Innlent„Hrafnarnir“ á Viðskiptablaðinu hæðast að RÚV: „Innilega til hamingju með traustið“16. febrúar 2024 Skotið er föstum skotum á Ríkisútvarpið í vef Viðskiptablaðsins í dag. Regulega birtast skoðanapistlar í Viðskiptablaðinu, sem Huginn og Muninn skrifa undir en þar er oft fast skotið á menn og málefni hér á landi. Í hádeginu í dag birtist einn slíkur skoðanapistill en þar taka þeir Huginn og Muninn frétt Ríkisútvarpsins á eigin vinsældum, fyrir. „Fyrr í dag greindi...
InnlentÞakkar RÚV fyrir að óhlýðnast fjölmiðlabanni Úlfars: „Viðmælendur skýrðu vel hug sinn og líðan“8. febrúar 2024 Björn Birgisson þakkar Ríkisútvarpinu fyrir að óhlýðnast valdboði Úlfars Lúðvíkssonar lögreglustjóra á Suðurnesjum. Samfélagsrýnirinn orðheppni frá Grindavík, Björn Birgisson, skrifaði Facebook-færslu í morgun þar sem hann þakkar Ríkisútvarpinu fyrir að taka viðtal við „sómafólk í Grindavík“, þrátt fyrir fjölmiðlabann lögreglustjórans Úlfars Lúðvíkssonar. Segir Björn að hann hafi lesið athugasemdir á Facebook við frétt RÚV, sem ekki slógu í gegn hjá...
InnlentSjóslysið við Færeyjar: „Ekki eitt orð um þetta í kvöldfréttum sjónvarpsstöðvanna í gærkvöldi“7. febrúar 2024 Halldór Benóný Nellett gagnrýnir fréttamat sjónvarpsstöðva á Íslandi, fyrir að fjalla ekki um alvarlegt sjóslys við Færeyjar, sem varð í gær en tveggja er enn saknað. Sjá einnig: Beið í sjónum í þrjá tíma án hlífðarklæða – Tveggja úr áhöfn Kambs enn leitað Fyrrverandi skipherra hjá Landhelgisgæslunni, Halldór Benóný Nellett skrifaði Facebook-færslu í dag þar sem hann gagnrýnir harðlega fréttamat...
InnlentBÍ um takmörkun á aðgengi fjölmiðla að Grindavík: „Samræmist ekki tjáningarfrelsi fjölmiðla“2. febrúar 2024 Blaðamannafélag Íslands ítrekar kvörtun sína vegna takmörkun á aðgengi fjölmiðla að hættusvæði Grindavíkur. Rétt í þessu sendi Blaðamannafélag Íslands frá sér fréttatilkynningu þess efnis að félagið hafi í gær sent lögreglustjóranum á Suðurnesjum ítrekun á kvörtun sína vegna takmörkunar á aðgengi fjölmiðla að hættusvæði í og umhverfis Grindavík. Þar kemur fram að þann 22. nóvember síðastliðinn hafi BÍ óskað eftir...
InnlentBjörn Leví hæðist að „samsæriskenningu“ nafna síns: „Þetta er mjög opinberandi“26. janúar 2024 Björn Leví Gunnarsson hæðist að Birni Bjarnasyni sem sakar RÚV og Pírata um leikfléttu. Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra Sjálfstæðisflokksins skrifaði færslu á Facebook þar sem hann segir fréttastofu Ríkisútvarpsins og Pírata hafa verið með „gamalkunna leikfléttu“ þegar Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, var spurður í frétt RÚV hvort Bjarni Benediktsson hefði hleypt illu blóði í kjaraviðræðurnar í Silfrinu. Færsluna má...
InnlentGagnrýnir RÚV harðlega: „Algjör óþarfi að íþyngja öllu því fólki með smekkleysi“15. janúar 2024 Björn Birgisson gagnrýnir Ríkisútvarpið harðlega fyrir útvarpssendingar í miðju eldgosi í og við Grindavík. Samfélagsrýnirinn frá Grindavík, Björn Birgisson er allt annað en ánægður með RÚV en ástæðan er sú að ríkisfjölmiðillinn sendi út á samtengdum rásum Rásar 1 og Rásar 2, þegar eldgosið byrjaði í og við Grindavík í fyrradag, og spilaði lög inn á milli fregna af gosinu,...
InnlentYfirlýsing frá stjórn Blaðamannafélags Íslands um uppsögn framkvæmdastjóra12. janúar 2024 Yfirlýsing frá stjórn Blaðamannafélagsins barst fjölmiðlum rétt í þessu. Árétta stjórn Blaðamannafélags Íslands að ákvörðun um uppsögn framkvæmdastjóra félagsins, Hjálmars Jónssonar, hafi verið samþykkt einróma í stjórn félagsins og að ástæðan sé trúnaðarbrestur milli hans og stjórnarinnar. Hér fyrir neðan má lesa yfirlýsinguna í heild sinni: Stjórn Blaðamannafélags Íslands áréttar að ákvörðun um starfslok framkvæmdastjóra félagsins, Hjálmars Jónssonar, var einróma...
InnlentSigríður Dögg rýfur þögnina: „Er ekki sek um það sem ég er sökuð um“11. janúar 2024 Sigríður Dögg Auðunsdóttir svarar loksins fyrir svaraleysi sitt gagnvart skattamálum sínum. Segir hún einnig að Hjálmar Jónsson, fráfarandi framkvæmdastjóri Blaðamannafélags Íslands, hafi margítrekað neitað að vinna þau verkefni sem stjórnin fól honum að vinna. Mannlíf heyrði í Sigríði Dögg Auðunsdóttur, formanni BÍ og ræddi við hana um nýjust vendingarnar hjá félaginu en framkvæmdastjóranum, Hjálmari Jónssyni var sagt upp í gær....
InnlentDeilan innan BÍ kemur Brynjari ekki á óvart: „Geri mér grein fyrir mikilvægi fjölmiðla“11. janúar 2024 Brynjar Níelsson segist gera sér grein fyrir mikilvægi fjölmiðla í nýrri Facebook-færslu. Varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins, Brynjar Níelsson segir í nýrri Facebook-færslu að hann geri sér grein fyrir mikilvægi fjölmiðla, þó hann „jagist stundum í blaðamönnum.“ Í færslunni rifjar hann upp kynni sín við Hjálmar Jónsson, fráfaranda framkvæmdarstjóra Blaðamannafélagsins, sem hann segir hreinan og beinann mann sem „brennur greinilega fyrir hagsmunum umbjóðaenda...
InnlentVaraformaður Blaðamannafélagsins um uppnámið: „Það er góður siður að svara fjölmiðlum“11. janúar 2024 Aðalsteinn Kjartansson, varaformaður Blaðamannafélags Íslands, segir trúnaðarbrest vera ástæðuna fyrir því að framkvæmdastjóra félagsins, Hjálmari Jónssyni hafi verið sagt upp. Segir hann ýmislegt hafa gengið á undanfarnar vikur og mánuði. Líkt og fram hefur komið í fjölmiðlum var Hjálmari Jónssyni sagt upp störfum sem framkvæmdastjóra Blaðamannafélags Íslands (BÍ) eftir að upp kom ágreiningur milli hans og Sigríðar Daggar Auðunsdóttur, formanns...
InnlentSkattamál Sigríðar Daggar draga dilk á eftir sér: „Ég er lyklalaus í fyrsta sinn í 22 ár“10. janúar 2024 Framkvæmdastjóra Blaðamannafélags Íslands, Hjálmari Jónssyni hefur verið sagt upp störfum hjá félaginu, eftir ágreining á milli hans og formannsins. Hjálmar Jónsson lenti í ágreiningi við formann BÍ, Sigríði Dögg Auðunsdóttur, í síðustu viku, en í morgun var hann boðaður á fund með Sigríði Dögg, Aðalsteini Kjartanssyni varaformanni BÍ og lögmanni félagsins þar sem honum var boðinn starfslokasamningur. Hjálmar þáði það...
InnlentRannsókn á meintum hótunum Páls Steingrímssonar hætt: „Þetta er kjaftæði“5. janúar 2024 Rannsókn á kærumáli Þórðar Snæs Júlíussonar, Aðalsteins Kjartanssonar og Stefáns Eiríkssonar á hendur Páli Steingrímssyni, vegna hótana, var hætt á milli jóla og nýárs. Mannlíf hefur gögn málsins undir höndum. Mannlíf hefur undir höndum lögregluskýrslur tengdum kærum fjölmiðlamannanna Þórðar Snæs Júlíussonar, ritstjóra Heimildarinnar Aðalsteins Kjartanssonar, blaðamanns Heimildarinnar og Stefáns Eiríkssonar útvarpsstjóra en þeir kærðu Pál Steingrímsson fyrir hótanir. Hinu meintu...