Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Ögurstund hjá WOW: Indigo gengur frá borði en bætir við áfangastöðum frá Keflavík

Örlög WOW air kunna að skýr­ast á mánu­dag­inn en það er sá tímara­mmi sem Icelandair og WOW gefa sér til að ljúka við­ræðum um aðkomu fyrr­nefnda félags­ins á því síð­ar­nefnda. Á sama tíma og Indigo Partners gekk frá borði var til­kynnt um að Wizz air, sem er í eigu Indigo, hafi fjölgað flug­leiðum til Íslands.

Ögurstund hjá WOW: Indigo gengur frá borði en bætir við áfangastöðum frá Keflavík

Það dró til tíð­inda í lífs­bar­áttu WOW air í gær­kvöldi þegar þriggja mán­aða samn­inga­við­ræðum um kaup Indigo Partners á WOW air var slitið. Þrjár til­kynn­ingar voru sendar út sam­tímis í gær­kvöldi vegna máls­ins.

Icelandair sendi til­kynn­ingu til kaup­hall­ar­innar um að stjórnin hafi sam­þykkt að hefja við­ræður við WOW um aðkomu að rekstri félags­ins. Á sama tíma birti WOW til­kynn­ingu um að við­ræðum við Indigo hafi verið slitið um leið og á vef stjórn­ar­ráðs­ins var til­kynnt um við­ræður Icelandair og WOW. Segir að félögin stefni á að ljúka samn­inga­við­ræðum fyrir mánu­dag.

Athygli vekur að í til­kynn­ingu Icelandair segir að við­ræð­urnar fari fram „í sam­ráði við stjórn­völd“ en í vef stjórn­ar­ráðs­ins segir ein­ungis að stjórn­völd muni áfram „fylgj­ast grannt með fram­vind­unni“. Á þessu er eðl­is­munur eins og Trausti Haf­liða­son, rit­stjóri Við­skipta­blaðs­ins, benti á í Morg­un­út­varpi Rásar 2 í morgun.

Ráð­herrar rík­is­stjórn­ar­innar vildu lítið tjá sig um málið fyrir rík­is­stjórn­ar­fund í morgun en mbl.is hefur eftir Bjarna Bene­dikts­syni, fjár­mála­ráð­herra, að málið sé í höndum flug­fé­lag­anna.

Barátta Skúla Mogensen hefur verið sam­felld rús­sí­ban­areið. Hann byrj­aði á því að leita til Icelandair og sama dag og þær við­ræður fóru út í sand­inn kom Indigo að borð­inu. Það ferli hófst um miðjan des­em­ber og átti að ljúka í lok febr­úar en var fram­lengt um þrjár vikur þegar sam­komu­lag var ekki í höfn.

Á þessum tíma gjör­breytt­ist staða Icelandair. Félagið til­kynnti um stækkað leiða­kerfi og lyk­ill­inn af því voru glæ­nýjar Boeing 737 MAX þotur. Hafði félagið þegar fengið þrjár slíkar þotur afhentar og sex til við­bótar voru á leið­inni á næstu viku. Mannskæð flug­slys í Indónesíu og Eþíópíu urðu hins vegar til þess að allar vélar af þess­ari teg­und hafa verið kyrr­settar og alls óvíst er hvenær þær fara í loftið aftur. Icelandair bráð­vantar þess vegna flug­vélar til að halda áætlun sinni.

Það vakti svo athygli í gær að sama dag og Indigo gekk frá samn­inga­borð­inu var til­kynnt um að Wizz air, sem er að stærstum hluta í eigu Indigo, ætli að hefja áætl­un­ar­flug milli Kefla­víkur og Kraká í Póllandi. Þar með verða áfanga­staðir Wizz air frá Keflavík orðnir 10 tals­ins. Trausti velti því upp í Morg­un­út­varp­inu í morgun hvort samn­inga­við­ræð­urnar hafi aðeins verið yfir­skin af hálfu Indigo.

„Bill Franke [eig­andi Indigo] er núna með allan íslenska flug­heim­inn kort­lagðan. Hann er búinn að skoða allar bækur. Hann er í kjörað­stöðu. Ef maður ætti að fara út í ein­hverjar sam­sær­is­kenn­ingar þá er hann búinn að draga WOW á asna­eyr­unum í fjóra mán­uði og endar með að slíta við­ræð­unum og endar með að fjölga ferðum hjá sínu flug­fé­lagi til Íslands.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð