Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fimm fræg lokaorð: „Peningar kaupa ekki lífið“

Fimm fræg lokaorð: „Peningar kaupa ekki lífið“

Ein­hverra hluta vegna er oft talað um síð­ustu orð fólks áður en það deyr, þá sér­stak­lega þegar frægt fólk deyr. Mögulega er það vegna þess að aðdá­endur þyrstir í ein skila­boð í við­bót, eina visku enn frá munni fólks­ins sem það dáist að. Hér eru fimm dæmi um fræg loka­orð.

1. Bob Marley

Konungur reggí-tón­list­ar­innar, Bob Marley lést úr sortu­æxli 11. maí árið 1981. Æxlið hafði byrj­aði í tá en dreift sér víða um lík­amann. Þar sem Bob var harður rastafari, neit­aði hann allri vest­rænni með­ferð við krabba­mein­inu og því fór sem fór. Það síð­asta sem hann sagði við son sinn Ziggy voru þessi vitru orð: „Peningar kaupa ekki lífið.“

2. Al Capone

Einn fræg­asti glæpafor­ingi sög­unnar, Alphonse Gabriel „Al“ Capone, lést 24. jan­úar árið 1947, eftir að hafa barist við sára­sótt í mörg ár. Rétt áður en hann dó þjáð­ist hann af ýmsum veik­indum, þar á meðal lungna­bólgu, hjarta­á­falli og heila­blóð­falli. Annars var hann nokkuð frískur.

Nú er það ekki 100% stað­fest en sagt er að síð­ustu orð Al Capone hafi verið: „Þú nærð lengra í líf­inu með hlýjum orðum og byssu en bara með hlýjum orðum.“ Senni­lega satt, því miður.

3. Winston Churchill

Winston Churchill, fyrrum for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, lést sama dag og Al Capone, 24. jan­úar en árið 1965. Var hann þá níræður að aldri. Hann hafði fengið heila­fall níu dögum áður. Heilsa hans hafði reyndar hrakað mun fyrr eða árið 1941 er hann heim­sótti Hvíta húsið í Washington. Það tekur á að berj­ast við Hitlera þessa heims.

For­sæt­is­ráð­herran aldni fór í dá fljót­lega eftir heila­blóð­fallið en rétt áður en það gerð­ist, muldr­aði hann hin fleygu orð: „Ég er orð­inn leiður á þessu öllu.“ Churchill vakn­aði aldrei úr dáinu.

4. Móðir Teresa

Móðir Teresa lést 5. sept­em­ber 1997, 87 ára að aldri. Dán­ar­or­sökin var hjarta­á­fall í bland við þó nokkra heilsu­kvilla. Hafði hún átt við heilsu­leysi síð­ustu 10 ár ævinnar.
Er hún dró síð­asta anda­drátt­inn lét hún út hin frægu orð: „Jesús, ég elska þig, Jesús, ég elska þig.“

5. Amy Winehouse

Andlát söngdrottn­ing­ar­innar Amy Winehouse kom fáum á óvart enda hafði heim­ur­inn fylgst með dauða hennar í „slow motion“ um nokk­urra ára skeið en Amy glímdi við mikla eit­ur­lyfja og áfeng­is­fíkn. Lést hún þann 23. júlí árið 2011 en dán­ar­or­sökin var bráð áfeng­is­eitrun en hún lést í svefni, aðeins 27 ára að aldri. Síðustu orð hennar voru afar sorg­leg en hún sagði þau í sím­tali. „Ég vil ekki deyja.“ Heim­ur­inn missti efni­leg­ustu söng­konu sína þá nótt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco