InnlentFórnarlambi fossblæddi í Grafarvogi – Árásarmenn með barefli á Grafarholti11. september 2021 Að baki er nótt ofbeldis. Þrjú tilvik komu upp þar sem ofbeldi var beitt. Í Grafarvogi var ráðist á mann sem hlaut af því höfuðáverka. Manninum fossblæddi. Skömmu síðar var tilkynnt um árás á Grafarholti. Fórnarlambið lýsti því að nokkrir menn hefðu ráðist á sig með bareflum. Þá greip lögregla inn í harðvítuga árás í Grafarvogi seint í gærkvöld. Um...
InnlentKona vopnuð hníf með óspektir8. september 2021 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók í gærkvöldi mann sem hafði brotist inn í miðborg Reykjavíkur. Lögreglan fór með þjófinn í fangageymslu þar sem hann var vistaður vegna rannsóknar á málinu. Þá barst lögreglu tilkynning um konu sem var með miklar óspektir og reyndist hún vera í annarlegu ástandi. Þegar lögreglan mætti á vettvang kom í ljós að konan hafði hníf á...
InnlentDópaður ók á drukkinn mann á rafhjóli – Fingralangur fór inn á heimili og stal síma –3. september 2021 Ökumaður bifreiðar í annarlegu ástandi ók á rafhjól í miðborginni með þeim afleiðingum að ökumaður hjólsins féll á framrúðu bifreiðarinnar og farþegi á hjólinu kastaðist í götuna. Slysið varð á gatnamótum og var ökumaður rafhjólsins fluttur á slysadeild. Hann bar þess einnig merki að vera ölvaður. Ökumaður bifreiðarinnar og farþegi á hjólinu sluppu án meiðsla. Ökumaður bifreiðarinnar þarf að svara...
InnlentHótelgestur missti stjórn á sér og réðst á hjálparhellu sína- Æstur maður réðst á bíla2. september 2021 Æstur maður í annarlegu ástandi var handtekinn eftir að hann sparkaði í bíla og reyndi að brjótast inn í þá. Hann nn var handtekinn og færður á lögreglustöð þar sem hann var síðan vistaður sökum ástands í fangageymslu lögreglu. Skömmu áður hafði verið tilkynnt um mann í annarlegu ástandi í miðbænum. Maðurinn var útúrdrukkinn, neitaði að segja til nafns og...
InnlentSkapstyggur þjófur á rafmagnshlaupahjóli – Drukkin kona ók á skilti31. ágúst 2021 Skapvondur þjófur var gripinn með góss úr verslun í Kópavogi. Maðurinn var mjög ölvaður og hafði stungið inn á sig vörum innanklæða. Starfsmaður reyndi að taka af honum þýfið en maðurinn var afskaplega viðskiptaillur og tók á sprett út. Þegar lögreglu bar að garði var hann að reyna að nota rafmagnshlaupahjól á flóttanum en þau áform hans voru stöðvuð. Hann...
InnlentVíðáttuölvaður að snapa slagsmál í miðborginni – Maður með hnúajárn yfirheyrður29. ágúst 2021 Fjöldi manns fékk áskorun um slagsmál víðáttuölvuðum manni sem vildi slást við allt og alla. Lögreglan mætti á staðinn en maðurinn reyndist ekki viðræðuhæfur. Hann sefur nú úr sér í gúmmídýnu í fangaklefa lögreglunnar. Með morgninum verður honum gerð grein fyrir atburðum næturinnar. Á Seltjarnarmesi kom upp öllu alvarlega því tveir urðu fyrir líkamsárás. Þeir komu sér sjálfir á slysadeild....
InnlentReyndi að bíta lögguna og hvílir nú í fangaklefa – Menn með ljós á bílastæði28. ágúst 2021 Lögregla greip inn í atburðarás þar sem maður í árásarham hafði verið ógnandi gagnvart ungmennum. Hann var handtekinn og gerði þá tilraun til að bíta lögreglumenn. Hann hvílir nú í fangageymslu og verður þar þangað til af honum rennur. Tilkynnt var um grunsamlegar mannaferðir á bílastæði. Menn með ljós á ferð í myrkrinu. Þeir voru sagðir lýsa inn í bíla....
InnlentHlaupahjól skemmdi hjólhýsi – Löggan rak óboðinn gest út25. ágúst 2021 Sú uppákoma varð að óstyrkur maður á rafhlaupahjóli ók á hjólhýsi og skemmdi það. Maðurinn stakk af frá vettvangi og lögreglan leitar hans. Á öðrum stað á höfuðborgarsvæðinu kom maður óboðinn inn á heimili og neitaði að fara. Lögreglan rak hann á dyr. Slagsmál brutust út milli ungmenna í strætisvagni. Kallað var eftir aðstoð lögreglu og tókst að skakka leikinn....
InnlentOfbeldismaður slasaði öryggisvörð – Steinsofandi, vopnaður þjófur í fjölbýli23. ágúst 2021 Ofbeldismaður réðst á öryggisvörð í verslun í miðborginni í morgun. Árásarmaðurinn hafði áður valdið usla í búðinni og var honum vísað á dyr. Hann veittist að öryggisverðinum með grjót að vopni og slasaði hann. Fórnarlamb ofbeldismannsins var flutt á slysadeild. Á öðrum stað í borginni var tilkynnt sofandi mann í anddyri fjölbýlishúss. Þegar lögreglu bar að garði kom í ljós...
InnlentRæningi með hamar á ferð í Hafnarfirði – Krakkar blésu upp björgunarbát19. ágúst 2021 Maður með hamar gerði tilraun til að ræna verslun í Hafnarfirði í nótt. Hann ógnaði starfsfólki með hamrinum og krafðist þess að fá peninga úr sjóðsvél. Það var ekki látið eftir honum og fór hann á brott tómhentur en með hamarinn. Lögreglan rannsakar málið og leitar mannsins með hamarinn. Það voru fleiri tíðindi úr Hafnarfirði. Lögreglu barst tilkynning um uppblásinn...
InnlentTveir í ofsaakstri í Ártúnsbrekku – Dópaður þjófur staðinn að verki18. ágúst 2021 Tveir ökumenn voru staðnir að ofsaakstri á Miklubraut við Ártúnsbrekku. Lögregla mældi ökufantana á 157 kílómetra hraða þr sem heimilt er að aka á 80 kílómetra hraða. Ökumennirnir viðurkenndu sök og sögðust hafa verið að spyrna. Sá sem tapaði þrætti fyrir að hafa náð 157 kílómetra hraða. Báðir missa þeir ökuréttindi sín. Eiganda bifreiðar í miðborginni var brugðið þegar hann...
InnlentVafasamir þremenningar handteknir á hafnarsvæði um miðja nótt17. ágúst 2021 Lögreglan náði með nokkru snarræði að handtaka þrjá dularfulla menn sem voru í leyfisleysi á lokuðu hafnarsvæði um miðja nótt. Þremenningarnir voru handteknir og læstir inni í fangaklefum. Þeir eru grunaðir um húsbrot og verða yfirheyrðir í morgunsárið. Húsbrotið á hafnarsvæðinu var stærsta mál lögreglunnar sem átti náðuga tíma í nótt. Annað mál var að maður í annarlegu ástandi var...