InnlentCovid-19Svandís vill að Kári skimi fyrir kórónaveirunni8. mars 2020 Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, sagði frá því í Facebook-færslu í gær að hann myndi ekki skima fyrir kórónaveirunni sem veldur COVID-19 sjúkdómi eins og hann hafði boðist til að gera til að hjálpa heilbrigðisyfirvöldum. Ástæðan er sú að framlag Íslenskrar erfðagreiningar yrði flokkað sem vísindarannsókn og þá þyrfti fyrirtækið að sækja um leyfi fyrir henni. „Það munum við ekki...
InnlentCovid-19Kári fær ekki að skima fyrir kórónaveirunni – „Þetta er endanleg ákvörðun“7. mars 2020 Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, hafði samband við íslensk heilbrigðisyfirvöld og bauðst til að skima fyrir kórónaveirunni sem veldur COVID-19 sjúkdómnum. Kári sagði í viðtali við Síðdegisútvarpið á Rás 2 í gær að hugmyndin væri að útbúa einhvers konar „drive-through“ þar sem væri tekið sýni úr nefholi fólks. Hann sagði að honum þætti sjálfsagt að leggja sitt af mörkum í...
InnlentCovid-19Staðfest smit orðin 50 talsins – Sjö innanlandssmit7. mars 2020 Í dag hafa fimm ný COVID19-smit greinst. Þrjú þeirra eru innlend og en þeir veiku höfðu verið í samskiptum við einstaklinga sem voru á hættusvæðum erlendis. Hinir tveir sýktust erlendis. Tveir þeirra sem greindust með veiruna eru á þrítugsaldri, einn á fertugsaldri, einn á fimmtugsaldri og einn á áttræðisaldri. Allir fimm eru búsettir á höfuðborgarsvæðinu. Fjöldi staðfestra tilfella eru nú...
InnlentCovid-19Árshátíðum Hafnarfjarðarbæjar og Garðabæjar frestað7. mars 2020 Árshátíðir Hafnarfjarðarbæjar og Garðabæjar áttu að fara fram í kvöld en báðum samkomunum hefur verið frestað. Á vef Hafnarfjarðarbæjar segir að tekin hafi verið ákvörðun um að fresta árshátíðinni um óákveðinn tíma í ljósi þess að ríkislögreglustjóri hefur lýst yfir neyðarstigi almannavarna í samráði við sóttvarnalækni vegna COVID-19. Þar segir einnig að ákvörðunin sé „gríðarlega stór“ og þeir sem ætluðu...
InnlentCovid-1970 Íslendingar koma til landsins frá Veróna í dag – Mikill viðbúnaður vegna komu hópsins7. mars 2020 Vél Icelandair með farþega frá Veróna á Ítalíu á að lenda á Keflavíkurflugvelli í dag klukkan 17:11. Embætti landlæknis er Icelandair innan handar vegna flugsins vegna útbreiðslu COVID-19. Rúmlega 70 Íslendingar koma með vélinni. Í frétt Vísis um málið segir að mikill viðbúnaður sé á Keflavíkurflugvelli vegna hópsins sem kemur með vélinni á meðan litlar sem engar ráðstafanir væri gerðar...
InnlentCovid-19Æðruleysi eldri borgara7. mars 2020 Aðstandendur íbúa á Hrafnistu hafa verið beðnir að halda sig fjarri séu þeir lasnir eða hafi verið á svæðum þar sem COVID-19 geisar. Forstjórinn, Pétur Magnússon, segir þetta mæta skilningi og kveður íbúana sjálfa taka hlutunum með stóískri ró. Uppfært: Neyðarstjórn Hrafnistu hefur tekið þá ákvörðun að loka öllum Hrafnistuheimilunum fyrir heimsóknum ættingja og annarra gesta frá og með 7....
InnlentCovid-19Leiðbeiningar um rakstur „vegna kórónaveirunnar“ fara eins og eldur um sinu á Netinu6. mars 2020 Í vikunni greindu fjölmiðlar frá því að íslenskir karlar væru farnir að raka af sér skeggið til að fyrirbyggja kórónasmit. Rætt var við lækni sem hefur rakað af sér skeggið í þágu sóttvarna og segist vita um minnst tvo aðra lækna sem gert það líka. Sjá einnig: Hvetja menn til að raka af sér skeggið til að fyrirbyggja kórónasmit Aðgerðir...
InnlentCovid-19Engir gestir á Landspítalann6. mars 2020 Landspítalinn hefur tekið fyrir allar heimsóknir gesta á spítalann vegna útbreiðslu COVID-19. Rúv greinir frá þessu. Þar segir að frá klukkan 17.00 í dag hafi spítalinn verið lokaður gestum og verði það áfram allan sólarhringinn. Rúv hefur eftir Önnu Sigrúnar Baldursdóttur, aðstoðarmanns forstjóra Landspítalans, að ákvörðunin hafi verið tekin eftir fund með farsóttarnefnd Landspítalans í hádeginu. Lokunin nær til allra...
InnlentCovid-19Tvö innanlandssmit – Alls orðin 43 talsins hér á landi6. mars 2020 Fyrstu innlendu smitin af kórónaveirunni COVID-19 greindust í dag og hefur Almannavarnardeild Ríkislögreglustjóra þess vegna hækkað viðbúnaðarstig sitt í svokallað neyðarstig. Frá þessu var greint á blaðamannafundi í dag. Þar kom fram að sex ný tilfelli hafa greinst í dag, þar af tvö innlend. Alls eru tilfellin orðin 43. Innanlandssmittin komu upp á höfuðborgarsvæðinu. Þau smituðu höfðu verið í samskiptum...
InnlentCovid-19„Ef ég smitast þá smitast ég og þá tækla ég það“6. mars 2020 María Dungal líffæraþegi er ein margra Íslendinga sem eru í aukinni smithættu af COVID-19 kórónaveirunni vegna undirliggjandi sjúkdóma. Dagsdaglega þarf hún að passa upp á sig og forðast flensu og aðrar pestir, en núna er aukin hætta vegna kórónaveirunnar og kannski ekki síst vegna þess að fregnir berast af því að Íslendingar sem koma erlendis frá reyna í einhverjum tilvikum...
InnlentCovid-19Fólk með sjúkdóma óttast um líf sitt6. mars 2020 Fólk með undirliggjandi sjúkdóma óttast mjög að smitast af kórónaveirunni, að sögn formanns Öryrkjabandalags Íslands. Þeim sem eru veikir fyrir stafar meiri ógn af veirunni en þeim sem eru hraustir. Línur Hjálparsíma Rauða krossins hafa verið rauðglóandi undanfarna daga. Öryrkjar og aldraðir eru áberandi í hópi innhringjenda. „Margir öryrkjar eru með alvarlega undirliggjandi sjúkdóma og eru þess vegna í meiri...
InnlentCovid-19Samtals 37 einstaklingar hafa greinst með COVID-196. mars 2020 Á stöðufundi samhæfingarstöðvar almannavarna í morgun koma fram að í gær voru fjögur tilfelli af COVID-19 sjúkdómum greind á sýkla- og veirufræðideild Landspítala. Einnig kom upp eitt vafasýni. Þetta kemur fram í tilkynningu almannavarnardeildar ríkislögreglustjóra. Allir einstaklingarnir eru á aldrinum 44-67 ára. Enginn er alvarlega veikur. Öll tengjast Ítalíu (Trentino) og Austurríki (Ischgl). Samtals 37 einstaklingar hafa greinst með COVID-19...