InnlentFullorðinn maður veittist að dreng á hlaupahjóli5. maí 2022 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð til í gærkvöldi vegna manns sem sló til drengs á hopp-rafmagnshlaupahjóli. Þegar lögreglu bar að garði hafði hann flúið af vettvangi í gulum bíl en gerði hann það eftir að hafa slegið til drengsins. Lögregla hefur lýsingu og aðrar upplýsingar um manninn og rannsakar nú málið.
InnlentGengu um Árbæinn vopnaðir exi3. maí 2022 Greinileg merki um innbrot sásust á heimili í Hlíðahverfi í gærkvöldi en lögreglu barst tilkynningin klukkan hálf átta. Þjófurinn var á bak og burt en lögregla rannsakar nú málið. Stuttu síðar hafði lögregla afskipti af ölvuðum manni sem hafði verið til vandræða í miðborginni. Lögregla skutlaði manninum til síns heima. Skömmu eftir klukkan tíu barst lögreglu tilkynning um tvo menn...
InnlentÓk þvert yfir hringtorg og flúði út í myrkrið – Eldur í Öskjuhlíð2. maí 2022 Lögregla stöðvaði bifreið í Árbæjarhverfi í nótt eftir að ökumaður hafði ekið upp á hringtorg og yfir gróður sem þar óx. Þegar bifreiðin nam staðar reyndi ökumaður og farþegar að flýja og hlupu á brott. Lögregla hljóp fólkið uppi, handtók og gisti það bak við lás og slá. Ökumaðurinn er grunaður um akstur undir áhrifum vímuefna og réttindalaus. Þá handtók...
InnlentKeyrði á þrettán ára stúlkur og flúði af vettvangi1. maí 2022 Tikynning um umferðarslys barst lögreglunni um sjö leytið í gærkvöld. Segir í dagbók lögreglu að ökumaður bifreiðar hafi ekið á/í veg fyrir tvær 13 ára stúlkur á hlaupahjóli. Stúlkurnar féllu í götuna og voru laskaðar eftir fallið. Ökumaðurinn stakk af eftir að hafa ekið á stúlkurnar og rannsakar lögregla nú málið. Lögregla handtók tvo menn í annarlegu ástandi í Hlíðunum...
InnlentKeyrði á lögregluna í annarlegu ástandi – Djamm og læti í bænum30. apríl 2022 Kona ók á lögreglubifreið í Hlíðahverfi skömmu fyrir miðnætti í gær. Lögregla hugðist stöðva konuna sem var akandi á vespu en sinnti hún ekki stöðvunarmerkjum og ók á bifreiðina. Konan var fyrst flutt til aðhlynningar á bráðadeild en gisti hún í fangaklefa í nótt. Er hún grunuð um akstur undir áhrifum áfengis og fíkniefna auk þess að hafa ekið ítrekað...
InnlentVar með fíkniefnarækt og réðst á nágranna sinn29. apríl 2022 Tvær líkamsárásir áttu sér stað í gærkvöldi. Fyrri árásin átti sér stað í Kópavogi um níu leytið þegar karlmaður réðst á konu. Lögreglan handtók manninn en konan var flutt til aðhlynningar á slysadeild. Stuttu síðar, í Hafnarfirði, réðst karlmaður á nágranna sinn. Árásaraðilinn er einnig grunaður um fíkniefnarækt og var hann handtekinn. Skömmu fyrir miðnætti gekk karlmaður í annarlegu ástandi...
InnlentKonur í annarlegu ástandi í miðbænum – Voru með tvö ung börn í bílnum25. apríl 2022 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði afskipti af tveimur konum í miðbæ Reykjavíkur í gærkvöldi. Konurnar sátu í kyrrstæðum bíl í annarlegu ástandi og voru tvö ung börn einnig í bílnum með þeim. Lögregla flutti bæði konurnar og börnin á lögreglustöð þar sem málið var unnið með fulltrúa frá Barnavernd. Þá hafði lögreglan afskipti af manni rétt fyrir miðnætti í gærkvöldi. Maðurinn...
InnlentTvær konur hlutu áverka eftir líkamsárásir í nótt24. apríl 2022 Tvær líkamsárásir í Hafnarfirði voru tilkynntar til lögreglu í nótt. Í bæði skiptin voru það konur sem hlutu áverka eftir karlmenn. Rétt fyrir klukkan tvö í nótt skallar maður konu í andlitið, var hann handtekinn og vistaður í fangageymslu. Konan var bólgin í andliti. Þá var manni ýtt á konu á veitingastað í Hafnarfirði, hún féll í gólfið og rotaðist....
InnlentRéðst á starfsmann verslunar í miðbænum með barefli23. apríl 2022 Ráðist var á starfsmann verslunar í miðbænum klukkan korter yfir sex í gær. Árásarmaðurinn lét dynja á starfsmanninn höggum og spörkum, slær svo manninn í bakið með barefli. Einnig ógnaði hann fólki sem var þar nærri. Starfsmaðurinn þekkti árásarmanninn og var hann handtekinn og vistaður í fangageymslu lögreglu. Tilkynnt var um mann sem stolið hafði yfirhöfnum frá hóteli í Hlíðarhverfi,...
InnlentDekk skoppaði niður Ártúnsbrekku – Rúða annarrar bifreiðar brotnaði22. apríl 2022 Lögreglu barst tilkynning um klukkan hálf sex í gærkvöldi vegna innbrots. Átti atvikið sér stað í Garðabæ en brotist hafði verið inn í geymslu fjölbýlishúss þar sem verkfærum og öðrum verðmætum var stolið. Síðar um nóttina barst lögreglu tilkynning um annað innbrot í fyrirtæki í Hafnarfirði. Kona kastaðist af hestbaki í árbæjarhverfi í gærkvöldi. Sjúkrabíll flutti konuna á bráðadeild en...
InnlentAfskipti höfð af manni á veitingahúsi, gat ekki greitt fyrir veitingarnar – Eldur í bíl21. apríl 2022 Talsvert var að gera hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og í nótt, samkvæmt dagbók lögreglunnar. Nokkrir voru teknir fyrir að keyra bifreiðum sínum undir áhrifum en í Hafnarfirði var ökumaður sviptur ökuréttindum, grunaður um akstur undir áhrifum eiturlyfja. Þá var bifreið hans ótryggð og því bílnúmerin tekin af. Í hverfi 105 barst lögreglu tilkynning um eld í bifreið en...
InnlentUnglingur varð fyrir alvarlegri líkamsárás20. apríl 2022 Lögreglunni barst tilkynning um líkamsárás í Grafarvogi í gær. Árásin átti sér stað síðdegis en þar hafði hópur fimmtán ára drengja ráðist á jafnaldra sinn. Drengurinn hlaut áverka í andliti og víðar um líkama. Drengurinn var ekki fluttur á sjúrahús en kvaðst hann ætla að leita sér læknisaðstoðar sjálfur. Lögregla tilkynnti málið til barnaverndar og rannsakar nú málið með aðkomu...