InnlentStal 1,3 milljónum króna af skjólstæðingum velferðarsviðs Ísafjarðarbæjar4. júlí 2019 „Það er ákveðinn léttir að málinu sé lokið, en þetta er fyrst og síðast sorglegt,” sagði Guðmundur Gunnarsson, bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar, í viðtali við Fréttablaðið í dag. Fyrrverandi starfsmaður velferðarsviðs Ísafjarðarbæjar var dæmdur fyrir fjárdrátt og peningaþvott í opinberu starfi.
InnlentKaupmáttur aukist eftir kjarasamninga á almennum markaði25. júní 2019 Samkvæmt tölum Hagstofu Íslands hækkaði launavísitalan um 0,7% milli apríl og maí. Kaupmáttur launa hefur verið stöðugur undanfarna mánuði. Hann hefur hækkað um 1,5% milli ára. Þetta kemur fram í tilkynningu Hagsjár.
InnlentFjármálastefna ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur„óraunhæf og óábyrg“12. júní 2019 Þorsteinn Víglundsson, þingmaður Viðreisnar, segir ríkisstjórnina verði að endurskoða fjármálastefnu sína. „Þær eru enn að okkar mati of bjartsýnar.” Svigrúmið sem ríkisstjórnin ætli sér dugir engann veginn til.
HeimurFramleiðslukeðjur slitna9. júní 2019 Þó flestir spái því, að það verði ekki látið gerast, að Bretland gangi úr ESB án samnings eða ítarlegrar áætlunar um hvernig eigi að takast á við það, þá er heldur ekkert sem segir að það geti ekki gerst. Sé litið yfir atburði síðustu mánaða, þá liggur fyrir að engin áætlun, sem hefur nægilega mikinn stuðning stjórnmálamanna, getur orðið leiðarvísir út úr stöðunni.
HeimurBrexit er óvissuský fyrir Ísland7. júní 2019 Þrátt fyrir að Brexit dagsetningunni hafi nú verið fresta fram í október, þá ríkir mikil óvissa hvernig efnahagsmál Bretlands og Evrópu munu þróast í tengslum við Brexit.
InnlentTúrskattur á Íslandi einn sá mesti í Evrópu30. maí 2019 Statista.com hefur tekið saman kort af Evrópu sem sýnir skattlagningu á dömubindum og túrtöppum. Á Íslandi er almennur virðisaukaskattur í kringum 25%. Það á við um dömubindi og túrtappa. Það er meðal hæstu skattlagninga í Evrópu. Þessi skattlagning er stundum kölluð túrskattur.
SkoðunEva H. BaldursdóttirEr hagvöxtur gallaður mælikvarði?26. maí 2019 Hagvöxtur mælir efnahagslega stöðu þjóðar og hefur löngum verið notaður sem mælikvarði á velsæld þjóða, sem og lausn við atvinnuleysi og fátækt. Kenningin um hagvöxt er nokkurn veginn svona: vöxtur á landsframleiðslu (GDP), sem mælir framleiddar vöru og þjónustu hagkerfisins á hverju ári, er nauðsynlegur til að þjóð dafni og það ríki stöðugleiki. Flestar alþjóðastofnanir svo sem OECD (efnahags- og...
InnlentEva Joly segist aldrei hafa séð hegðun eins og Björgólfs í frönskum réttarsal22. maí 2019 Björgólfur Þór Guðmundsson, fyrrverandi formaður bankaráðs Landsbankans, virti fyrirmæli fransks dómara að vettugi í morgun og gekk út úr réttarsal. Björgólfur er einn níu sakborninga í málinu.
InnlentFyrrverandi starfsmönnum WOW á atvinnuleysisbótum hefur fækkað22. maí 2019 Fækkað hefur um sextíu fyrrverandi starfsmenn WOW milli apríl og maí á lista vinnumálastofnunar vegna greiðsla atvinnuleysisbóta. Þetta kemur fram í minnisblaði Vinnumálastofnunar til félagsmálaráðuneytis vegna gjaldþrots WOW.
InnlentÓlíklegt að starfsfólk WOW fái greitt úr Ábyrgðarsjóð launa í júlí9. maí 2019 Ólíklegt er að starfsfólk WOW fái greitt úr Ábyrgðarsjóð launa strax í júlí þrátt fyrir yfirlýsingu skiptastjóra þrotabús WOW . Uppsagnarfrestur starfsfólks rennur út í júlí en þá á sjóðurinn eftir að samkeyra kröfur og upplýsingar.
InnlentSamherjamenn kæra Má og aðra starfsmenn Seðlabankans til lögreglu30. apríl 2019 Þorsteinn Már Baldvinsson og stjórn Samherja hafa kært Má Guðmundsson og þrjá aðra núverandi og fyrrverandi starfsmenn Seðlabanka Íslands til lögreglu. Tilefnið er málarekstur Seðlabankans vegna meintra gjaldeyrislagabrota Samherja.
InnlentLeiga hefur hækkaði um 0,4% í febrúar og árshækkunin er 5,7%30. apríl 2019 Leiguverð hefur hækkað um 5,7% á síðustu12 mánuðum á sama tíma og kaupverð fjölbýlis á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 3,5%. Þetta kemur fram í Hagsjá Landsbankans sem birt var í morgun.