Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

New York með stæl

6 spenn­andi boutique-hótel á Man­hattan.

Boutique-hotel
Stór hluti af hverju ferða­lagi er gisti­stað­ur­inn. Fallegt og vel stað­sett hótel getur breytt upp­lifun­inni svo um munar. Ég hef þá reglu að vera á vel stað­settu hót­eli ef ég stoppa stutt í borgum því þá er tím­inn dýr­mætur. Hótelið þarf ekk­ert endi­lega að vera fínt, sér í lagi ef ætl­unin er að skoða mikið og vera lítið á hót­el­inu. Ef ég dvel í lengri tíma t.d. viku eða meira finnst mér fínt að vera aðeins út úr, jafn­vel með íbúð, það er oft ódýra og góð til­breyt­ing. En fátt er þó ynd­is­legra en að vera á góðu og fal­legu hót­eli þar sem umhverfið er upp­lifun í sjálfu sér og eftir því sem ferðir mínar um heim­inn verða tíð­ari þá hall­ast ég meira að því að vera einni nótt styttra og splæsa í æðis­legt hótel þegar buddan leyfir. Svokölluð boutique-hótel hafa notið vin­sælda und­an­farin ár en það eru yfir­leitt mun minni hótel en almennt ger­ist og oft eru þau sér­lega per­sónu­leg og fal­leg. Hér bendi ég á nokkur slík á Man­hattan en hafið í huga að sum þess­ara hót­ela eru ekki endi­lega þau ódýr­ustu í borg­inni svo fylgist vel með til­boðum.

The Quin 
Ynd­is­legt lúx­us­hótel sem minnir meira á borg­ar­hús (townhouse) en hótel þrátt fyrir að það séu 208 her­bergi á The Quin sem er stað­sett rétt hjá Central Park. Hótelið er ein­stak­lega fal­legt og stíl­hreint. Meðal frægra sem gistu forðum í hús­inu eru lista­menn á borð við O´Keeffe og Chagall. Dvöl í sval­ar­svít­unum (terrace suites) er ævin­týri lík­ast en þar er nán­ast eins og gestir séu með sinn eigin þak­bar.
Vefsíða: thequinhotel.com

The Refinery
Mjög töff og fal­legt hótel á frá­bærum stað á Man­hattan ekki langt frá Macy´s en í raun er stutt í allar áttir. Hönnunin er afar stíl­hrein með hvítum veggjum og fal­lega dökkum kon­íakslit­uðum við og inn á milli eru lit­rík hús­gögn, sér­lega smekk­legt. Skemmti­legur bar er á þak­inu í ekta New York-stíl með grófum múr­steins­veggjum og ser­íum með hvítum ljósum og alger­lega þess virði að byrja kvöldið þar á góðum drykk.
Vefsíða: refineryhotelnewyork.com

The Redbury
Lifandi hótel í hjarta borg­ar­innar en það er á horn­inu á Madison Avenue og 29. strætis og því sér­lega þægi­leg stað­setn­ing hvort sem ætl­unin er að versla, fara í leik­hús eða skjót­ast upp í Empire States-bygg­ing­una. Hótelið er með svolitlu Hollywood-kvik­mynda yfir­bragði, her­bergin eru rauð og svört með mörgum myndum á veggjum. Hér eru fínir kostir í veit­ingum, góðar pít­sur eru á veit­inga­staðnum Marta en einnig er kaffi­hús og bar á hót­el­inu.
Vefsíða: ther­ed­bury.com/newyork

The Ace (sjá efstu mynd)
Sérlega hipp og kúl hótel á horn­inu á 29. stræti og Brodway þannig að stutt er í allar áttir jafnt til að versla eða fara á helstu ferða­manna­stað­ina. Hönnunin er fremur hrá og ein­föld og minnir svo­lítið á far­fugla­heim­il­is­stíl. Her­bergin eru mis­mun­andi og mörg hver skreytt með áhuga­verðum og töff vegg­myndum. Á hót­el­inu er gott kaffi­hús, Stumptown coffee og veit­inga­stað­ur­inn The Breslin er sér­lega góður en mat­reiðslu­meist­ar­inn sem rekur hann hlaut hin eft­ir­sókn­ar­verðu James Beard-verð­laun. Einnig er að finna góðan og nota­legan bar á The Ace sem kall­ast því ein­falda nafni The Lobby bar.
Vefsíða: acehotel.com/newyork

Hotel Hugo
Þetta hótel er í SoHo-hverf­inu á Man­hattan en það er ein­stak­lega fal­lega inn­réttað. Hlýleg hnota er á sumum veggjum og hús­göngin eru stíl­hrein og minna svo­lítið á 6. ára­tug síð­ustu aldar. Fallegar plöntur eru einnig víða en her­bergin eru almennt fremur stíl­hrein. Skemmti­legur þak­bar er á hót­el­inu sem snýr út að Hudson-ánni og alger­lega frá­bært að fá sér drykk þar í sól­setr­inu þegar veður leyfir.
Vefsíða: hot­el­hugony.com

Public
Eigendur þessa hót­els opn­uðu dyr sínar í júní 2017 og er kannski á mörk­unum að flokk­ast undir boutique-hótel en er engu að síður afar áhuga­vert. Public er á Lower East Side og því fremur neð­ar­lega á Man­hattan. Hótelið er sér­lega hipp og kúl og fremur svalt um þessar mundir. Hægt er að fá pínu­lítil her­bergi upp í stór en hönn­unin er sér­lega ein­föld en samt svo­lítið fram­úr­stefnu­leg. Rúmin eru inn í eins­konar hólfi inn í her­berg­inu. Ljós viður og hvítir veggir með virki­lega kósí lýs­ingu gera þetta hótel að góðum kosti. Rúllu­stig­arnir á Public eru mjög töff og vin­sælt að taka myndir þar. Nokkrir veit­inga­staðir og barir eru á hót­el­inu sem eru bæði fal­legir og bjóða upp á góðan mat. Þak­bar­inn er sér­lega skemmti­legur og vin­sæll og um að gera að nýta sér hann. Þjón­ustan er svo­lítið öðru­vísi en menn eiga að venj­ast, t.d. er ekki hægt að fá „room service“ á her­bergið en hægt er að panta mat og drykk og sækja sjálfur svo dæmi sé tekið.
Vefsíða: publichotels.com

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina