HeimurSingapúr hættir að refsa samkynhneigðum karlmönnum fyrir að stunda kynlíf – „Sigur fyrir mannkynið“22. ágúst 2022 Singapúr mun afnema lög sem gera kynlíf milli karla refsivert. LGBTQ hópar hafa lýst ákvörðuninni sem „sigri fyrir mannkynið“. Í þjóðarávarpi á sunnudag sagði forsætisráðherrann, Lee Hsien Loong, að afnám hegningarlaganna myndi samræma lögin við núverandi félagsleg viðhorf og „veita samkynhneigðum Singapúrbúum smá léttir“. Hins vegar bætti Lee við að stjórnvöld vildu ekki „heildarbreytingar á samfélaginu“, þar með talið breytingar...
HeimurBarn lést eftir að hafa synt í Nebraska ánni – Fékk sýkingu úr vatninu19. ágúst 2022 Barn lést á sjúkrahúsi í Bandaríkjunum eftir að hafa synt í Nebraska ánni tíu dögum áður. Að sögn heilbrigðisfulltrúa, á blaðamannafundi í gær, er líklegasta orsök andlátsins sýking af Naegleria fowleri. Naegleria fowleri, eða ameba, er einfruma lífvera sem lifir í jarðvegi og heitu fersku vatni, svo sem vötnum, ám og hverum. Ameban er yfirleitt kölluð heilaetandi amöba vegna þess...
HeimurKarlmaður handtekinn: Myrti mann í hjólastól sem safnaði peningum til góðgerðamála18. ágúst 2022 Karlmaður hefur verið handtekinn, grunaður um morðið á Thomas O’halloran, sem stunginn var til bana í rafmagnshjólastól sínum fyrr í vikunni. Maðurinn, sem er 44 ára gamall, sást hlaupa frá vettvangi vopnaður hnífi skömmu eftir árásina en handtók lögregla manninn snemma í morgun. Sá látni, Thomas O’Halloran, var 87 ára gamall. Var honum lýst sem „mjög þekktum og ástsælum“ meðlimi...
HeimurEldri maður í rafmagnshjólastól stunginn til bana í London17. ágúst 2022 Lögreglan í London var kölluð út í gær vegna hnífa árásar í vesturhluta London. Árásin átti sér stað á Cayton Road, rétt eftir klukkan fjögur í gær, en maðurinn var úrskurðaður látinn á vettvangi. Engin vitni hafa gefið sig fram að svo stöddu en maðurinn sem lést var á áttræðisaldri og fór ferða sinna í rafmagnshjólastól. Árásin átti sér stað...
InnlentUngur maður lést eftir skotárás – Fannst með alvarlega áverka15. ágúst 2022 Ungur maður fannst með alvarlega áverka í Manchester snemma í morgun og var í kjölfarið fluttur með hraði á sjúkrahús. Maðurinn var úrskurðaður látinn skömmu síðar en grunur liggur á að skotárás hafi átt sér stað. Maðurinn er talinn vera á aldrinum 18 til 25 ára en óskar lögregla nú eftir vitnum af árásinni sem átti sér stað við Claremont...
HeimurFimm fræg lokaorð: „Peningar kaupa ekki lífið“14. ágúst 2022 Einhverra hluta vegna er oft talað um síðustu orð fólks áður en það deyr, þá sérstaklega þegar frægt fólk deyr. Mögulega er það vegna þess að aðdáendur þyrstir í ein skilaboð í viðbót, eina visku enn frá munni fólksins sem það dáist að. Hér eru fimm dæmi um fræg lokaorð. 1. Bob Marley Konungur reggí-tónlistarinnar, Bob Marley lést úr sortuæxli...
HeimurUpp úr sauð á milli þjálfara Chelsea og Tottenham: „Margt annað sem gerðist þarna sem var óþarfi“14. ágúst 2022 Upp úr sauð í lok leiks Chelsea og Tottenham í kvöld. Byrjaði þegar stjórarnir tókust í hendur. Samkvæmt Fotbolti.net var Thomas Tuchel, stjóri Chelsea ósáttur við dómgæsluna en leikurinn fór 2-2. Chelsea var með mikla yfirburði í leiknum og í tvígang tók liðið forystuna en í bæði skiptin náði Tottenham að jafna leikinn. Seinna jöfnunarmarkið kom á síðustu sekúndum leiksins... Myndband
HeimurJames Worthy sendir Magic Johnson afmæliskveðju: „Þvílíkt ferðalag!“14. ágúst 2022 James Worthy sendi Magic Johnson fallega afmæliskveðju á Facebook í dag. James Worthy eða „Big Game James“ eins og hann var gjarnan kallaður er hann lék með L.A. Lakers í NBA á síðustu öld, sendi vini sínum og fyrrum leikfélaga, Ervin „Magic“ Johnson afmæliskveðju á Facebook í dag. Þeir félagar áttu stóran þátt í þeirri gríðarlegu velgengni sem Lakers-liðið naut...
HeimurSalman Rushdie er vaknaður og farinn að grínast – Missir sennilega auga14. ágúst 2022 Rithöfundurinn Salman Rushdie er vaknaður og farinn að segja brandara. Hinn indverski rithöfundur Salman Rushdie er kominn úr öndunarvél og er farinn að gantast. Rushdie varð fyrir hrottalegri hnífaárás í miðjum fyrirlestri í New York. Fjölmörg vitni urðu að árásinni en hinn meinti árásarmaður, hinn 24 ára Hadi Matar neitar sök en hann hefur verið kærður fyrir morðtilraun og árás....
HeimurÞjást eftir endaþarmsmök – „Tilkynnt um aukna tíðni saurþvagleka og skaða á hringvöðva“12. ágúst 2022 Svo virðist sem konur í Bretlandi þjáist af meiðslum og öðrum heilsufarsvandamálum vegna vaxandi vinsælda endaþarmsmaka meðal gagnkynhneigðra para. Læknarnir, Tabitha Gana og Lesley Hunt, fjölluðu um málið nýverið í British Medical Journal. Skurðlæknarnir segja afleiðingarnar meðal annars vera þvagleka, kynsjúkdóma og blæðinga í kjölfar kynlífsins. Tabitha og Lesley héldu því einnig fram að tregða lækna, til að ræða áhættuna...
MenningTommy Lee gekk fram af aðdáendum sínum – Birti mynd af sér á sprellanum11. ágúst 2022 Rokkhundurinn Tommy Lee kom aðdáendum sínum mis skemmtilega á óvart með ljósmynd af sér á sprellanum. Trommari Mötley Crüe, hinn 59 ára Tommy Lee er allt annað en feiminn við myndavélar. Það sannaði hann enn og aftur seint síðustu nótt, með óvæntri nektarmynd á Instagram en þar fylgja honum 1,5 milljónir manna. Við ljósmyndina skrifaði rokkarinn „Ooooopppsss.“ Eyddi hann færslunni...
HeimurTýndur drengur í Tyrklandi – Mæðginin heimsóttu föður hans11. ágúst 2022 Lögreglan í Bretlandi sendi frá sér áríðandi yfirlýsingu seint í gærkvöldi þar sem óskað var eftir aðstoð við að finna fjögurra ára dreng frá Darlington, sem sagður er vera týndur. Drengurinn, George Jack Temperley-Wells, er talinn hafa farið til Antalya-svæðisins í Tyrklandi með móður sinni, Brogan Elizabeth Temperley, þann 29. júní síðastliðinn. Lögreglan í Durham taldi líklegt að mæðginin hefðu...