InnlentSkúli missir yfirráðin í WOW en fullvissar starfsfólk og viðskiptavini26. mars 2019 Skúli Mogensen, stofnandi WOW air, mun missa yfirráð sín í félaginu þegar kröfuhafar þess taka það yfir. Hann er engu að síður bjartsýnn á framtíðina fyrir hönd félagsins, segir að starfsfólk muni fá útborgað og að óhætt sé að kaupa farmiða með WOW.
InnlentWOW fær líflínu frá kröfuhöfum en staðan er enn erfið26. mars 2019 Eigendur skuldabréfa og aðrir kröfuhafar í WOW air eru tilbúnir að breyta skuldum félagsins í hlutafé í því skyni að halda félaginu gangandi. Þó svo að það gangi eftir er enn óvíst hvort það dugi til að halda félaginu gangandi.
InnlentKröfuhafar WOW skoða lagalega stöðu sína25. mars 2019 Stjórnendur WOW gera nú lokatilraun í samvinnu við kröfuhafa til þess að bjarga rekstri fyrirtækisins. Samgöngustofa hefur fyrirtækið undir nánu eftirliti og tvær af 11 flugvélum WOW hafa nú verið kyrrsettar, önnur í Montreal og sú síðari á Kúbu.
InnlentFlugvél WOW kyrrsett í Kanada25. mars 2019 Flugvél WOW air, TF-PRO, var kyrrsett í Montreal í Kanada í gærkvöldi að beiðni leigusala vélarinnar. Farþegum var ekið á hótel í nótt og er önnur vél á leiðinni til Montreal.
InnlentFylgst með hverju skrefi í dauðastríði WOW25. mars 2019 Staða WOW air er með þeim hætti að fylgst er með hverri einustu flugferð sem félagið leggur í. Staða WOW gæti skýrst í dag en tvennt liggur fyrir, félagið þarf bæði á stórkostlegri afskrift skulda og milljarða króna innspýtingu til að halda rekstrinum gangandi.
InnlentÖgurstund hjá WOW: Indigo gengur frá borði en bætir við áfangastöðum frá Keflavík22. mars 2019 Örlög WOW air kunna að skýrast á mánudaginn en það er sá tímarammi sem Icelandair og WOW gefa sér til að ljúka viðræðum um aðkomu fyrrnefnda félagsins á því síðarnefnda. Á sama tíma og Indigo Partners gekk frá borði var tilkynnt um að Wizz air, sem er í eigu Indigo, hafi fjölgað flugleiðum til Íslands.
InnlentIcelandair leggur 737 Max vélunum12. mars 2019 Icelandair mun ekki fljúga nýjum Boeing 737 Max flugvélum sínum þangað til búið verður að ganga úr skugga um að öryggi þeirra sé tryggt. Flugfélög og stjórnvöld víða um heim höfðu ákveðið að kyrrsetja vélar af þessari tegund áður en Icelandair tók sína ákvörðun.
HeimurVerða Boeing 737 Max flugvélarnar kyrrsettar um allan heim?11. mars 2019 Svo gæti farið að flugmálayfirvöld í Bandaríkjunum kyrrsetji allar Boeing 737 Max þotur sem eru í þjónustu eftir flugslysið í Eþíópíu í gær. Nú þegar hafa yfirvöld í Kína og Eþíópía kyrrsett allar slíkar þotur.
InnlentVanskilin sögð „hlaðast upp“ hjá WOW7. mars 2019 Staða WOW air verður tvísýnni með hverjum deginum og sífellt berast nýjar fréttir af vanskilum hjá fyrirtækinu. Mesta óvissan er þó háð stórum gjalddaga þann 24. mars þar sem félagið þarf að reiða af hendi 150 milljónir króna.
MannlífiðNjóttu Amsterdam á hjóli4. mars 2019 Amsterdam er ein hjólavænasta borg í heimi og tilvalið að skoða hana á reiðhjóli. Ýmist er hægt að leigja hjól og fara á eigin vegum eða fá leiðsögn. Á hjóli færðu borgina beint í æð en kemst yfir mun meira svæði á einum degi en gangandi. Hér eru nokkrar skemmtilegar leiðir sem gaman er að hjóla í Amsterdam.
FólkKom til Íslands í stuttbuxum og sandölum7. febrúar 2019 Jessi Kingan ólst upp í útborg í Chicago, lærði samskipti við háskóla í Colorado en ákvað að breyta um stefnu í lífinu og verða köfunarkennari. Hún fór til Taílands til að læra að kenna köfun og þar biðu örlögin hennar í líki ungs Íslendings, Jóhanns Jónssonar.