á ferð og flugi. Spánn er um viku á eftir okkur, veiran dreif­ist mjög hratt þar. Sama er að segja um Frakk­land, Þýska­land og fleiri lönd. Enginn vafi er á að heims­far­aldur er í upp­sigl­ingu,“ segir hann. ,,Dán­ar­tíðnin er það sem skiptir mestu máli hér. Miðað við þekk­ingu okkar í dag er COVID-19 með aðeins hærri dán­ar­tíðni en inflú­ensa.“

Hvernig gengur á sjúkra­húsum að eiga við kór­ónu­veiruna, þarf starfs­fólk að vinna lengur og hefur það smit­ast þar? „Veiran leiðir ekki til hærri tíðni alvar­legra veik­inda en fer með svo miklum hraða vegna skorts á ónæmi gegn þess­ari nýju veiru í sam­fé­lag­inu að fjöldi þeirra sem leita á spít­ala er mjög mik­ill á skömmum tíma. Því verða heil­brigð­is­starfs­menn útsettir fyrir veirunni. Starfs­fólk bráða­deilda og smit­sjúk­dóma­læknar eru hópar sem eru útsett­ari en aðrir. Álagið á spít­ölum er mikið og við þolum ekki slíkt álag nema í stuttan tíma.“

Róttækar aðgerðir þarf

Alþjóða­heil­brigð­is­mála­stofn­unin gaf út að ein­stak­lingar sem smit­ast af kór­ónu­veirunni fengu ákveðin ein­kenni eins og háan hita og fleira, er það raunin?
„Hér fá 85% mjög væg ein­kenni, 15% þurfa að leggj­ast á spít­ala og dán­ar­tíðni er 3%. Fyrir hverja fimm sjúk­linga sem eru á gjör­gæslu eru 50 í ein­angrun eða þurfa sér­staka með­höndlun.“

Nicola telur að þegar til­felli eru farin að koma úr sam­fé­lag­inu, þar sem smitið kemur í gegnum þriðja aðila frá upp­haf­slind­inni, þurfi að prófa alla sem hafa ein­hver ein­kenni um önd­un­ar­færa­sýk­ingu. Ekki nægi að meta ein­göngu þá sem hafa átt sam­skipti við smit­aða ein­stak­linga. Hann segir að það geti þurft end­ur­tekin próf til að greina COVID-19 ef grunur leikur á að ein­stak­lingur sé smit­aður. Sýni séu oft ekki nægi­lega góð og það þurfi jafn­vel 3-4 sýni áður en grein­ing fáist. Slíkt hafi komið ber­lega í ljós.

Þá segir Nicola að það borgi sig að vera við­bú­inn því versta og gera allt til fækka smitum. Það feli í sér rót­tækar aðgerðir eins og að banna sam­komur og við­burði þar sem fólk kemur saman. „Það er eini mögu­leik­inn til að draga úr smiti.“

Stífari ráðstafanir hérlendis

Már Krist­jáns­son, yfir­læknir smit­sjúk­dóma­lækn­inga á Land­spít­ala, segir að ef nið­ur­staða úr skimun­inni verði sú að það sé fjöld­inn allur af smit­uðum ein­stak­lingum úti í sam­fé­lag­inu þá sé íslenska þjóðin óvarin fyrir veirunni og allar for­sendur fyrir því að hraði útbreiðsl­unnar geti verið sá sami og t.d. á Ítalíu og Spáni. Mynd / Lækna­blaðið

Mannlíf hafði sam­band við Má Krist­jáns­son, yfir­lækni smit­sjúk­dóma­lækn­inga á Land­spít­ala, og spurði hvort búast mætti við að í ljós komi, þegar Íslensk erfða­grein­ing færi að skima, að útbreiðsla veirunnar hér sé meiri en hefur verið talið. Már segir að ef nið­ur­staða úr skimun­inni verði sú að það sé fjöld­inn allur af smit­uðum ein­stak­lingum úti í sam­fé­lag­inu þá sé íslenska þjóðin óvarin fyrir veirunni og allar for­sendur fyrir því að hraði útbreiðsl­unnar geti verið sá sami og t.d. á Ítalíu og Spáni. „Hins vegar erum við í litlu sam­fé­lagi sem er vel upp­lýst og ríkur skiln­ingur á aðgerðum stjórn­valda og það gæti orðið okkur til bjarg­ræðis við að tempra hraða útbreiðsl­unnar sem allar aðgerðir miða að,“ segir Már. Hann telur að aðgerð­irnar hafa tek­ist ágæt­lega en bendir á hversu hratt hlut­irnir ger­ast. „Við sáum fyrsta smitið fyrir um hálfum mán­uði en smitum fjölgar og við erum að sjá þriðju gráðu smit, þ.e. í gegum þriðja aðila frá upp­haf­slind­inni, sem er tákn­rænt fyrir dreif­ingu veirunnar í sam­fé­lag­inu og und­an­fari þess að hún dreifir sér hraðar. Vonandi verður þetta ekki með við­líka hraða og á Ítalíu og Spáni.“ Már segir að hér hafi verið stíf­ari ráð­staf­anir en sést hafi í flestum öðrum löndum og að fólk taki almennt til­mæl­unum alvar­lega.

Hversu mik­il­væg telur hann að skimunin fyrir veirunni sé fyrir næstu skref og við að varpa ljósi á hvernig hún hegðar sér og dreifir sér? „Ég held að það sé mik­il­vægt að reyna að finna þetta út og ef nið­ur­staðan úr skimun­inni verður sú að það sé fjöld­inn allur af ógreindum ein­kenna­lausum ein­stak­lingum úti í sam­fé­lag­inu þá mun það gjör­breyta vörnum sótt­varn­ar­læknis sem byggja á sótt­kví og ein­angrun fólks.“ Og hann tekur fram að það að setja útsetta í sótt­kví hafi þá jafn­vel engan til­gang.

„Ef nið­ur­staðan úr skimun verður sú að það sé fjöld­inn allur af ógreindum ein­kenna­lausum ein­stak­lingum úti í sam­fé­lag­inu þá mun það gjör­breyta vörnum sótt­varn­ar­læknis sem byggir á sótt­kví og ein­angrun fólks.“

Hvernig er Land­spít­al­inn í stakk búinn til að taka við sjúk­lingum sem þurfa þá að leggj­ast inn eða fá aðhlynn­ingu? „Við erum með við­bragðs­á­ætlun um að hag­nýta þær bjargir sem við höfum; lyf, tæki, mann­skap og innra skipu­lag. Við höfum ekki enda­laust þan­þol en reynum að draga úr fjölda ein­stak­linga sem eru veikir á hverjum tíma. Ef 10% veikj­ast alvar­lega er mik­il­vægt að draga úr fjölda þeirra á hverjum tíma og lengja frekar veik­inda­tím­ann,“ útskýrir Már.

Aðspurður um hvort lík­legt sé að þró­unin hér verði á end­anum svipuð og á Ítalíu eða í öðrum löndum á meg­in­landi Evrópu, svarar Már: „Dán­ar­tíðni á Ítalíu er 3% en rétt innan við 1% í Suður-Kóreu. Ég tel að töl­urnar end­ur­spegli hvernig þjóð­unum hefur gengið að glíma við far­sótt­ina. Við viljum vera Suður-Kóreu megin á þessum ás og höfum farið svo­lítið eftir því sem þeir gera; að draga þetta á lang­inn, beita stífum sótt­vörnum, hag­nýta bjargir sem við höfum á spít­al­anum og senda fólk heim í sótt­kví. Ég held að þetta ásamt hand­þvotti og að fara í hví­vetna að fyr­ir­mælum Land­læknis ætti að gera gott,“ segir Már.

Líklegt að veiran sé útbreiddari

Kári Stef­áns­son, for­stjóri Íslenskrar erfða­grein­ingar, tekur undir með Nicola Montano og telur lík­legt að ályktun Alþjóða­heil­brigð­is­mála­stofn­un­ar­innar, byggð á reynsl­unni í Kína, sé röng um að all­flestir sem veik­ist af veirunni hafi nokkuð greini­leg ein­kenni.

Eins og komið hefur fram ætlar Kári Stef­áns­son, for­stjóri Íslenskrar erfða­grein­ingar, að láta skima fyrir kór­ónu­veirunni hér á landi. Spurður hvort hann telji að veiran geti hugs­an­lega verið útbreidd­ari en talið hefur verið, að fólk geti verið með mjög væg ein­kenni og að útbreiðslan sé því meiri, segir hann að það séu engin gögn til að styðja þá skoðun. „En mér finnst lík­legt að veiran sé miklu útbreidd­ari og finn­ist í þeim sem eru með lítil eða engin ein­kenni,“ segir Kári og tekur fram að skimunin verði unnin undir stjórn sótt­varn­ar­læknis og í sam­vinnu við Land­spít­al­ann.

Kári tekur undir með Nicola Montano og telur lík­legt að ályktun Alþjóða­heil­brigð­is­stofn­un­ar­innar, byggð á reynsl­unni í Kína, sé röng um að all­flestir sem veik­ist af veirunni hafi nokkuð greini­leg ein­kenni. „Mér finnst lík­legt að þetta sé rangt en hef engin gögn enn þá til að styðja þá skoðun.“ Hann segir að álykt­unin hafi lík­lega verið eðli­leg fyrir nokkrum vikum en svo sé ekki í dag.

Talið er að veiran hafi stökk­breyst en Kári segir að það þýði að auð­veld­ara verði að rekja en ella smit ef veiran hafi stökk­breyst. „Á hinn bóg­inn getur þá verið erf­ið­ara að þróa bólu­efni og eins hitt að veiran gæti fundið sér leiðir fram hjá ónæm­is­kerfi ein­stak­linga,“ segir Kári.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð